Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 22
Það stendur mikið til hjá
nokkrum hlaupurum úr FH
en í byrjun næsta mánaðar
fer fimm manna hópur frá
Hafnarfjarðarliðinu í æfinga-
ferð til Kenía ásamt þjálfar-
anum, Sigurði P. Sigmunds-
syni, sem í mörg ár gerði það
gott í langhlaupunum og er
þrautreyndur í bransanum.
gummih@frettabladid.is
Hlaupahópur FH verður við æfing-
ar í Kenía í þrjár vikur en tveir úr
hópnum ætla að dvelja í Afríku-
ríkinu í sex vikur. FH-ingarnir
munu dvelja í Iten sem liggur í um
2.500 metra hæð yfir sjávarmáli. Í
Iten eru þekktar æfingabúðir þar
sem margir helstu hlauparar Kenía
stunda æfingar sem og hlauparar
frá öðrum löndum.
„Það verður spennandi tækifæri
fyrir hlauparana að kynnast því
að æfa í þynnra lofti en venjulega,
kynnast framandi aðstæðum og
æfingum fremstu hlaupara í heimi,
aganum sem þeir búa yfir og
mataræði þeirra,“ segir Sigurður.
Sigurður hefur verið að þjálfa
meistaraflokk FH í millivegalengd-
um og langhlaupum frá árinu 2020
og segist hann vera kominn með
mjög sterkan hóp og þá sérstaklega
í kvennaflokki, sem hefur verið að
vinna flestalla titla undanfarið.
Fyrsti hópurinn sem fer til Kenía
„Það er búinn að vera góður
kraftur í þessu starfi og ég hef
verið að byggja upp góða hlaupa-
grúppu. Nú er heldur betur farið
að styttast í þessa ferð okkar til
Kenía og þetta verður í fyrsta
skipti sem hópur frá Íslandi fer til
æfinga í Kenía,“ segir Sigurður og
bætir við:
„Kenía og Eþíópía eru aðal-
uppsprettulöndin að milli-
vegahlaupurum og sérstaklega
langhlaupurum í gegnum tíðina.
Maður hefur lengið hugsað um að
fara til Kenía og nú er loksins að
verða af því. Markmiðið er að sjá
hvernig áhrif það hefur á hópinn
að æfa við þessar aðstæður. Við
munum æfa tvisvar sinnum á dag
með styrktar- og teygjuæfingum í
bland við hlaupin. Það verður svo
gaman að sjá hverju þetta skilar
í maí. Það er oft talað um það að
árangurinn sé eitthvað aðeins
betri en þá er blóðið súrefnisríkt.
Þetta verður spennandi tilraun og
verður agi á mannskapnum að ein-
beita sér að þessu í nokkrar vikur.“
Sigurður segir markmið hópsins
sem fer til Kenía að verða valinn
til keppni á Smáþjóðaleikunum
sem fram fara á Möltu 28. maí til
4. júní og síðan er Evrópukeppni
landsliða í Póllandi 20. til 22. júní.
„Krakkarnir ættu að verða í topp-
formi í lok maí ef allt gengur upp,“
segir hann.
Sigurður segir að Valur Elli Vals-
son, einn þeirra fimm hlaupara
sem eru á leið til Kenía, hafi
fyrstur komið með hugmyndina
um að fara í þessa ferð. „Valur er 24
ára, er með mikið frumkvæði og er
í stjórn frjálsíþróttadeildarinnar.
Honum datt þetta í hug og þá
var maður ekki lengi að taka við
keflinu.“
Tíu mánaða undirbúningur
Sigurður segir að það sé kominn
mikill spenningur í fólk fyrir
ferðinni til Kenía. „Við byrjuðum
að undirbúa þessa ferð síðastliðið
vor svo þetta er búinn að vera tíu
mánaða undirbúningur. Það er
að mörgu að hyggja eins og flugi,
gistingu og ýmsu öðru. Ég skynja
mikinn spenning í hópnum og fyrir
mig sem gamlan áhugamann og
hlaupara verður gaman að upplifa
þetta.
Ég fór aldrei í háloftaæfingar eða
eitthvað slíkt og ég er spenntur
að sjá hvernig þetta virkar, hvort
þetta sé eitthvað sem skiptir máli
og hvaða áhrif þetta hafi á fólk. Ég
mun punkta allt niður hjá mér og
læri vonandi eitthvað af þessari
ferð. Keppnistímabilinu hér heima
innanhúss er að ljúka og um helg-
ina verður bikarkeppnin á dagskrá.
Svo tekur bara við undirbúningur
fyrir sumarið,“ segir Sigurður Pétur,
sem nýlega tók við formennsku í
frjálsíþróttadeild FH.
