Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 20
Sigmar Freyr Jónsson er
vanur kraftlyftingamaður
sem hefur þurft að takast á
við mikla verki í líkamanum.
Eftir endurhæfingu fór hann í
OsteoStrong til þess að kom-
ast aftur af stað í æfingar.
„Ég hef alla tíð verið mjög mikið í
hreyfingu og lyftingum. Þrátt fyrir
að hafa líka alltaf verið verkjaður í
mjóbaki síðan ég var unglingur út
af snúningi í mjöðm. Eiginlega eins
og það hangi alltaf einhver þarna
aftan í mér. Ég var alltaf að reyna að
harka það af mér. Einhvern veginn
var upplifunin sú að mér væri
alltaf refsað fyrir það sem ég lagði á
líkamann,“ segir Sigmar.
„Í langan tíma hef ég ekki getað
sinnt almennilega líkamsrækt.
Kannski tekið eina eða tvær
æfingar og svo vildi líkaminn ekki
meira. Ég stífnaði allur upp og það
er bara ekki þess virði. Þegar ég fer
í ræktina er eins og ég sé að stelast
til að gera eitthvað sem ég má ekki.
Það er óþægileg tilfinning að finna
að maður rýrnar allur og hrörnar af
æfingaleysi en ég treysti mér samt
ekki til að æfa,“ segir Sigmar enn
fremur.
Nýtti mér alla hjálp
„Fyrir nokkru þurfti ég að breyta
um stefnu í lífinu og skráði mig á
sjóinn. Ég vann þar í tvö ár en við
alla hreyfinguna í sjónum gáfust
mjaðmirnar upp. Ég stífnaði allur
og hætti að geta unnið og þurfti
því að fara í stífa endurhæfingu. Ég
tók hana mjög alvarlega og nýtti
mér alla þá hjálp sem ég gat fengið.
Það var ekkert einfalt því allt sem
ég gerði kom af stað bólgum og
verkjaköstum. Ég stundaði jóga, fór
á námskeið hjá Primal, sökkti mér
í öndunaræfingar, leitaði til vinar
míns sem er nuddari, las fullt og
lærði annað á netinu. Þannig náði
ég aðeins að rétta mig til baka.“
Þekkt hugmyndafræðina í 15 ár
„Ég hafði fylgst með OsteoStrong
í töluverðan tíma. Þegar ég var
kominn vel á veg í endurhæfing-
unni og langaði til þess að fara að
æfa líkamsrækt þá stoppaði ég mig
af og fór fyrst í OsteoStrong til þess
styrkja grunninn og minnka líkur
á að mistakast,“ útskýrir Sigmar
og bætir við: „Fyrir um 15 árum
kynntist ég hugmyndafræðinni um
það hvað vöðvarnir eru missterkir
eftir því hvernig þeim er beitt. Mér
fannst það svo spennandi að ég fór í
GYM 80 til þess að prófa mig áfram
og fann mikinn árangur. En það var
ekki frábær aðstæða fyrir þessar
æfingar. Í OsteoStrong er búið að
gera þetta allt miklu aðgengilegra,
öruggara, einfaldara og þannig lík-
legra til árangurs.“
Þolinmóður í þrjá mánuði
„Mér var strax sagt í prufutímanum
að ég þyrfti alla vega að koma í þrjá
mánuði til þess að finna verulegan
mun á mér þannig að ég keypti kort
og lofaði sjálfum mér að gefa líkam-
anum þann tíma áður en ég byrjaði
að taka aðrar æfingar. Ég fann strax
hvernig orkan magnaðist en það
tók mig alveg þrjú skipti að líða
virkilega vel eftir æfingarnar. Það
eru ekki bara vöðvarnir sem finna
fyrir átakinu heldur taugakerfið
líka. Ég var samt strax svo spenntur
yfir því hversu betur mér leið eftir
fyrstu skiptin að ég sótti bara um
vinnu í OsteoStrong sem ég var
alsæll með að fá,“ segir Sigmar.
Allt í einu er kveikt á öllu
„Ég beið spenntur eftir að klára
mánuðina þrjá til þess að sjá hvað
líkaminn þyldi. Það var því alger
hátíð hjá mér þegar ég gerði til-
raun í byrjun fjórða mánaðarins.
