Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2023, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 18.03.2023, Qupperneq 10
helgisteinar@frettabladid.is SVISS Grameðlubeinagrindin Tri- nity verður seld á uppboði í sviss- nesku borginni Zürich þann 18. apríl næstkomandi. Uppboðið er það fyrsta sinnar tegundar sem fer fram í Evrópu og er búist við að beinagrindin seljist á 8,6 milljónir Bandaríkjadala. Beinagrindin er sett saman úr beinum sem fundust í Montana- og Wyoming-fylkjum milli 2008 og 2013. Rúmlega helmingur beina- grindarinnar samanstendur af þessum raunverulegu beinum en restin eru gervibein. Sumir vísindamenn hafa lýst yfir áhyggjum af sölunni og segja að verðið á beinagrindinni sé of hátt fyrir f lest söfn. Þeir segja að skyldi beinagrindin enda í vörslu ríks ein- staklings gæti það útilokað frekari rannsóknir á beinunum af hálfu vísindamanna. Hilmar Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúruminja- safns Íslands, segist ekki aðeins hafa áhyggjur af því að vísindamönnum kunni að verða meinaður aðgangur að beinagrindinni heldur gæti einn- ig svo farið að aðgengi almennings yrði takmarkað að henni. Þá er ekki heldur hægt að tryggja góða með- ferð á gripnum eftir sölu. „Ef svona gripir eru á vegum opin- berra safna þá þurfa þau að uppfylla ákveðnar skyldur og kröfur gagn- vart dýrgripum af þessu tagi, sem á ekki við um einkaaðila. Auðvitað geta sumir einkaaðilar staðið sig vel en það er ekki alltaf tryggt.“ Hann minnist þess þegar íslenska þjóðin safnaði saman og keypti geirfuglinn sem endaði á uppboði árið 1971 í London. Gripurinn er nú í vörslu Náttúruminjasafns Íslands og aðgengilegur almenningi. n Ef þú horfir á ferilskrá rússneska hersins eftir fall Sovétríkjanna þá er hún ekkert stórfengleg. Kirill Voronin, rússneskur grín- isti og frétta- maður Rússneski grínistinn Kirill Voronin segir heiminn hafa stórlega ofmetið rússneska herinn fyrir innrásina í Úkraínu. Hann vinnur nú sem fréttamaður fyrir lettn- eska fréttastöð sem framleiðir sjálfstætt efni á rússnesku. helgisteinar@frettabladid.is ÚKRAÍNA Kirill Voronin, rússnesk- ur grínisti og fréttamaður, segir í samtali við Fréttablaðið að helsta vandamál rússneska hersins í Úkra- ínu sé að herinn kunni einfaldlega ekki að heyja stríð á 21. öldinni. Hann telur einnig að Yevgeny Pri- gozhin, leiðtogi Wagner-hópsins, eigi ekki langt eftir ólifað eftir deilur hans við rússneska varnarmála- ráðuneytið. Orrustan við Bakhmút í austur- hluta Úkraínu hefur reynst lýsandi dæmi um þá erfiðleika sem rúss- neski herinn glímir nú við í stríðinu. Herinn hefur reynt að hertaka Bak- hmút undanfarna mánuði en bær- inn sjálfur þjónar litlum sem engum hernaðarlegum tilgangi. Að sögn úkraínskra yfirvalda falla rúmlega eitt þúsund rússneskir hermenn þar á hverjum degi. „Maður þarf alltaf að fara var- lega þegar kemur að svona tölum. Þetta er svipað og á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar þegar Sovét- ríkin fegruðu hlutina sér í hag til að reyna að stappa stálinu í almenning. Ég held samt að talan sé alveg pott- þétt einhvers staðar í kringum 700 á dag,“ segir Kirill. Hann segir að heimurinn hafi stórlega ofmetið rússneska her- inn fyrir stríð og að það hafi einn- ig verið misskilningur að herinn hafi haft mikla reynslu í orrustu. Það hafi vissulega verið hermenn sem höfðu einhverja reynslu en stór hluti þeirra hafi fallið á fyrstu tveimur mánuðum innrásarinnar. „Ef þú horfir á ferilskrá rússneska hersins eftir fall Sovétríkjanna þá er hún ekkert stórfengleg. Við réðumst inn í Tsjetsjeníu tvisvar sinnum en það voru ekki nein stórfelld stríð. Það sama má segja um Georgíu árið 2008 þegar geisaði átta daga stríð í Suður-Ossetíu, sem má nú varla kalla stríð. Georgía var aldrei með neinn stóran her. Þannig að fyrir stríðið í Úkraínu hafði rússneski herinn enga stríðsreynslu.