Þau sem fara til Kenía ásamt
Sigurði og Vali Ella eru Nick Gísli
Jansen, Elín Sóley Sigurbjörnsdótt-
ir, Íris Dóra Snorradóttir og Hulda
Fanný Pálsdóttir. FH-hópurinn
mun hitta tvo landa sína í Kenía, þá
Arnar Pétursson úr Breiðabliki og
ÍR-inginn Vigni Má Lýðsson, en þeir
hafa báðir áður verið í Iten í Kenía
við æfingar. n
Á leið í æfingabúðir til Kenía
Hópurinn sem er á leið til Kenía. Frá vinstri: Valur Elli Valsson, Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir, Sigurður P. Sigmundsson, fararstjóri og þjálfari, Íris Dóra Snorra-
dóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir. Á myndina vantar Nick Gísla Jansen. MYND/AÐSEND
Fjarþjálfun fyrir bakið
Við vinnum að því
að bæta líkams-
stöðu, líkamsbeitingu og
líkamsvitund á sama
tíma og við
aukum
styrk,
stöðugleika
og liðleika
líkamans.
Dr. Harpa Helgadóttir, PhD,
sjúkraþjálfari og sérfræðingur í
stoðkerfisfræðum, kennir háls- og
bakæfingar í þriggja mánaða fjar-
þjálfun.
„Þú getur byrjað hvenær sem er
og færð heimaæfingar og fræðslu-
myndbönd frá mér í hverri viku,“
segir Harpa. „Ég leiði þig í gegnum
æfingar sem byggja stoðkerfið upp
á heildrænan máta en þú velur á
milli þess að leggja áherslu á bakið,
mjaðmagrind og fótleggi eða á
háls, efra bak og axlir.“
Harpa segir æfingarnar geta
verið mjög einfaldar og léttar, allt
frá æfingum þar sem setið er á
stól eða með stuðning, yfir í fjöl-
breyttar og kröftugar styrktar- og
stöðugleikaæfingar með lóðum.
„Við vinnum að því að bæta
líkamsstöðu, líkamsbeitingu og
líkamsvitund á sama tíma og við
aukum styrk, stöðugleika og lið-
leika líkamans. Ég fer einnig með
þér í gegnum jafnvægisæfingar,
öndunaræfingar, djúpvöðvaæf-
ingar, nudd og teygjur sem minnka
vöðvaspennu og draga úr stífleika í
liðum,“ segir Harpa.
„Ef þú hefur háls- eða bakverki
er mikilvægt að æfingarnar séu
hæfilega erfiðar og að álagsþol
stoðvefjanna sé byggt upp smám
saman. Ef þú hefur ekki verki getur
þú byggt álagsþolið upp hraðar
og farið á svokallaða „Hraðbraut“.
Einnig getur þú valið að gera upp-
hitun með dansívafi sem minnkar
vöðvaspennu, dregur úr stífleika
í liðum og er því gott að gera sam-
hliða styrktar- og stöðugleika-
æfingum.
Ef þú átt erfitt með að gera
æfingar í standandi stöðu er til-
valið að gera dýnuæfingar, æfingar
sitjandi á stól eða standandi í stutt-
an tíma með stuðningi við borð
eða vegg. Æfingar í sundlaug eru
einnig góðar þar sem við vegum
aðeins einn tíunda af líkams-
þyngdinni þegar við stöndum
með vatnsyfirborðið í axlarhæð.
Vatnið veitir okkur stuðning en
einnig mótstöðu í æfingum. Það
þarf að eiga airpods (Bluetooth-
heyrnartól) til að hlusta á mig leiða
æfingarnar í laug,“ segir Harpa og
bætir við að myndbönd af æfing-
unum fylgi einnig með.
Mikilvægt er að æfingar séu hæfilega erfiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Dr. Harpa Helgadóttir hefur
starfað við greiningu og meðferð
fólks með háls- og bakverki frá því
hún lauk sérfræðinámi í stoðkerf-
isfræðum árið 2000. Doktorsgráðu
lauk hún árið 2010 frá Háskóla
Íslands þar sem hún rannsakaði
starfsemi háls, efra baks og axla
hjá fólki með hálsverki. Harpa
hefur kennt Háls- og bakleikfimi
í 30 ár og hefur þróað æfingakerfi
sem byggir kerfisbundið upp
álagsþol stoðvefja. Æfingarnar
byggja á vísindalegum grunni og
nýjustu þekkingu í þjálfun fólks
með háls- og bakvandamál.
Harpa kennir Háls- og bakleik-
fimi í Heilsuklasanum við Bílds-
höfða og í sundlauginni í Boða-
þingi, Kópavogi. n
Upplýsingar og skráning:
www.bakleikfimi.com
Það verður spenn-
andi tækifæri fyrir
hlauparana að kynnast
því að æfa í þynnra lofti
en venjulega, kynnast
framandi aðstæðum og
æfingum fremstu hlaup-
ara í heimi.
Sigurður P. Sigmundsson
6 kynningarblað 16. mars 2023 FIMMTUDAGURHEILSUR ÆKT