Fréttablaðið - 11.03.2023, Side 60
Fréttir vikunnar |
Inga Auðbjörg K. Straumland,
formaður Siðmenntar
„Rauði þráðurinn í fréttum vikunnar
eru sýnidæmi um það hvernig fólk
með völd og forréttindi fer með þau
völd þegar þau eru gagnrýnd.
Elon fer í persónuárásir gegn Har-
aldi, forsvarsfólk Íslensku óperunnar
kveikir ekki á neinu og Steinunn
Birna Ragnars segir að Ameríkanar
séu þeir sem komi illa út úr þessu
Madama Butterfly-braski, sem er
ótrúlega naívt.
Ríkið neitar að taka við fyrir-
spurnum um Lindarhvol og Jón
Gunnarsson reynir að gaslýsa fólk
til að halda að tuttugu milljón króna
velta úr líkkistusölubissness séu bara
smápeningar og þetta skipti ekki
máli af því að þetta er bissness kon-
unnar hans, eins og hún sé að selja
kerti á Etzy. Þetta er eitthvað
miklu stærra og miklu meiri
hagsmunir í húfi.
Svo var alþjóðlegur bar-
áttudagur kvenna og ég
hlustaði á ræðu Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur
sem minntist á að við
konur í forréttindastöðu,
sem ég er, verðum að
passa okkur að festast
ekki í þessari karllægu gildru
valdafólks, sem er að vera
sjálfmiðuð. Valdastöður
verða alltaf að snúast um
að bæta samfélagið en
ekki hvað við sjálf fáum
út úr þeim.“ n
Vikan sýni hvernig valdafólk bregst við gagnrýni
Valdastöður verða
alltaf að snúast um að
bæta samfélagið
Inga Auðbjörg K.
Straumland, for-
maður Siðmenntar
433.is
MÁNUDAGA KL. 20.00
Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri
433.is, fer yfir það helsta í
fótboltaheiminum. Hann fær til sín
áhugaverða viðmælendur og helstu
sparksérfræðinga landsins sem
gera upp mál málanna.
Íslenskir Eurovision-aðdá-
endur í FÁSES ætla að koma
saman á Ölveri um helgina
til að fylgjast með úrslitum
í Melodifestivalen, sænsku
undankeppninni í Eurovisi-
on. Halla Ingvarsdóttir, gjald-
keri FÁSES, ætlar í sérferð frá
Akureyri til Reykjavíkur til að
vera viðstödd gleðina.
odduraevar@frettabladid.is
„Þeir eru náttúrulega sérfræðingar
í þessu,“ segir Halla Ingvarsdóttir,
gjaldkeri FÁSES, Félags íslensks
Eurovision-áhugafólks, um Sví-
ana. FÁSES ætlar að hittast á Ölveri
í kvöld klukkan 19.00 og fylgjast
með keppninni í teiti sem öllum
er boðið í. Halla býr á Akureyri og
ætlar að bruna í borgina til að vera
með.
„Þetta er auðvitað vinsælla en
Eurovision hérna í Svíþjóð og búið
að vera það lengi. Svíarnir eru nátt-
úrulega fyrirmynd annarra þjóða
í þessu,“ segir Halla hlæjandi en
hún hefur fylgst af athygli með
keppninni hingað til. Svíarnir hafa
ekki haldið eitt undanúrslitakvöld,
ekki tvö heldur fimm og eðli máls-
ins samkvæmt ætti að vera mikil
spenna í loftinu.
Veðbankar eru þess hins vegar
fullvissir um að hin reynslumikla
Loreen muni koma, sjá og sigra með
lagi sínu Tattoo, ekki bara Melodi-
festivalen í kvöld heldur Eurovision
í maí.
„Ég talaði við vinkonu mína sem
býr í Svíþjóð og þetta virðist vera
stemningin, það virðist vera svo
gott sem öruggt að hún muni taka
þetta. Það getur samt alltaf eitt-
hvað óvænt gerst,“ segir Halla og
bætir því við að hennar uppáhalds
lög séu þau sem spáð er 2. og 3. sæti
í keppninni í ár.
„Það eru norsku tvíburarnir þeir
Marcus og Martinus með lagið Air
sem eiga hug minn allan og líka
lagið Six Feet Under,“ segir Halla og
bætir því við að Tattoo sé nú þrátt
fyrir allt ekkert Euphoria.
„En það er nú bara smekksatriði.
Euphoria er náttúrulega fyrir löngu
orðið að goðsagnakenndu Eurovisi-
on-lagi og það má segja að Svíarnir
hafi þar búið til hið fullkomna Euro-
vision-lag.“
Tólf lög fara á svið í Melodifestiva-
len í kvöld, en til samanburðar voru
einungis fimm lög f lutt í Söngva-
keppninni. Spurð hvort þetta verði
Horfa á Svía rúlla upp tólf
lögum á tveimur tímum
Veðbankar spá því að Loreen muni bera sigur úr býtum í kvöld og svo í Eurovision í maí. Mynd/SVT
þá ekki löng dagskrá hjá Svíunum,
segir Halla:
„Nei, nei, nei, Svíarnir eru ekki
lengi að þessu, þeir klára þetta ein-
faldlega bara á tveimur tímum,“
segir Halla hlæjandi. „Okkur fer
alveg fram en við erum ekki búin
að ná Svíunum í þessu.“
Halla bætir því við að nýju að
það verði stuð og stemning á Ölveri
í kvöld og allir velkomnir í teitið
sem hefst klukkan 19.00. „Eftir helgi
ættu öll lög í Eurovision svo að vera
klár og þá má loksins fara að setjast
niður og raunverulega spá og spekúl-
era í þessu, hvernig þetta gæti farið,“
segir Halla og bætir því við að það sé
of snemmt að fullyrða nokkuð um
sænskan sigur. „Svíarnir eru oftast
í topp þremur í veðbönkunum, svo
þetta er kannski ekkert nýtt í ár.“ n
Halla lofar stuði
og stemningu
á Ölveri í kvöld,
enda kemur
hún alla leið frá
Akureyri til að
vera með á há-
tíðinni.
Mynd/AðSend
40 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 11. mARS 2023
lAUGARDAGUR