Ég fór á æfingu og náði að gera
æfingu fjóra daga í röð! Í nokkur
ár hafði reglan verið að lyfta aldrei
í tvo daga í röð en ég náði fjórum
og það fór mjög vel í mig. Fannst
það ekki nóg og fór líka í einhverja
jógatíma og kom við í Thors Power
Gym með konunni minni. Var að
ýta og draga sleða og lyfta sand-
pokum. Í endurhæfingunni var
ég alltaf að nota 60 kg poka en nú
hljóp ég fram og til baka með 80
kg poka.
Líður eins og ég sé í nýjum
líkama
Vikuna á eftir komst ég líka á
æfingu. Þá fann ég um leið að nú
var eins og það væri kveikt á öllu.
Geggjuð tilfinning að vera aftur
mættur og finna líkamann vinna
með sér. Allt í einu er stór hluti af
mér kominn til baka inn í lífið. Ég
er orðinn svo sterkur og stöðugur
og þá er allt í einu pláss fyrir svo
mikinn vöxt. Styrktarmunurinn er
það mikill að mér líður eins og ég sé
í nýjum líkama.“
Allir í OsteoStrong
„Núna vil ég bara helst ná í alla sem
ég þekki og fá þá í OsteoStrong. Ég
veit að þessar æfingar hjálpa öllum
félögum mínum úr lyftingunum
hvar sem þeir eru staddir á ferlinum
en líka öðrum sem finna fyrir
óþægindum í líkamanum eða bara
vilja koma sér af stað í hreyfingu.
Margir hafa gengið mjög nærri
sér með stífum æfingu. Til dæmis
þeir sem hafa verið að keppa í
kraftlyftingum. Oft leyfir líkaminn
þeim ekki að taka á eins og áður og
þá er svo gott að geta komið hingað
og virkjað alla vöðvana í sinni
sterkustu stöðu til að finna ávinn-
ing af þungum æfingum án þess að
fá slitið á líkamann í leiðinni.
Styrkur án slits
Með því að ástunda OsteoStrong
er hægt að byggja upp svo mikinn
styrk og virkja svo „motor-unit“ í
vöðvunum án þess að þræla þér of
mikið út. Næstum eins og svindl til
þess að hafa meiri orku til að gera
aðrar æfingar. Maður finnur það
í líkamanum dagana eftir æfing-
arnar að maður er að styrkjast og
byggjast upp.
Ég er í yndislegu sambandi og er
svo heppinn að vera fósturpabbi
sem ég er þakklátur fyrir. Ég hef
áhuga á jóga, alls kyns æfingum
og andlegri heilsu. Bæði af því að
ég hef þurft þess og líka af því að
ég sé alla vaxtarmöguleikana því
tengda. Eitt að því sem mér finnst
spennandi Í OsteoStrong er hvernig
eldra fólk er að ryðja brautina fyrir
þá yngri. Oft er það yngra fólkið
sem skapar tískuna en núna er það
öfugt. OsteoStrong á erindi við
alla,“ segir Sigmar.
Frír prufutími
„Ég vil fá alla í OsteoStrong. Það eru
svo margir sem geta grætt á því að
stunda þessar æfingar.“
OsteoStrong býður upp á prufu-
tíma í Hátúni 12 á fimmtudögum
og Ögurhvarfi 2 á föstudögum.
Prufutíma má bóka í síma 419 9200
og á www.osteostrong.is n
OsteoStrong kveikir á öllu kerfinu
Sigmar Freyr fór að vinna hjá OsteoStrong þegar hann kynntist starfseminni. Svo vel leist honum á. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Með OsteoStrong er hægt að virkja alla vöðva líkamans.
Flestir geta nýtt sér það sem
OsteoStrong býður upp á, fólk
á öllum aldri óháð líkamlegri
getu.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka líkur á álags-
meiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Lækka langtímablóðsykur
n Auka beinþéttni
4 kynningarblað 16. mars 2023 FIMMTUDAGURHEILSUR ÆKT