Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 28
Michelle Yeoh var fyrst asískra kvenna til að vinna Óskarverð- laun sem besta leikkona í aðalhlutverki. Dior-kjóllinn sem Michelle skartaði á Óskarnum var alsettur hvítum fjöðrum sem mynduðu bylgjur í hann. Stjörnurnar fíla eldri tísku Það vekur athygli þegar fræga fólkið klæðist fötum úr eldri línum frægustu hönnuða heims á rauða dreglinum og síðustu ár hefur það aukist til muna. jme@torg.is Það er eiginlega merkilegt hve móðins flíkur úr eldri línum frægra hönnuða eru í dag, þrátt fyrir að vera úr tískulínum frá síðustu aldamótum og fyrr. Enda gildir það um vel hannaða flík að hún fer í rauninni aldrei úr tísku. Eitt vinsælasta tímabilið sem sjá mátti á rauða dreglinum síðustu mánuði er 1995–2005. Vogue tók saman besta vintage fatnaðinn sem stjörnurnar klæddust á rauða dreglinum í ár og dæmi hver fyrir sig. Sjálfbærari rauður dregill Á tímum þegar krafan um sjálfbærni eykst stöðugt er vintage-tíska eitt af þeim svörum sem við erum að leitast eftir. Hvers vegna að hanna algerlega nýjan kjól þegar það er til glás af frábærum kjólum sem bíða eftir því að vera endurnýttir? Eins og sést á myndunum þurfa eldri kjólar alls ekki að vera gamaldags. Upp á síðkastið hafa svo verslanir sem bjóða upp á eldri tísku- línur orðið vin- sælar hjá fræga fólkinu og tísku- gúrúum. n Jurnee Smoll­ ett var í Nina Ricci Haute Couture kjól frá 1996 í Vanity Fair Óskarsveislunni. Zendaya var í kjól úr vorlínu Versace frá 2002 á NAACP­ verðlaununum. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Cate Blan chett tók við BAFTA­ verðlaunum í Maison Margiela­kjól sem hún notaði áður á Óskarn­ um 2015. Ljós Michelle Yeoh skein skært á nýafstaðinni Óskars- verðlaunahátíð. Hún vann sem besta leikkonan og vakti athygli fyrir tímalausa fegurð í Dior-kjól. sandragudrun@frettabladid.is Leikkonan Michelle Yeoh skrifaði nafn sitt á spjöld sögunnar þegar hún vann Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki, fyrst asískra kvenna. Verðlaunin vann hún fyrir hlutverk sitt í kvikmynd- inni Every thing, Everywhere, All at Once sem er sú kvikmynd sem sópaði að sér flestum verðlaunum á hátíðinni. Myndin vann til sjö verðlauna en það eru flest verðlaun sem ein kvikmynd hefur hlotið á Óskarsverðlaunahátíðinni í 14 ár, eða síðan Slumdog Millionaire hlaut átta verðlaun árið 2009. Michelle vissi að Óskarsverð- launakvöldið yrði sérstakt fyrir hana þar sem hún var tilnefnd til einna af aðalverðlaunum hátíðar- innar. Hún lagði sig því alla fram um að líta vel út á rauða dreglinum á sunnudagskvöldið. Hún undirbjó húðina með því að nota nota La Mer's Treatment Lotion, The Eye Concentrate og The Moisturizing Soft Cream. „Vörurnar þeirra hjálpa til við að gefa húðinni á mér raka og undir- búa mig fyrir förðun,“ sagði hún í viðtali við Vogue. Draumi líkust Hárgreiðslukonan Mara Roszak og förðunarfræðingurinn Sabrina Bedrani hjálpuðust að við að gera útlit hennar tímalaust og áreynslu- laust. Michelle segir að þær hafi viljað skapa mjúkt náttúrulegt útlit og því var sérstök áhersla á að gera húðina fallega. Sabrina sagði í samtali við Vogue að hún hafi viljað draga fram og bæta náttúrulega eiginleika Mich- elle með förðuninni. „Mig langaði að draga fram augun í henni án þess að gera þau of dökk,“ sagði hún. Sabrina notaði gel-augnfarða frá Stila sem augn- línupenna og augnskuggapallettu frá Dior. Hún fullkomnaði síðan útlitið með tvenns konar varalit. Rouge Dior 625 Mitzah og Dior Addict 526 Mallow Rose. Stílistinn Jordan Johnson Chung lagði sitt af mörkum til að láta ljós Michelle skína sem skærast á rauða dreglinum. Hún var í Dior- kjól hönnuðum af Maria Grazia Chiuri en kjóllinn var úr beinhvítu silki-organsa og alsettur hvítum fjöðrum sem gerðu kjólinn draumi líkastan. „Mér finnst gaman að halda fólki forvitnu og koma því á óvart, svo einfaldur glæsileiki er leiðin sem við völdum með útlitinu,“ sagði Michelle í áðurnefndu viðtali. Hún sagðist elska bylgjurnar sem fjaðrirnar mynduðu í kjólinn og létu hann virka fljótandi. Skartgripir frá Moussaieff Skartgripirnir sem Michelle valdi að nota við kjólinn eru demants- skartgripir frá Moussaieff, skart- gripafyrirtæki í eigu fjölskyldu Dorritar, fyrrverandi forsetafrúar. Skartgripirnir sem Michelle bar voru hálsmen, eyrnalokkar og hringur en hún breytti hálsmen- inu í höfuðskart. Það eru þó nokkuð mörg verk- efni fram undan hjá þessar sex- tugu malasísku leikkonu en hún er núna í tökum á Wicked. Einnig lék hún í þáttunum American Born Chinese sem koma út á Disney+ á þessu ári en í þeim þáttum leika einnig meðleikarar hennar úr Eve- rything Everywhere All at Once, þau Ke Huy Quan og Stephanie Hsu. n Michelle Yeoh skærasta stjarnan Kjóllinn sem Michelle Yeoh var í á Óskarsverðalaunahátíðinni var hannaður af Maria Grazia Chiuri fyir Dior. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 8 kynningarblað A L LT 16. mars 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.