Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 16.03.2023, Blaðsíða 22
Það stendur mikið til hjá nokkrum hlaupurum úr FH en í byrjun næsta mánaðar fer fimm manna hópur frá Hafnarfjarðarliðinu í æfinga- ferð til Kenía ásamt þjálfar- anum, Sigurði P. Sigmunds- syni, sem í mörg ár gerði það gott í langhlaupunum og er þrautreyndur í bransanum. gummih@frettabladid.is Hlaupahópur FH verður við æfing- ar í Kenía í þrjár vikur en tveir úr hópnum ætla að dvelja í Afríku- ríkinu í sex vikur. FH-ingarnir munu dvelja í Iten sem liggur í um 2.500 metra hæð yfir sjávarmáli. Í Iten eru þekktar æfingabúðir þar sem margir helstu hlauparar Kenía stunda æfingar sem og hlauparar frá öðrum löndum. „Það verður spennandi tækifæri fyrir hlauparana að kynnast því að æfa í þynnra lofti en venjulega, kynnast framandi aðstæðum og æfingum fremstu hlaupara í heimi, aganum sem þeir búa yfir og mataræði þeirra,“ segir Sigurður. Sigurður hefur verið að þjálfa meistaraflokk FH í millivegalengd- um og langhlaupum frá árinu 2020 og segist hann vera kominn með mjög sterkan hóp og þá sérstaklega í kvennaflokki, sem hefur verið að vinna flestalla titla undanfarið. Fyrsti hópurinn sem fer til Kenía „Það er búinn að vera góður kraftur í þessu starfi og ég hef verið að byggja upp góða hlaupa- grúppu. Nú er heldur betur farið að styttast í þessa ferð okkar til Kenía og þetta verður í fyrsta skipti sem hópur frá Íslandi fer til æfinga í Kenía,“ segir Sigurður og bætir við: „Kenía og Eþíópía eru aðal- uppsprettulöndin að milli- vegahlaupurum og sérstaklega langhlaupurum í gegnum tíðina. Maður hefur lengið hugsað um að fara til Kenía og nú er loksins að verða af því. Markmiðið er að sjá hvernig áhrif það hefur á hópinn að æfa við þessar aðstæður. Við munum æfa tvisvar sinnum á dag með styrktar- og teygjuæfingum í bland við hlaupin. Það verður svo gaman að sjá hverju þetta skilar í maí. Það er oft talað um það að árangurinn sé eitthvað aðeins betri en þá er blóðið súrefnisríkt. Þetta verður spennandi tilraun og verður agi á mannskapnum að ein- beita sér að þessu í nokkrar vikur.“ Sigurður segir markmið hópsins sem fer til Kenía að verða valinn til keppni á Smáþjóðaleikunum sem fram fara á Möltu 28. maí til 4. júní og síðan er Evrópukeppni landsliða í Póllandi 20. til 22. júní. „Krakkarnir ættu að verða í topp- formi í lok maí ef allt gengur upp,“ segir hann. Sigurður segir að Valur Elli Vals- son, einn þeirra fimm hlaupara sem eru á leið til Kenía, hafi fyrstur komið með hugmyndina um að fara í þessa ferð. „Valur er 24 ára, er með mikið frumkvæði og er í stjórn frjálsíþróttadeildarinnar. Honum datt þetta í hug og þá var maður ekki lengi að taka við keflinu.“ Tíu mánaða undirbúningur Sigurður segir að það sé kominn mikill spenningur í fólk fyrir ferðinni til Kenía. „Við byrjuðum að undirbúa þessa ferð síðastliðið vor svo þetta er búinn að vera tíu mánaða undirbúningur. Það er að mörgu að hyggja eins og flugi, gistingu og ýmsu öðru. Ég skynja mikinn spenning í hópnum og fyrir mig sem gamlan áhugamann og hlaupara verður gaman að upplifa þetta. Ég fór aldrei í háloftaæfingar eða eitthvað slíkt og ég er spenntur að sjá hvernig þetta virkar, hvort þetta sé eitthvað sem skiptir máli og hvaða áhrif þetta hafi á fólk. Ég mun punkta allt niður hjá mér og læri vonandi eitthvað af þessari ferð. Keppnistímabilinu hér heima innanhúss er að ljúka og um helg- ina verður bikarkeppnin á dagskrá. Svo tekur bara við undirbúningur fyrir sumarið,“ segir Sigurður Pétur, sem nýlega tók við formennsku í frjálsíþróttadeild FH. Þau sem fara til Kenía ásamt Sigurði og Vali Ella eru Nick Gísli Jansen, Elín Sóley Sigurbjörnsdótt- ir, Íris Dóra Snorradóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir. FH-hópurinn mun hitta tvo landa sína í Kenía, þá Arnar Pétursson úr Breiðabliki og ÍR-inginn Vigni Má Lýðsson, en þeir hafa báðir áður verið í Iten í Kenía við æfingar. n Á leið í æfingabúðir til Kenía Hópurinn sem er á leið til Kenía. Frá vinstri: Valur Elli Valsson, Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir, Sigurður P. Sigmundsson, fararstjóri og þjálfari, Íris Dóra Snorra- dóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir. Á myndina vantar Nick Gísla Jansen. MYND/AÐSEND Fjarþjálfun fyrir bakið Við vinnum að því að bæta líkams- stöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund á sama tíma og við aukum styrk, stöðugleika og liðleika líkamans. Dr. Harpa Helgadóttir, PhD, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í stoðkerfisfræðum, kennir háls- og bakæfingar í þriggja mánaða fjar- þjálfun. „Þú getur byrjað hvenær sem er og færð heimaæfingar og fræðslu- myndbönd frá mér í hverri viku,“ segir Harpa. „Ég leiði þig í gegnum æfingar sem byggja stoðkerfið upp á heildrænan máta en þú velur á milli þess að leggja áherslu á bakið, mjaðmagrind og fótleggi eða á háls, efra bak og axlir.“ Harpa segir æfingarnar geta verið mjög einfaldar og léttar, allt frá æfingum þar sem setið er á stól eða með stuðning, yfir í fjöl- breyttar og kröftugar styrktar- og stöðugleikaæfingar með lóðum. „Við vinnum að því að bæta líkamsstöðu, líkamsbeitingu og líkamsvitund á sama tíma og við aukum styrk, stöðugleika og lið- leika líkamans. Ég fer einnig með þér í gegnum jafnvægisæfingar, öndunaræfingar, djúpvöðvaæf- ingar, nudd og teygjur sem minnka vöðvaspennu og draga úr stífleika í liðum,“ segir Harpa. „Ef þú hefur háls- eða bakverki er mikilvægt að æfingarnar séu hæfilega erfiðar og að álagsþol stoðvefjanna sé byggt upp smám saman. Ef þú hefur ekki verki getur þú byggt álagsþolið upp hraðar og farið á svokallaða „Hraðbraut“. Einnig getur þú valið að gera upp- hitun með dansívafi sem minnkar vöðvaspennu, dregur úr stífleika í liðum og er því gott að gera sam- hliða styrktar- og stöðugleika- æfingum. Ef þú átt erfitt með að gera æfingar í standandi stöðu er til- valið að gera dýnuæfingar, æfingar sitjandi á stól eða standandi í stutt- an tíma með stuðningi við borð eða vegg. Æfingar í sundlaug eru einnig góðar þar sem við vegum aðeins einn tíunda af líkams- þyngdinni þegar við stöndum með vatnsyfirborðið í axlarhæð. Vatnið veitir okkur stuðning en einnig mótstöðu í æfingum. Það þarf að eiga airpods (Bluetooth- heyrnartól) til að hlusta á mig leiða æfingarnar í laug,“ segir Harpa og bætir við að myndbönd af æfing- unum fylgi einnig með. Mikilvægt er að æfingar séu hæfilega erfiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Dr. Harpa Helgadóttir hefur starfað við greiningu og meðferð fólks með háls- og bakverki frá því hún lauk sérfræðinámi í stoðkerf- isfræðum árið 2000. Doktorsgráðu lauk hún árið 2010 frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði starfsemi háls, efra baks og axla hjá fólki með hálsverki. Harpa hefur kennt Háls- og bakleikfimi í 30 ár og hefur þróað æfingakerfi sem byggir kerfisbundið upp álagsþol stoðvefja. Æfingarnar byggja á vísindalegum grunni og nýjustu þekkingu í þjálfun fólks með háls- og bakvandamál. Harpa kennir Háls- og bakleik- fimi í Heilsuklasanum við Bílds- höfða og í sundlauginni í Boða- þingi, Kópavogi. n Upplýsingar og skráning: www.bakleikfimi.com Það verður spenn- andi tækifæri fyrir hlauparana að kynnast því að æfa í þynnra lofti en venjulega, kynnast framandi aðstæðum og æfingum fremstu hlaup- ara í heimi. Sigurður P. Sigmundsson 6 kynningarblað 16. mars 2023 FIMMTUDAGURHEILSUR ÆKT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.