Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 29
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlana og breytingar á aðalskipulagi: 1. Brjánsstaðir lóð 4 L213014; Hádegishóll; Þjónustuhús auk þyrpingu gistihúsa; Deiliskipulag – 2301017 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags á lóð Brjánsstaða lóð 4, L213014. Í deiliskipulaginu felst heimild til að byggja þyrpingu lítilla gistihúsa auk þjónustuhúsa og húsnæðis fyrir starfsfólk með fasta búsetu ef á þarf að halda. Nýtingarhlutfall lóðar geti orðið allt að 0.1. Lýsing vegna aðal- skipulagsbreytingar sem tekur til breyttrar landnotkunar innan svæðisins er í kynningu. 2. Skálabrekka-Eystri L224848; Grjótnes- og Hellunesgata, landbúnaðarlóðir; Deiliskipulag – 2210051 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til landbúnaðarlóða í landi Skálabrekku-Eystri. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 17 landbúnaðarlóðum á um 75 ha svæði. Stærðir lóða eru frá 30.488 fm til 45.733 fm. Innan lóða er gert ráð fyrir heimild til að reisa eitt íbúðarhús ásamt aukahúsi á lóð innan nýtingarhlutfalls 0,03. 3. Hnaus 2; Mosató 3 L225233; Stækkun hótels; Aðalskipulagsbreyting – 2207020 Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til aukins umfangs og heimilda fyrir uppbyggingu á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi á lóð Mosató 3 L225233. Gerð verður breyting á töflu í kafla 2.4.1 um verslun og þjónustu. Gerð verður grein fyrir auknu umfangi hótels með gistiplássi fyrir allt að 60 manns. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn á lóð hótelsins, heimilt er að byggja hæð ofan á hótelið þannig að byggingin verði 2 hæðir, án kjallara. Heildarbyggingarmagn innan lóðar eykst úr 2.000 m2 í allt að 3.000 m2 og hámarksfjöldi herbergja eykst úr 20 herbergjum í 27 herbergi. Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga og nýrra deiliskipulagsáætlana: 4. Hald á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211044 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Halds á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra skála. Annar er ætlaður fyrir gistingu og hinn getur verið skemma/hesthús. Gisting getur verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um 3,9 ha 5. Versalir á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211042 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Versala á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins. Í Versölum eru þrír skálar, tveir gistiskálar og hesthús með hestagerði. Annar gistiskálinn og hesthúsið er í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra, hinn gistiskálinn er í einkaeigu. Gisting getur verið fyrir allt að 45 gesti. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha. 6. Úthlíð 1 L167180; Frístundabyggð svæði 5a; Deiliskipulag – 2302034 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til hluta frístundabyggðar í landi Úthlíðar 1 L167180. Innan svæðisins sem deiliskipulagið tekur til eru lóðir við göturnar Djákna- hlíð, Djáknaveg, Djáknabrúnir, Mosabrúnir og Mosaskyggni. Á svæðinu er deiliskipulag í gildi, við gildistöku þessa skipulags fellur úr gildi sá hluti sem tekur við framlagðs deiliskipulags innan núgildandi deiliskipulags. 7. Bjarnastaðir 1; Tjarnholtsmýri 1-15; Landbúnaðarsvæði; Skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingarheimilda; Deiliskipulag – 2301077 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipu- lags sem tekur til lóða við Tjarnholtsmýri 1-15. Í deiliskipulaginu felst skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingar- heimilda. Heimilt verður að byggja íbúðarhús með bílageymslu/geymslu og aðstöðuhús/hesthús. Nýtingarhlutfall lóða má vera allt að 0,05. 8. Sjónarhóll L198871; Nýr byggingarreitur og skilmálar; Eldri viðbætur; Deiliskipulagsbreyting – 2301071 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu deiliskipulagsbreytingar vegna bæjartorfu Sjónarhóls L198871 í Ásahreppi. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur B3 innan marka deili- skipulagsins. Innan reitsins er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarbygginga tengdar starfsemi búsins. 9. Holtakot lóð L176853; Skilgreining lóðar og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301081 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til 5,8 ha lóðar Holtakots lóð L176853. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarheimilda innan svæðisins þar sem gert er ráð fyrir að heimilað byggingarmagn á svæðinu verði allt að 1000 m2, hámarksnýtingarhlutfall er um 0,017. Leyfi er fyrir sex byggingum og hámarksstærð hverrar byggingar er 200 m2. Heimilt er að byggja íbúðarhús ásamt mögulegu gestahúsi, gróðurhúsi, geymslu og frístundahúsi. Umrædd lóð er samkvæmt aðalskipulagi bæði innan frístundasvæðis og landbún- aðarsvæðis. 10. Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag – 2301053 Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7, spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði. 11. Hlíðarás (Berustaðir 2 land 1) L207089; Skilgreining lóða og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301052 Hreppsnefnd Ásahrepp samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til Hlíðaráss (Berustaðir 2 - land 2) L207089. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús auk véla- reið- og/eða tamningaskemmu allt að 800m², hámarkshæð er 6,5m. Hesthús eða gripahús má vera allt að 300m², hámarks- hæð húss er 6m. Gestahús má vera allt að 80m², hámarkshæð húss er 5,5m. 12. Engjavatn L218342; Byggingarreitur og byggingarmagn; Deiliskipulag – 2302002 Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til land- spildunnar Engjavatns L218342. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingarreit undir íbúðarhús ásamt bílgeymslu og hesthúsi. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu- tíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is. Mál 1-3 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 6. apríl 2023. Mál 4-12 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 28. apríl 2023. Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is Vigfús Þór Hróbjartsson Skipulagsfulltrúi UTU Þessa dagana fer fram Sálfræðiþing þar sem sálfræðingar hittast og bera saman bækur sínar, nýjustu rann- sóknir eru kynntar og fjallað er um þróun sálfræðiþjónustu. Ein mikil- vægasta þróun sálfræðiþjónustu í landinu fer fram þessi misserin á heilsugæslustöðvum landsins. Þriðjungur þeirra sem leita á heilsugæslu leitar þangað vegna tilfinningavanda svo sem vegna einkenna þunglyndis, kvíða og áfallastreituröskunar. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum er mælt með því að meðhöndla fólk sem leitar til heilsugæslunnar með væg til miðlungs einkenni þunglyndis, kvíðaraskanir og áfallastreiturösk- un með gagnreyndum sálfræðimeð- ferðum. Það var mikið fagnaðarefni þegar það framfaraskref var stigið að ráða fyrstu sálfræðingana inn í heilsugæsluna til þess að veita þessa mikilvægu þjónustu og geta boðið hana í stað og/eða samhliða lyfjameðferð sem mikið aðgengi er að. Frá upphafi hefur almenningur haft mjög takmarkað aðgengi að gagnreyndum meðferðum sálfræð- inga hér á landi og löngu tímabært að byggja upp aðgengi að þessari mikilvægu þjónustu. Vegferðin er hafin en enn vantar mikið upp á til að þjónustan sé tryggð og aðgengileg fyrir almenning. Mikilvægt er að tryggja þjónustuna sem allra fyrst í samræmi við það sem gert hefur verið í nágrannalöndunum, svo sem í Bretlandi, Noregi, Svíþjóð og víðar með góðum árangri undanfarin tæp tuttugu ár. Uppbygging byggð á rannsóknum Fyrsti sálfræðingurinn sem sinnti fullorðnum í heilsugæslu hjá Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins var ráðinn inn 2017 og fljótlega stækk- aði hópurinn og óx undir styrkri forystu dr. Agnesar Agnarsdóttur sérfræðings í klínískri sálfræði sem skrifaði doktorsverkefni sitt um þörf fyrir sálfræðiþjónustu í heilsu- gæslu á Íslandi árið 1997. Rannsókn undirritaðrar um algengi tilfinn- ingavanda í heilsugæslu á Íslandi frá 2011 sýndi fram á svipaðar niður- stöður og áður höfðu birst í rann- sókn Agnesar um að þriðjungur þeirra sem leitar aðstoðar í heilsu- gæslu er þar vegna tilfinningavanda. Í doktorsverkefni dr. Hafrúnar Kristjánsdóttur sem ber heitið Að bæta aðgengi að sálfræðimeðferð í heilsugæslu með ósérhæfðri hug- rænni atferlismeðferð í hóp er sýnt fram á að hinn íslenski ÓHAMH- meðferðavísir er árangursríkur og hentar fólki með þunglyndis- og kvíðaraskanir og hann gæti því reynst gagnlegur ef auka á aðgengi sjúklinga í heilsugæslu að gagn- reyndri sálfræðimeðferð. Mikilvægt er að ráðast í áframhaldandi rann- sóknir á þessu sviði hér á landi. Sálfræðingar stýri uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu Uppbygging sálfræðiþjónustu í heilsugæslu undanfarin 6 ár hefur reynst talsverð áskorun af mörgum ástæðum. Það er áskorun fyrir nýja heilbrigðisstétt að koma inn í heil- brigðisþjónustu sem fest hefur verið í sessi um áraraðir undir stjórn annarra fagstétta. Til þess að sál- fræðiþjónusta í heilsugæslu virki sem skyldi þurfa nokkur lykilatriði að vera til staðar. Fyrst og fremst þurfa sálfræðingar sjálfir að leiða uppbygginguna, sinna fagstjórn og vera hluti af stjórnendateymum heilsugæslunnar. Mönnunin þarf að vera nægjanleg til að hægt sé að bjóða þjónustu innan 6 vikna og f læði sé í þjónustunni. Í fyrir- myndarverkefni sem byggt hefur verið upp í Bretlandi frá 2006 um aukið aðgengi almennings að sál- fræðimeðferðum er miðað við einn sálfræðing á hverja 6.250 íbúa í þjónustu við fullorðna og annan í þjónustu við börn. Undanfarið hafa verið tæp 16 stöðugildi sálfræðinga í fullorðinsþjónustu á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en þyrftu að vera að minnsta kosti 30 auk mun meiri stoðþjónustu og fagstjórn- enda. Taka þarf tillit til þess að þjón- ustuþörfin er uppsöfnuð, byggja þarf upp skilvirkni og afleiðingar heimsfaraldurs auka þungann. Þeir sálfræðingar sem starfa á heil- brigðisstofnun þurfa að hafa greitt aðgengi að þjálfun, handleiðslu og fræðslu til að tryggja gæði þjónust- unnar. Sömuleiðis þarf að tryggja samræmingu á milli stöðva og hafa virk mælaborð til að mæla flæði og árangur. Því miður hefur verið tekist á um ýmis grundvallaratriði varðandi uppbygginguna, staða fagstjóra sálfræðiþjónustu var lögð niður, skort hefur á mannaf la og stoð- þjónustu sem hefur komið niður á þjónustunni og hægt á uppbyggingu hennar. Við sem störfum í heilsugæslunni og er annt um þessa uppbyggingu hvetjum almenning og heilbrigðis- yfirvöld til þess að tryggja þessa mikilvægu uppbyggingu með okkur enda þörfin rík og arðsemin óum- deild. n Uppbygging sálfræðiþjónustu í heilsugæslu Kristbjörg Þórisdóttir sálfræðingur FRÉTTABLAÐIÐ SKOÐUN 1316. MARS 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.