Fréttablaðið - 18.03.2023, Síða 4

Fréttablaðið - 18.03.2023, Síða 4
150 milljónir króna voru greiddar fyrir jörðina Horn þar sem hluti Skessuhorns er. 12 prósenta aukning varð á umferð á höfuð­ borgarsvæðinu á árinu. 350 manns leita daglega til Kaffistofu Samhjálpar. 57 prósent atkvæða í for­ mannskjöri VR voru greidd Ragnari Ingólfs­ syni sitjandi formanni. 20 prósenta hækkun hefur orðið á verði lambakjöts á einu ári. Ólgan magnast upp og birtist í verulegu fylgis­ falli. Eiríkur Bergmann, stjórnmála- fræðingur ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 FIAT DOBLO SENDIBÍLAR • 3,4 M3 FLUTNINGSRÝMI • STIGALÚGA • HLIÐARHURÐ BÁÐUM MEGIN • 3JA MANNA • 7 ÁRA ÁBYRGÐ EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! AUKAHLUTIR Á BÍL: ÁLFELGUR OG ÞOKULJÓS AÐ FRAMAN Guðbjörg Rist Jónsdóttir framkvæmdastjóri íslenska efnafyrir- tækisins Atmonia hefur samið við sádiarabíska iðn- fyrirtækið Sabic um sölu á einka- rétti á nýrri og umhverfisvænni framleiðsluaðferð á ammoníaki sem Atmonia hefur fundið upp og þróað á síðustu árum. „Þetta eru kaflaskil í okkar starfsemi,“ segir Guðbjörg. „Samningurinn við Sádana er stór og kallar á meiri mannskap og fjármögnun.“ Arngrímur Vídalín Stefánsson lektor í íslenskum bókmenntum er forsvarsmaður undirskrifta- lista kennara við Háskóla Íslands sem vilja hindra að einkaskrif- stofur þeirra verði lagðar niður og þeir hafðir í opnu rými. „Við eigum að sitja saman í eins konar lobbíi sem lítur út eins og flugstöð eða mathöll með tölvurnar okkar fyrir framan alla,“ segir Arngrímur. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fékk ákúrur frá umboðsmanni Alþingis fyrir að hafa ekki borið breytingar á reglugerð um rafbyssur fyrir lögreglu undir samráðherra sína. „Þetta er alls enginn áfellisdómur yfir minni stjórnsýslu. Það er mikilvægt að hafa í huga að umboðsmaður kemst að þeirri niðurstöðu að ég hafi ekki brotið nein lög,“ segir Jón og bendir á að reglum um vopn lögreglumanna hafi verið breytt án umræðu í ríkisstjórn að minnsta kosti tvisvar. n TÖLUR VIKUNNAR | ÞRJÚ Í FRÉTTUM | Erfið ríkisstjórn, segir vara- þingmaður VG sem hefur sagt sig úr flokknum. Prófessor segir að grunngildi VG hafi orðið undir við samþykkt útlendingafrumvarpsins. bth@frettabladid.is ninarichter@frettabladid.is STJÓRNMÁL Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur og prófessor við Háskólann á Bifröst, segir að fjöldaúrsagnir úr Vinstri grænum séu í takti við þá erfiðleika sem Katr- ín Jakobsdóttir stríði við í stjórnar- samstarfinu með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. „Þetta eru viðbrögð við lagasetn- ingu sem VG stendur að og mætti segja að væri í andstöðu við grunn- gildi flokksins,“ segir Eiríkur. Tugir manna hafa sagt sig úr VG síðustu daga eftir að VG stóð að samþykkt útlendingafrumvarpsins sem varð að lögum í vikunni. Þar á meðal er varaþingmaðurinn Daníel E. Arnarsson. „Þetta er erfið ríkisstjórn, það verður að viðurkennast. Það hefur verið erfitt fyrir VG að vera í þessari ríkisstjórn af því að það hefur þurft að veita afslátt af ýmsum málum og semja um önnur mál. Sem er alveg eðlilegt þegar við erum með fjöl- flokka ríkisstjórn,“ segir Daníel. „Mér fannst þróunin vera í þá átt að ef maður er ekki 100 prósent með þeim, þá er maður orðinn á móti þeim.“ Daníel segist ekki enn skilja hvers vegna mikilvægt var að leggja þetta tiltekna frumvarp fram. Hann segir meðmælendur frumvarpsins sömu- leiðis ekki hafa svarað spurningum um gæði frumvarpsins umfram það sem samþykkt var 2016. „Flokkurinn er að nálgast það sem mætti kalla úlfakreppu,“ segir Eirík- ur. „Ólgan magnast upp og birtist í verulegu fylgisfalli.“ Katrín f lutti ræðu við setningu landsþings VG á Akureyri í gær. Var engan bilbug á henni að finna. Eiríkur segir þó augljóst að Katrín sé á milli steins og sleggju og eigi engan góðan kost. Hún hafi skuldbundið sig í þessari ríkisstjórn, skuldbundið sig til að standa með Sjálfstæðis- flokknum og Framsóknarflokknum. „Á sama tíma þarf Katrín líka að standa vörð um grunnstefnu flokks- ins og þar er að gliðna á milli.“ Líklegast er að þessi vandræða- gangur haldi áfram að mati Eiríks ef VG slítur ekki ríkisstjórnarsam- starfinu. „Vinstri græn eru ekki óvön að standa frammi fyrir svona áskorun- um. Það gerist iðulega þegar vinstri flokkar taka þátt í ríkisstjórnarsam- starfi,“ segir Eiríkur. Meðal þeirra sem sagt hafa sig úr Vinstri grænum síðustu daga er Bjartur Steingrímsson. Hann er sonur stofnanda Vinstri grænna, Steingríms J. Sigfússonar. Bjartur var lengi virkur í ungliðastarfi flokksins og var á lista flokksins í Mosfellsbæ. Fylgi VG hefur mælst 6–7 prósent undanfarið. n VG sé í úlfakreppu og án góðra kosta Þetta er erfið ríkis­ stjórn, það verður að viðurkennast. Daníel E. Arnarsson, fyrrverandi vara- þingmaður VG Katrín Jakobsdóttir á engan kost góðan að sögn stjórnmálafræðings. Lagasetningin sem hún stóð að í vikunni stríði gegn grunngildum Vinstri grænna. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN 4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.