Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 12
Með öðrum orðum,
rökin byggjast á tækni-
nauðhyggju en horft er
fram hjá öðrum mikil-
vægum þáttum í starf-
semi safna af þessu
tagi.
– Ég ákæri Dag B. Eggertsson borg-
arstjóra fyrir þann óskiljanlega
gjörning að keyra í gegnum borgar-
ráð ákvörðun um að leggja Borgar-
skjalasafnið niður fyrir nokkrum
dögum.
– Ég ákæri borgarstjórnarmeiri-
hlutann fyrir að ganga í þá gildru
að samþykkja þá ráðstöfun að
leggja þessa mikilvægu menning-
arstofnun niður og beita við það
brögðum þegar málinu var rennt í
gegnum borgarstjórn á mettíma og
án mikillar umræðu.
– Ég ákæri þá fulltrúa meirihlut-
ans í borgarstjórn sem réðust með
andstyggilegum hætti að borgar-
skjalaverði, Svanhildi Bogadóttur,
sem hefur í áratugi byggt upp safnið
ásamt sínu starfsfólki af mikilli elju
og natni.
– Ég ákæri borgarstjórnarflokk
Pírata fyrir að fórna sannfæringu
sinni um mikilvægi upplýsinga- og
lýðræðisstofnana á borð við Borgar-
skjalasafnið fyrir völd og áhrif.
– Ég ákæri borgarstjórnarflokk
Samfylkingarinnar fyrir að falla frá
hugmyndum um mikilvægi menn-
ingar í landinu þegar hann stóð að
þessari vanhugsuðu ákvörðun að
snúa Borgarskjalasafnið niður.
Lesendur góðir – hvers vegna
skyldi prófessor í menningarsögu
við Háskóla Íslands standa upp frá
borði sínu, steyta hnefa framan í
mann og annan og krefjast þess að
ákvörðun löglega kjörinna stjórn-
málamanna verði dregin til baka?
Ástæðan er einföld. Ég gjörþekki
málið og hef komist að þeirri niður-
stöðu að hér hafi verið höfð brögð
í taf li. Ég hef líka kynnt mér mála-
vöxtu, hvað liggi þessari ákvörðun
að baki, og ég sé að plaggið sem
þetta mál byggir á og samið var
af endurskoðunarskrifstofu úti í
bæ, er hrákasmíð. Ég óskaði fyrir
nokkrum dögum eftir því að einn
fulltrúi í borgarstjórn, Árelía Eydís
Guðmundsdóttir, dósent við Við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands,
útskýrði fyrir háskólasamfélaginu
hvers vegna hún stóð að þess-
ari vanhugsuðu ákvörðun. Það
hefur hún gert og svar hennar er
því miður fullt af missögnum og
af hjúpar lítinn skilningi á mikil-
vægi Borgarskjalasafnsins. Mér
fannst nauðsynlegt að óska eftir
svari hennar á póstlista Háskóla
Íslands því að með ólíkindum má
telja að manneskja sem tilheyrir
vísindasamfélaginu gæti stutt mál
af þessu tagi.
En um hvað snýst þá málið? Borg-
arstjóri og borgarstjórn hafa sam-
þykkt að leggja Borgarskjalsafnið
niður á þeim forsendum að það
myndi kosta stórkostlega fjármuni
að halda því gangandi á næstu árum
eða áratugum. Skjalasöfn landsins
stæðu frammi fyrir nýrri áskorun
sem tengist hinni stafrænu byltingu
og því væri þetta safn betur komið
í höndum starfsmanna Þjóðskjala-
safns Íslands. Með öðrum orðum,
rökin byggjast á tækninauðhyggju
en horft er fram hjá öðrum mikil-
vægum þáttum í starfsemi safna af
þessu tagi.
Hverjir skyldu þeir þættir þá vera?
Um leið og borgarstjórn Reykjavík-
ur snýr þessa stofnun niður og ætlar
henni að hverfa inn á vettvang Þjóð-
skjalasafns þá missum við tökin á
því mikilvæga starfi sem unnið er
í Borgarskjalasafninu við að þjóna
nærsamfélaginu – okkur íbúum
Reykjavíkur – og í leiðinni menn-
ingu, vísindum og fræðum. Lykill-
inn að starfi Borgarskjalasafnisins
er sérstaða þess og nálægðin við
verkefnið; að halda utan um líf íbúa
Reykjavíkur bæði í gegnum stofn-
anir Borgarinnar og einkaskjöl sem
tilheyra okkur. Það er þekkt að þessi
tengsl við söfnin skipta sköpum við
öflun gagna, varðveislu þeirra og
miðlun. Þetta vita allir sem eitt-
hvað hafa komið nálægt safnageir-
anum; vísindamenn, safnafólk og
almennir notendur. Rannsóknir á
einkaskjölum hafa gríðarleg áhrif á
ritun sögunnar og hvernig við skilj-
um fortíðina. Þau eru lykilheimildir
á vettvangi hug- og félagsvísinda.
„Einnig hefur það vafist fyrir
mörgum að gögnum sé dreift um
of,“ sagði Árelía Eydís í skeyti sínu
á póstlista Háskóla Íslands fyrir
nokkrum dögum og nefndi þar
gögn Ólafs Thors sérstaklega – þau
ættu frekar heima í Þjóðskjalasafni.
Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson,
Björn Þórðarson og f leiri stjórn-
málamenn voru allir opinberar
persónur en einnig einstaklingar
með sína sögu og sín einkaskjöl
sem bjuggu og störfuðu í Reykja-
vík. Bjarni Benediktsson var meira
að segja borgarstjóri eins og kunn-
ugt er en ættingjar þessara manna
hafa kosið, með mjög góðum rökum
að ég tel, að vista þessar mikilvægu
heimildir á vettvangi Borgarskjala-
safnsins. Þeir kusu að fara með þessi
gögn þangað en ekki í Þjóðskjala-
safnið. Engum vafa er undirorpið
að Björn Bjarnason fyrrverandi
menntamálaráðherra áttaði sig
fullkomlega á starfsemi Þjóðskjala-
safnsins – hann og hans fjölskylda
kusu að varðveita einkaskjalasafn
föður síns í Borgarskjalasafninu
vegna þess að samkvæmt hlut-
verkum þess áttu heimildir hans
best heima þar.
Til að skýra þetta ögn betur þá er
meginreglan sú að Þjóðskjalasafnið
varðveitir opinber skjöl frá öllu
landinu, Borgarskjalasafnið heldur
utan um heimildir sem tilheyra
stofnunum Reykjavíkurborgar og
leiðbeinir þeim um varðveisluna.
Þjóðskjalasafninu hefur einnig
borist nokkuð af einkaskjölum í
gegnum tíðina sem það varðveitir
en það er samt aukageta hjá safn-
inu. Borgarskjalasafnið safnar hins
vegar markvisst einkaskjölum frá
okkur borgarbúum og leitast við
að komast yfir slíkar heimildir
eins og í tilfelli ofangreindra stjórn-
málamanna og einnig almennra
borgara. Og þarna kemur styrk-
leiki Borgarskjalasafnsins einmitt
fram, tengslin við okkur borgarana
frá fyrstu tíð, svo sem í gegnum
skólakerfið. Safnið stendur okkur
nefnilega nærri þar sem það varð-
veitir heimildir um hvern og einn
íbúa Reykjavíkur.
Nú fáum við hins vegar fregnir
af því að meirihluta borgarstjórnar
finnist gögnin vera of dreifð. Hvers
konar rök eru það? Hvað heldur
meirihlutinn í borgarstjórn að
forsvarsmenn Samtakanna ‘78,
Alnæmissamtakanna og fleiri hópa
sem hafa kosið að fela Borgarskjala-
safninu og sérhæfðum starfsmönn-
um þess að varðveita viðkvæm gögn
þeirra segi um þessa ráðstöfun?
Verður ef til vill farið að ráðum „sér-
fræðinganna“ sem sömdu skýrsluna
um að leggja safnið niður, að þessi
gögn og önnur einkaskjöl verði
afhent yfir afgreiðsluborðið í Borg-
arbókasafninu?
Hér stendur ekki steinn yfir steini
og þó hef ég aðeins tæpt stuttlega
á nokkrum atriðum. Auðvitað er
ekkert nema sjálfsagt að héraðs-
skjalasöfn, eins og Borgarskjala-
safnið, vinni með Þjóðskjalasafni
að áskorunum framtíðar. Að hefja
þá samvinnu á að leggja Borgar-
skjalasafnið niður er hrein fjar-
stæða, vanhugsuð ákvörðun sem
er svo alvarleg að krefjast verður að
borgarstjórn dragi þessa ákvörðun
sína til baka. Það sem svíður ef til
vill mest er hvað skilningurinn á
merkingu Borgarskjalasafns fyrir
menningarlíf Reykjavíkur er lítill,
hvað skeytingarleysið fyrir þýðingu
safnsins fyrir vísindastörf í landinu
er yfirþyrmandi og hvað virðingar-
leysið fyrir starfi fólksins sem hefur
lagt líf sitt og sál í uppbyggingu
safnsins er algjört. n
Ég ákæri
Sigurður Gylfi
Magnússon
prófessor í menn-
ingarsögu við
Háskóla Íslands
Skarfagarðar 6, 8 og 10
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 25. janúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 2. febrúar 2023
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna lóðanna nr.
6, 8 og 10 við Skarfagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna, afmörkun lóðar breytist
og stækkar til norðurs, bætt er við nýjum byggingarreit og núverandi byggingarreitur fellur niður. Nánar um
tillöguna vísast til kynningargagna.
Vesturgata 61
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 22. febrúar 2023 og borgarráðs Reykjavíkur þann 2. mars 2023
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits vegna
lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir
þ.e. Vesturgata 61 og Seljavegur 8. Á hvorri lóð er skilgreindur byggingarreitur og leyfilegt að byggja eitt
íbúðarhús innan hvors reits. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Vakin er athygli á að verið er að
endurauglýsa tillöguna þar sem rangur uppdráttur var til kynningar með fyrri auglýsingu.
Tillögurnar má nálgast á vefnum, www.reykjavik.is, undir skipulag í kynningu. Einnig má nálgast tillögurnar
á tölvuskjá hjá þjónustufulltrúa í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, mánudaga til
fimmtudaga kl. 8:30 – 16:00 og föstudaga kl. 8:30–14:30 frá 16. mars 2023 til og með 5. maí 2023. Eru þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar
en 5. maí 2023. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 16. mars 2023
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipula ssvið
Auglýsing um tillögur
að breyttu deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér
með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
12 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR