Fréttablaðið - 11.03.2023, Side 64

Fréttablaðið - 11.03.2023, Side 64
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Óttars Guðmundssonar bakþankar | Ég fagna umræðu um íslenskan her. Tímabært er að Íslendingar vopnist á nýjan leik. Á Sturlungaöld riðu íslenskir bændaherir langan veg til að berjast. Frásagnir um Örlygs- staðabardaga, Flóabardaga og Haugsnesbardaga lýsa sem „leiftur á nótt“ inn í myrka og viðburða- snauða tilvist þjóðarinnar. Þessar orrustur og herleiðangrar eru glæstustu stundir Íslandssögunnar. Þegar þjóðin gekk Noregs- konungi á hönd 1262 hurfu þessir bændaherir inn í tómið. Glæsileik- inn vék fyrir niðurlægingu undir stjórn norskra og danskra emb- ættismanna. Landsmenn hokruðu vopnlausir við illan kost, börðu lóminn og sættu sig við kúgunina. Nú er mál að snúa blaði. Stofna íslenskan her sem fer um landið á hertrukkum og skriðdrekum. Hervæðing og vopnaframleiðsla hleypir lífi í efnahagslíf þjóða. Velsæld og tækniveldi Svía byggir á vopnaframleiðslu og vopnasölu til stríðandi fylkinga. Ísland gæti haslað sér völl í drónaflugi, tölvu- og stjörnustríðum svo að tölvu- fíklar landsins gætu loksins fengið vinnu. Fjölmargir sérfræðingar í stríðsrekstri sem hafa verið álits- gjafar í Úkraínustríðinu fengju allir starf við þennan nýja her. Hernað- armannvirki gætu risið um allt land til blessunar fyrir byggðajafnvægi. Herflugvöllur yrði í hverjum firði. yfirherstjórnin staðsett á Raufar- höfn vegna byggðasjónarmiða. Íslendingar gætu brotið undir sig lönd sem áður tilheyrðu okkur eins og Grænland, Færeyjar og Nýfundnaland. Með hervaldi mætti stofna íslenskt stór-efna- hagssvæði og stórauka sölu á rafmagni, lopapeysum og minja- gripum. Markaður fyrir íslenskar bækur, menningarvita og kvik- myndir mundi stækka til muna. Íslenskur her er söguleg nauðsyn. n Íslenskur her © Inter IKEA System s B.V. 2023 Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is KVITTERA kökustandur 2.990,- SELSVIKEN hurðir B60�H64 cm 5.950,-/stk. BLÅSVERK borðlampi 2.790,- Halló fallegt veisluborð! Sparaðu tíma og gerðu einfaldari innkaup á netto.is Fartölvur frá 39.990 NÝJAR VÖRUR OG TILBOÐ MAGNAÐUR MARS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.