“ Kirill f lúði Rússland daginn sem stríðið í Úkraínu byrjaði. Úkraínsk- ur vinur hans hafði samband við hann og sagði að bærinn sinn hefði orðið fyrir sprengju á rás. Kirill segir þá báða hafa verið fljóta að átta sig á því hvað hafði gerst. Hann f lúði með fjölskyldu sína til Georgíu og vinnur nú með lettn- eskri fréttastofu sem framleiðir fréttaefni á rússnesku. Stöðin heitir I Gryanul Grem og birtir efnið sitt á YouTube fyrir rússneska þegna innan og utan Rússlands. Kirill minnist einnig á Wagner- hópinn og telur að Yevgeny Pri- gozhin gæti verið orðinn of metn- aðarfullur. „Fyrir fjórum mánuðum síðan var hann aðalmaður Pútíns. Hins vegar eftir þessa aftöku með sleggjunni og fleira þá er þessi hópur orðinn slæm ímynd fyrir Rússland. Þar að auki tapaði Yegveny pólitíska stríðinu við Moskvu þannig að það kæmi mér ekkert á óvart ef þessi maður yrði skotinn til bana eftir einhverja tvo mánuði,“ segir Kirill. n Rússar óundirbúnir fyrir nútímastríð á þessari öld Úkraínskir lögreglumenn skoða ónýtan rússneskan skriðdreka skammt frá Karkív eftir gagnárás úkraínska hersins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Náttúrusöfn þurfa að uppfylla mun meiri kröfur en ríkir einstaklingar Hilmar Malm- quist, líf- fræðingur og forstöðumaður Náttúruminja- safn Íslands Grameðla til sölu Beinagrind grameðlu verður seld á uppboði í fyrsta sinn í Evrópu í næsta mánuði. Vísindamenn hafa hins vegar áhyggjur af því að beinagrindin verði keypt af einkaaðila sem myndi útiloka frekari rannsóknir á beinunum. Áætlað er að Trinity verði seld fyrir rúmlega 8,6 milljónir $ á uppboðinu í Zürich í Sviss. Heimildir: Koller Auktionen, AFP, The Times Myndir: Koller Auktionen © GRAPHIC NEWS TRINITY: Samanstendur af beinum úr þremur mismunandi grameðlum sem dóu fyrir 66 milljón árum síðan. Afgangurinn af beinagrindinni, eða um 50 prósent af henni, er e‹irlíking. Lengd: 11,6 m Hæð: 3,9 m Lance Creek Formation, Wyoming-fylki Hell Creek Formation 1, Montana-fylki Hell Creek Formation 2 E‹irlíkingar Fyrri grameðlu-uppboð 1997, New York: Grameðlan Sue keypt af safni í Chicago á 8,36 m. $ 2020, New York: Grameðlan Stan keypt af safni í Abú Dabí á 31,85 m. $ 2022, New York: Hauskúpan af grameðlunni Maximus seld til óþekkts kaupanda á 6,1 m. $ Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Áhugasamir auglýsendur hafi samband við: Jón Ívar Vilhelmsson, sími 550-5654 / jonivar@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Föstudaginn 24. mars mun Fréttablaðið gefa út aukablaðið Allt fyrir hótel & veitingAhús Allt ritstjórnarefni blaðsins er sérstaklega miðað að rekstraraðilum þeirra þúsunda fyrirtækja sem starfa í gisti- og veitingaþjónustu á Íslandi. Blaðið er um leið frábær auglýsingamiðill fyrir öll fyrirtæki sem bjóða upp á rekstrarvörur og þjónustu fyrir hótel og gisti- og veitingahús. 10 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.