Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Khaled heillaðist af náttúrufegurðinni á Íslandi.
Khaled leitar stöðugt nýrra leiða til að tjá sig með því sem hann klæðist. Með tímanum hefur
hann fundið sinn eigin stíl.
Khaled finnst gaman að
blanda sama ólíkum stílum,
persónulegir skart-
gripir eða úr setja svo
punktinn yfir i-ið.
Bandarískur ljósmyndari bað Khaleb og vinkonu hans að sitja fyrir á þessari mynd. Hann segir
það hafa verið skemmtilega reynslu. MYND/JOHN LE
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
í hvert einasta smáatriði hvað
varðar fötin sem hann klæðist.
„Ég hef mikla ástríðu fyrir tísku
og hef alltaf haft áhuga á nýjustu
straumum og stílum. Ég leita
stöðugt nýrra leiða til að tjá mig
með því sem ég klæðist og hvernig
ég kem fyrir fólki fyrir sjónir. Ég er
alltaf spenntur fyrir að læra meira.
Ég trúi því að tískan sé hvetjandi
og valdeflandi fyrir fólk og ég er
spenntur fyrir að vera hluti af
þeirri valdeflingu.“
Khaled segist ekki eiga uppá-
haldsfatahönnuð eða fatamerki.
Hann er meira fyrir að finna föt
sem hann elskar og falla vel að
hans persónulega stíl.
„Mér finnst gaman að blanda
saman mismunandi vörumerkjum
og stílum til að búa til einstakt
útlit sem hentar mér. Ég er víðsýnn
og sveigjanlegur þegar kemur að
tísku og legg áherslu á að finna
föt sem falla að mínum smekk og
óskum,“ segir hann.
„Mér finnst gaman að versla á
ýmsum stöðum, það veltur á því
hverju ég er að leita að. Ég elska
að skoða mismunandi búðir bæði
á netinu og í eigin persónu, til
að finna einstök föt sem henta
mínum stíl. Nokkrir af uppáhalds-
stöðum mínum til að versla á eru
Frakkland, Ítalía, England og líka
Ísland. Mér finnst þessi lönd bjóða
upp á frábæra blöndu af klass-
ískum og töff stílum og ég er alltaf
innblásinn af tískunni sem ég sé
þar.“
Elskar hvítar skyrtur
Khaled lýsir fatastíl sínum sem
blöndu af klassískum og nútíma-
legum stíl. Hann elskar tímalausan
klæðnað eins og vel sniðinn blazer-
jakka og straujaða hvíta skyrtu en
finnst líka gaman að bæta við töff
hlutum eins og persónulegum, ein-
stökum skartgripum eða fallegum
úrum og armböndum.
„Mér finnst mikilvægt að eiga
fylgihluti í fataskápnum sem hægt
er að blanda saman við aðra fylgi-
hluti og skapa þannig einstakan
og persónulegan stíl. Á heildina
litið reyni ég að klæða mig á þann
hátt að ég sé sjálfsöruggur og líði
þægilega á sama tíma og ég tjái
persónuleika minn og sköpunar-
gáfu,“ segir hann.
Uppáhaldsflíkur Khaleds eru
hvítar skyrtur með gylltum og
silfurlituðum ermahnöppum.
„Ég elska klassíska, tímalausa
útlitið á hvítri skyrtu, en gylltu
hnapparnir bæta við lúxus og
glæsileika sem gera hana sérstaka.
Þegar ég klæðist henni finnst mér
ég sjálfsöruggur og í jafnvægi, eins
og ég geti ráðið við allt sem verður
á vegi mínum,“ segir hann og bætir
Núna set ég í for-
gang að velja föt
sem mér líkar virkilega
vel við og líður vel í,
óháð því hvort þau séu í
tísku þá stundina eða
ekki.
við að auk þess sé hægt bæði hægt
að klæða hana upp með því að
vera í fínum jakka við eða niður
með því að klæðast gallabuxum og
strigaskóm.
Fylgir ekki straumnum
Khaled segir aðspurður að
hann telji að allir hafi ein-
hvern tímann gerst sekir
um tískumistök og þar
er hann engin undan-
tekning.
„Mín voru að gera
mér ekki grein fyrir
því að rétt snið getur
skipt öllu máli. Með
tímanum hef ég lært
að huga betur að
sniði og hlutföllum
og passa upp á að
fötin klæði líkama
minn vel. Ég lagði áður
fyrr of mikla áherslu á að
fylgja straumum, frekar en
að finna minn eigin per-
sónulega stíl. Núna set ég í
forgang að velja föt sem mér
líkar virkilega vel við og líður
vel í, óháð því hvort þau eru
í tísku þá stundina eða ekki.
Á heildina litið hef ég lært að
tíska snýst um að tjá sig og
líða vel í eigin skinni, frekar
en að fylgja hópnum,“ segir
hann.
Khaled segist ekki leita út
á við, eins og í tímarit eða
kvikmyndir til að fá inn-
blástur þegar kemur að hans
persónulega stíl.
„Fyrir mig snýst þetta
meira um að tjá persónu-
leika minn og klæðast því
sem mér finnst passa mér. Ég
trúi því að stíll sé form sjálfs-
tjáningar og ég vil frekar búa
til mitt eigið einstaka útlit en
að fylgja tískustraumum eða
herma eftir stíl einhvers ann-
ars,“ segir hann.
„Ég vil klárlega föt sem sam-
eina bæði stíl og þægindi. Ég
tel að tíska sé ekki bara að
líta vel út heldur líka að líða vel.
Ég er alltaf að leita að fötum sem
eru bæði smart og þægileg og ég
elska að finna hluti sem bjóða upp
á það besta af báðum heimum.
Eins og ég segi alltaf: Það sem þú
klæðist er hvernig þú kynnir þig
fyrir heiminum, sérstaklega í dag,
þegar mannleg samskipti eru svo
hröð.“ n
2 kynningarblað A L LT 16. mars 2023 FIMMTUDAGUR