Fréttablaðið - 16.03.2023, Qupperneq 29
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes-
og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlana og breytingar
á aðalskipulagi:
1. Brjánsstaðir lóð 4 L213014; Hádegishóll; Þjónustuhús auk þyrpingu gistihúsa; Deiliskipulag – 2301017
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags
á lóð Brjánsstaða lóð 4, L213014. Í deiliskipulaginu felst heimild til að byggja þyrpingu lítilla gistihúsa auk þjónustuhúsa og
húsnæðis fyrir starfsfólk með fasta búsetu ef á þarf að halda. Nýtingarhlutfall lóðar geti orðið allt að 0.1. Lýsing vegna aðal-
skipulagsbreytingar sem tekur til breyttrar landnotkunar innan svæðisins er í kynningu.
2. Skálabrekka-Eystri L224848; Grjótnes- og Hellunesgata, landbúnaðarlóðir; Deiliskipulag – 2210051
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að kynna tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
landbúnaðarlóða í landi Skálabrekku-Eystri. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 17 landbúnaðarlóðum á um 75 ha svæði.
Stærðir lóða eru frá 30.488 fm til 45.733 fm. Innan lóða er gert ráð fyrir heimild til að reisa eitt íbúðarhús ásamt aukahúsi á
lóð innan nýtingarhlutfalls 0,03.
3. Hnaus 2; Mosató 3 L225233; Stækkun hótels; Aðalskipulagsbreyting – 2207020
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur
til aukins umfangs og heimilda fyrir uppbyggingu á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi á lóð Mosató 3 L225233. Gerð
verður breyting á töflu í kafla 2.4.1 um verslun og þjónustu. Gerð verður grein fyrir auknu umfangi hótels með gistiplássi fyrir
allt að 60 manns. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn á lóð hótelsins, heimilt er að byggja hæð ofan á hótelið þannig að
byggingin verði 2 hæðir, án kjallara. Heildarbyggingarmagn innan lóðar eykst úr 2.000 m2 í allt að 3.000 m2 og hámarksfjöldi
herbergja eykst úr 20 herbergjum í 27 herbergi.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga og nýrra
deiliskipulagsáætlana:
4. Hald á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211044
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
fjallaselsins Halds á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert
er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra skála. Annar er ætlaður fyrir gistingu og hinn getur verið skemma/hesthús. Gisting getur
verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um 3,9 ha
5. Versalir á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag – 2211042
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. desember 2022 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
fjallaselsins Versala á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfest núverandi landnotkun svæðisins. Í Versölum eru
þrír skálar, tveir gistiskálar og hesthús með hestagerði. Annar gistiskálinn og hesthúsið er í eigu Ásahrepps og Rangárþings
ytra, hinn gistiskálinn er í einkaeigu. Gisting getur verið fyrir allt að 45 gesti. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha.
6. Úthlíð 1 L167180; Frístundabyggð svæði 5a; Deiliskipulag – 2302034
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
hluta frístundabyggðar í landi Úthlíðar 1 L167180. Innan svæðisins sem deiliskipulagið tekur til eru lóðir við göturnar Djákna-
hlíð, Djáknaveg, Djáknabrúnir, Mosabrúnir og Mosaskyggni. Á svæðinu er deiliskipulag í gildi, við gildistöku þessa skipulags
fellur úr gildi sá hluti sem tekur við framlagðs deiliskipulags innan núgildandi deiliskipulags.
7. Bjarnastaðir 1; Tjarnholtsmýri 1-15; Landbúnaðarsvæði; Skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingarheimilda;
Deiliskipulag – 2301077
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipu-
lags sem tekur til lóða við Tjarnholtsmýri 1-15. Í deiliskipulaginu felst skilgreining lóðarmarka, byggingarreita og byggingar-
heimilda. Heimilt verður að byggja íbúðarhús með bílageymslu/geymslu og aðstöðuhús/hesthús. Nýtingarhlutfall lóða má
vera allt að 0,05.
8. Sjónarhóll L198871; Nýr byggingarreitur og skilmálar; Eldri viðbætur; Deiliskipulagsbreyting – 2301071
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu deiliskipulagsbreytingar vegna
bæjartorfu Sjónarhóls L198871 í Ásahreppi. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur B3 innan marka deili-
skipulagsins. Innan reitsins er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarbygginga tengdar starfsemi búsins.
9. Holtakot lóð L176853; Skilgreining lóðar og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301081
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur
til 5,8 ha lóðar Holtakots lóð L176853. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarheimilda innan svæðisins þar sem gert
er ráð fyrir að heimilað byggingarmagn á svæðinu verði allt að 1000 m2, hámarksnýtingarhlutfall er um 0,017. Leyfi er fyrir
sex byggingum og hámarksstærð hverrar byggingar er 200 m2. Heimilt er að byggja íbúðarhús ásamt mögulegu gestahúsi,
gróðurhúsi, geymslu og frístundahúsi. Umrædd lóð er samkvæmt aðalskipulagi bæði innan frístundasvæðis og landbún-
aðarsvæðis.
10. Vallarás (Ásmúli lóð 3) L192728; Skilgreining lóða og byggingarskilmálar; Deiliskipulag – 2301053
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
lands Ásmúla lóð 3 L192728 í Ásahreppi. Samhliða er óskað eftir því að staðfangið Vallarás verði notað innan svæðisins. Í
deiliskipulaginu felst heimild til að stofna 7 landspildur út úr Vallarási (Ásmúla lóð 3) og munu þær fá nafnið Vallarás 1-7,
spildurnar eru um 6 ha hver. Heimilt er að hafa fasta búsetu á spildunum og stunda þar landbúnaðartengda starfsemi eða
annan minniháttar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði.
11. Hlíðarás (Berustaðir 2 land 1) L207089; Skilgreining lóða og byggingarheimildir; Deiliskipulag – 2301052
Hreppsnefnd Ásahrepp samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til
Hlíðaráss (Berustaðir 2 - land 2) L207089. Innan deiliskipulags er gert ráð fyrir byggingarheimildum fyrir íbúðarhús auk véla-
reið- og/eða tamningaskemmu allt að 800m², hámarkshæð er 6,5m. Hesthús eða gripahús má vera allt að 300m², hámarks-
hæð húss er 6m. Gestahús má vera allt að 80m², hámarkshæð húss er 5,5m.
12. Engjavatn L218342; Byggingarreitur og byggingarmagn; Deiliskipulag – 2302002
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. mars 2023 að auglýsa tillögu nýs deiliskipulags sem tekur til land-
spildunnar Engjavatns L218342. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingarreit undir íbúðarhús ásamt bílgeymslu og hesthúsi.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofu-
tíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum
sveitarfélaganna, www.asahreppur.is www.blaskogabyggd.is, www.floahreppur.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is.
Mál 1-3 innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 6. apríl 2023.
Mál 4-12 innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 16. mars 2023 með athugasemdafrest til og með 28. apríl 2023.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið
skipulag@utu.is
Vigfús Þór Hróbjartsson
Skipulagsfulltrúi UTU
Þessa dagana fer fram Sálfræðiþing
þar sem sálfræðingar hittast og bera
saman bækur sínar, nýjustu rann-
sóknir eru kynntar og fjallað er um
þróun sálfræðiþjónustu. Ein mikil-
vægasta þróun sálfræðiþjónustu í
landinu fer fram þessi misserin á
heilsugæslustöðvum landsins.
Þriðjungur þeirra sem leita á
heilsugæslu leitar þangað vegna
tilfinningavanda svo sem vegna
einkenna þunglyndis, kvíða og
áfallastreituröskunar. Samkvæmt
klínískum leiðbeiningum er mælt
með því að meðhöndla fólk sem
leitar til heilsugæslunnar með væg
til miðlungs einkenni þunglyndis,
kvíðaraskanir og áfallastreiturösk-
un með gagnreyndum sálfræðimeð-
ferðum.
Það var mikið fagnaðarefni
þegar það framfaraskref var stigið
að ráða fyrstu sálfræðingana inn
í heilsugæsluna til þess að veita
þessa mikilvægu þjónustu og geta
boðið hana í stað og/eða samhliða
lyfjameðferð sem mikið aðgengi er
að. Frá upphafi hefur almenningur
haft mjög takmarkað aðgengi að
gagnreyndum meðferðum sálfræð-
inga hér á landi og löngu tímabært
að byggja upp aðgengi að þessari
mikilvægu þjónustu. Vegferðin er
hafin en enn vantar mikið upp á til
að þjónustan sé tryggð og aðgengileg
fyrir almenning. Mikilvægt er að
tryggja þjónustuna sem allra fyrst
í samræmi við það sem gert hefur
verið í nágrannalöndunum, svo sem
í Bretlandi, Noregi, Svíþjóð og víðar
með góðum árangri undanfarin tæp
tuttugu ár.
