Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 12
Með öðrum orðum, rökin byggjast á tækni- nauðhyggju en horft er fram hjá öðrum mikil- vægum þáttum í starf- semi safna af þessu tagi. – Ég ákæri Dag B. Eggertsson borg- arstjóra fyrir þann óskiljanlega gjörning að keyra í gegnum borgar- ráð ákvörðun um að leggja Borgar- skjalasafnið niður fyrir nokkrum dögum. – Ég ákæri borgarstjórnarmeiri- hlutann fyrir að ganga í þá gildru að samþykkja þá ráðstöfun að leggja þessa mikilvægu menning- arstofnun niður og beita við það brögðum þegar málinu var rennt í gegnum borgarstjórn á mettíma og án mikillar umræðu. – Ég ákæri þá fulltrúa meirihlut- ans í borgarstjórn sem réðust með andstyggilegum hætti að borgar- skjalaverði, Svanhildi Bogadóttur, sem hefur í áratugi byggt upp safnið ásamt sínu starfsfólki af mikilli elju og natni. – Ég ákæri borgarstjórnarflokk Pírata fyrir að fórna sannfæringu sinni um mikilvægi upplýsinga- og lýðræðisstofnana á borð við Borgar- skjalasafnið fyrir völd og áhrif. – Ég ákæri borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar fyrir að falla frá hugmyndum um mikilvægi menn- ingar í landinu þegar hann stóð að þessari vanhugsuðu ákvörðun að snúa Borgarskjalasafnið niður. Lesendur góðir – hvers vegna skyldi prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands standa upp frá borði sínu, steyta hnefa framan í mann og annan og krefjast þess að ákvörðun löglega kjörinna stjórn- málamanna verði dregin til baka? Ástæðan er einföld. Ég gjörþekki málið og hef komist að þeirri niður- stöðu að hér hafi verið höfð brögð í taf li. Ég hef líka kynnt mér mála- vöxtu, hvað liggi þessari ákvörðun að baki, og ég sé að plaggið sem þetta mál byggir á og samið var af endurskoðunarskrifstofu úti í bæ, er hrákasmíð. Ég óskaði fyrir nokkrum dögum eftir því að einn fulltrúi í borgarstjórn, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, útskýrði fyrir háskólasamfélaginu hvers vegna hún stóð að þess- ari vanhugsuðu ákvörðun. Það hefur hún gert og svar hennar er því miður fullt af missögnum og af hjúpar lítinn skilningi á mikil- vægi Borgarskjalasafnsins. Mér fannst nauðsynlegt að óska eftir svari hennar á póstlista Háskóla Íslands því að með ólíkindum má telja að manneskja sem tilheyrir vísindasamfélaginu gæti stutt mál af þessu tagi. En um hvað snýst þá málið? Borg- arstjóri og borgarstjórn hafa sam- þykkt að leggja Borgarskjalsafnið niður á þeim forsendum að það myndi kosta stórkostlega fjármuni að halda því gangandi á næstu árum eða áratugum. Skjalasöfn landsins stæðu frammi fyrir nýrri áskorun sem tengist hinni stafrænu byltingu og því væri þetta safn betur komið í höndum starfsmanna Þjóðskjala- safns Íslands. Með öðrum orðum, rökin byggjast á tækninauðhyggju en horft er fram hjá öðrum mikil- vægum þáttum í starfsemi safna af þessu tagi. Hverjir skyldu þeir þættir þá vera? Um leið og borgarstjórn Reykjavík- ur snýr þessa stofnun niður og ætlar henni að hverfa inn á vettvang Þjóð- skjalasafns þá missum við tökin á því mikilvæga starfi sem unnið er í Borgarskjalasafninu við að þjóna nærsamfélaginu – okkur íbúum Reykjavíkur – og í leiðinni menn- ingu, vísindum og fræðum. Lykill- inn að starfi Borgarskjalasafnisins er sérstaða þess og nálægðin við verkefnið; að halda utan um líf íbúa Reykjavíkur bæði í gegnum stofn- anir Borgarinnar og einkaskjöl sem tilheyra okkur. Það er þekkt að þessi tengsl við söfnin skipta sköpum við öflun gagna, varðveislu þeirra og miðlun. Þetta vita allir sem eitt- hvað hafa komið nálægt safnageir- anum; vísindamenn, safnafólk og almennir notendur. Rannsóknir á einkaskjölum hafa gríðarleg áhrif á ritun sögunnar og hvernig við skilj- um fortíðina. Þau eru lykilheimildir á vettvangi hug- og félagsvísinda. „Einnig hefur það vafist fyrir mörgum að gögnum sé dreift um of,“ sagði Árelía Eydís í skeyti sínu á póstlista Háskóla Íslands fyrir nokkrum dögum og nefndi þar gögn Ólafs Thors sérstaklega – þau ættu frekar heima í Þjóðskjalasafni. Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Björn Þórðarson og f leiri stjórn- málamenn voru allir opinberar persónur en einnig einstaklingar með sína sögu og sín einkaskjöl sem bjuggu og störfuðu í Reykja- vík. Bjarni Benediktsson var meira að segja borgarstjóri eins og kunn- ugt er en ættingjar þessara manna hafa kosið, með mjög góðum rökum að ég tel, að vista þessar mikilvægu heimildir á vettvangi Borgarskjala- safnsins. Þeir kusu að fara með þessi gögn þangað en ekki í Þjóðskjala- safnið. Engum vafa er undirorpið að Björn Bjarnason fyrrverandi menntamálaráðherra áttaði sig fullkomlega á starfsemi Þjóðskjala- safnsins – hann og hans fjölskylda kusu að varðveita einkaskjalasafn föður síns í Borgarskjalasafninu vegna þess að samkvæmt hlut- verkum þess áttu heimildir hans best heima þar. Til að skýra þetta ögn betur þá er meginreglan sú að Þjóðskjalasafnið varðveitir opinber skjöl frá öllu landinu, Borgarskjalasafnið heldur utan um heimildir sem tilheyra stofnunum Reykjavíkurborgar og leiðbeinir þeim um varðveisluna. Þjóðskjalasafninu hefur einnig borist nokkuð af einkaskjölum í gegnum tíðina sem það varðveitir en það er samt aukageta hjá safn- inu. Borgarskjalasafnið safnar hins vegar markvisst einkaskjölum frá okkur borgarbúum og leitast við að komast yfir slíkar heimildir eins og í tilfelli ofangreindra stjórn- málamanna og einnig almennra borgara. Og þarna kemur styrk- leiki Borgarskjalasafnsins einmitt fram, tengslin við okkur borgarana frá fyrstu tíð, svo sem í gegnum skólakerfið. Safnið stendur okkur nefnilega nærri þar sem það varð- veitir heimildir um hvern og einn íbúa Reykjavíkur. Nú fáum við hins vegar fregnir af því að meirihluta borgarstjórnar finnist gögnin vera of dreifð. Hvers konar rök eru það? Hvað heldur meirihlutinn í borgarstjórn að forsvarsmenn Samtakanna ‘78, Alnæmissamtakanna og fleiri hópa sem hafa kosið að fela Borgarskjala- safninu og sérhæfðum starfsmönn- um þess að varðveita viðkvæm gögn þeirra segi um þessa ráðstöfun? Verður ef til vill farið að ráðum „sér- fræðinganna“ sem sömdu skýrsluna um að leggja safnið niður, að þessi gögn og önnur einkaskjöl verði afhent yfir afgreiðsluborðið í Borg- arbókasafninu? Hér stendur ekki steinn yfir steini og þó hef ég aðeins tæpt stuttlega á nokkrum atriðum. Auðvitað er ekkert nema sjálfsagt að héraðs- skjalasöfn, eins og Borgarskjala- safnið, vinni með Þjóðskjalasafni að áskorunum framtíðar. Að hefja þá samvinnu á að leggja Borgar- skjalasafnið niður er hrein fjar- stæða, vanhugsuð ákvörðun sem er svo alvarleg að krefjast verður að borgarstjórn dragi þessa ákvörðun sína til baka. Það sem svíður ef til vill mest er hvað skilningurinn á merkingu Borgarskjalasafns fyrir menningarlíf Reykjavíkur er lítill, hvað skeytingarleysið fyrir þýðingu safnsins fyrir vísindastörf í landinu er yfirþyrmandi og hvað virðingar- leysið fyrir starfi fólksins sem hefur lagt líf sitt og sál í uppbyggingu safnsins er algjört. n Ég ákæri Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menn- ingarsögu við Háskóla Íslands Skarfagarðar 6, 8 og 10 Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 25. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 2. febrúar 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna lóðanna nr. 6, 8 og 10 við Skarfagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna, afmörkun lóðar breytist og stækkar til norðurs, bætt er við nýjum byggingarreit og núverandi byggingarreitur fellur niður. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Vesturgata 61 Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 22. febrúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 2. mars 2023 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits vegna lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir þ.e. Vesturgata 61 og Seljavegur 8. Á hvorri lóð er skilgreindur byggingarreitur og leyfilegt að byggja eitt íbúðarhús innan hvors reits. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Vakin er athygli á að verið er að endurauglýsa tillöguna þar sem rangur uppdráttur var til kynningar með fyrri auglýsingu. Tillögurnar má nálgast á vefnum, www.reykjavik.is, undir skipulag í kynningu. Einnig má nálgast tillögurnar á tölvuskjá hjá þjónustufulltrúa í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30 – 16:00 og föstudaga kl. 8:30–14:30 frá 16. mars 2023 til og með 5. maí 2023. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 5. maí 2023. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 16. mars 2023 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipula ssvið Auglýsing um tillögur að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is 12 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.