Uppbygging byggð
á rannsóknum
Fyrsti sálfræðingurinn sem sinnti
fullorðnum í heilsugæslu hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins var
ráðinn inn 2017 og fljótlega stækk-
aði hópurinn og óx undir styrkri
forystu dr. Agnesar Agnarsdóttur
sérfræðings í klínískri sálfræði sem
skrifaði doktorsverkefni sitt um
þörf fyrir sálfræðiþjónustu í heilsu-
gæslu á Íslandi árið 1997. Rannsókn
undirritaðrar um algengi tilfinn-
ingavanda í heilsugæslu á Íslandi frá
2011 sýndi fram á svipaðar niður-
stöður og áður höfðu birst í rann-
sókn Agnesar um að þriðjungur
þeirra sem leitar aðstoðar í heilsu-
gæslu er þar vegna tilfinningavanda.
Í doktorsverkefni dr. Hafrúnar
Kristjánsdóttur sem ber heitið Að
bæta aðgengi að sálfræðimeðferð
í heilsugæslu með ósérhæfðri hug-
rænni atferlismeðferð í hóp er sýnt
fram á að hinn íslenski ÓHAMH-
meðferðavísir er árangursríkur og
hentar fólki með þunglyndis- og
kvíðaraskanir og hann gæti því
reynst gagnlegur ef auka á aðgengi
sjúklinga í heilsugæslu að gagn-
reyndri sálfræðimeðferð. Mikilvægt
er að ráðast í áframhaldandi rann-
sóknir á þessu sviði hér á landi.
Sálfræðingar stýri uppbyggingu
sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Uppbygging sálfræðiþjónustu í
heilsugæslu undanfarin 6 ár hefur
reynst talsverð áskorun af mörgum
ástæðum. Það er áskorun fyrir nýja
heilbrigðisstétt að koma inn í heil-
brigðisþjónustu sem fest hefur verið
í sessi um áraraðir undir stjórn
annarra fagstétta. Til þess að sál-
fræðiþjónusta í heilsugæslu virki
sem skyldi þurfa nokkur lykilatriði
að vera til staðar. Fyrst og fremst
þurfa sálfræðingar sjálfir að leiða
uppbygginguna, sinna fagstjórn
og vera hluti af stjórnendateymum
heilsugæslunnar. Mönnunin þarf
að vera nægjanleg til að hægt sé
að bjóða þjónustu innan 6 vikna
og f læði sé í þjónustunni. Í fyrir-
myndarverkefni sem byggt hefur
verið upp í Bretlandi frá 2006 um
aukið aðgengi almennings að sál-
fræðimeðferðum er miðað við einn
sálfræðing á hverja 6.250 íbúa í
þjónustu við fullorðna og annan í
þjónustu við börn. Undanfarið hafa
verið tæp 16 stöðugildi sálfræðinga
í fullorðinsþjónustu á Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins en þyrftu að
vera að minnsta kosti 30 auk mun
meiri stoðþjónustu og fagstjórn-
enda. Taka þarf tillit til þess að þjón-
ustuþörfin er uppsöfnuð, byggja
þarf upp skilvirkni og afleiðingar
heimsfaraldurs auka þungann.
Þeir sálfræðingar sem starfa á heil-
brigðisstofnun þurfa að hafa greitt
aðgengi að þjálfun, handleiðslu og
fræðslu til að tryggja gæði þjónust-
unnar. Sömuleiðis þarf að tryggja
samræmingu á milli stöðva og hafa
virk mælaborð til að mæla flæði og
árangur.
Því miður hefur verið tekist á um
ýmis grundvallaratriði varðandi
uppbygginguna, staða fagstjóra
sálfræðiþjónustu var lögð niður,
skort hefur á mannaf la og stoð-
þjónustu sem hefur komið niður á
þjónustunni og hægt á uppbyggingu
hennar.
Við sem störfum í heilsugæslunni
og er annt um þessa uppbyggingu
hvetjum almenning og heilbrigðis-
yfirvöld til þess að tryggja þessa
mikilvægu uppbyggingu með okkur
enda þörfin rík og arðsemin óum-
deild. n
Uppbygging
sálfræðiþjónustu
í heilsugæslu
Kristbjörg
Þórisdóttir
sálfræðingur
FRÉTTABLAÐIÐ SKOÐUN 1316. MARS 2023
FIMMTUDAGUR