Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 11
helgisteinar@frettabladid.is
RÚSSLAND Xi Jinping, forseti Kína,
mun ferðast til Moskvu í næstu
viku og funda með Vladimír Pútín,
forseta Rússlands. Kremlverjar
segja alhliða samstarf og stefnu-
mótun fyrir framtíðina verða
rædda.
Stjórnvöld í Peking hafa boðist til
að leiða friðarviðræður og hjálpa
við að binda enda á stríðið í Úkra-
ínu. Vestræn ríki hafa tekið vel í þá
tillögu en hafa áhyggjur af því að
Kínverjar færi Rússum vopn.
Talskona kínverska utanríkis-
ráðuneytisins segir Kína áfram
munu hafa hlutlæga og sanngjarna
afstöðu til stríðsins. Kínverjar vilji
aðeins leika uppbyggilegt hlutverk.
Sumir pólitískir sérfræðingar
segja meint hlutleysi Kínverja vera
sýndarmennsku því stríðið éti upp
vestrænar auðlindir og fjármagn. n
Xi Jinping heimsækir Valdimír Pútín í Moskvu
Friðartillaga Kínverja felur ekki í sér
brotthvarf Rússa. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Það er ekki aðeins mannfólkið sem
tekur þátt í að fagna þjóðhátíðar-
degi Írlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
helgisteinar@frettabladid.is
BANDARÍKIN Dagur heilags Patreks
var haldinn hátíðlegur um heim
allan í gær en hátíðin er meðal ann-
ars þjóðhátíðardagur Írlands. Heil-
agur Patrekur er einn af verndardýr-
lingum Írlands en það var hann sem
fékk Íra til þess að taka upp kristna
trú á 5. öld.
Á hverju ári ferðast meðal annars
forsætisráðherra Írlands til Banda-
ríkjanna til að færa forseta Banda-
ríkjanna músasmára. Hefðin byrj-
aði árið 1952 þegar Harry Truman
forseti tók á móti fyrsta músasmár-
anum frá írska sendiherranum. n
Heilagur Patrekur
heiðraður í gær
helgisteinar@frettabladid.is
ÁSTRALÍA Blake Johnston, ástralskur
brimbrettakappi, sló heimsmet í
borginni Sydney í gær er hann varði
40 klukkustundum á brimbretti
sínu í einni lotu.
Heimsmet hans var hluti af átaki
sem var ætlað að vekja athygli á
geðheilsu og náði kappinn meðal
annars að safna sem nemur 32 millj-
ónum króna til góðgerðarmála.
Á endanum var hann borinn á
herðum vina sinna upp Cronulla-
ströndina og sagði við fjölmiðla
að hann væri orðinn „ágætlega
steiktur“. n
Sló heimsmet á
brimbretti sínu
Blake Johnston tókst á við svefn-
leysi, ofþornun og hákarlaárásir.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Guðlaugur Þór Þórðarson
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Ávarp
Guðmundur Ingi Ásmundsson
Forstjóri
Fjúka orkuskiptin á haf út?
Gnýr Guðmundsson
Forstöðumaður kerfisþróunar
Við erum tilbúin
Svandís Hlín Karlsdóttir
Forstöðumaður viðskiptatengsla og -þróunar
Grípum tækifærin
Katrín Olga Jóhannesdóttir
Framkvæmdastjóri Elma
Valdefling neytandans og nýrrar tækni
Sigrún Björk Jakobsdóttir
Stjórnarformaður
Fundarstjóri
Morgunverðarfundur
Í Norðurljósum í Hörpu
Föstudagur 24. mars
Kl. 08.30 – 10.00
Á vorfundi Landsnets verður mikilvægi flutnings-
kerfisins í orkuskiptum til umfjöllunar. Nýir orkukostir
eru áberandi í umræðunni og mikið hefur verið
rætt um tækifærin sem í því felast en líka hindranir.
Hversu vel er flutningskerfi rafmagns í stakk búið
til að miðla rafmagni um landið?
Hversu mikið af vindorku má nýta og flytja
um landið?
Erum við klár í orkuskiptin?
Verið velkomin Skráning á landsnet.is
Stjórnvöld í Peking
hafa boðist til að leiða
friðarviðræður og
hjálpa við að binda
enda á stríðið.
helgisteinar@frettabladid.is
HONG KONG Tveir menn hafa verið
handteknir í Hong Kong fyrir að
hafa í vörslu sinni bækur sem taldar
eru hvetja til uppreisnar. Menn-
irnir eru taldir vera þeir fyrstu sem
handteknir eru fyrir það eitt að eiga
ákveðnar bækur.
Báðir mennirnir hafa verið látnir
lausir gegn tryggingu en þurfa að
gefa sig fram við lögreglu í næsta
mánuði. Mannréttindasamtökin
Human Rights Watch sögðu hand-
tökuna skammarlega. n
Handteknir fyrir
að eiga bækur
Harðræði hefur færst í aukana í
Hong Kong á undanförnum árum.
FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR 1118. MARS 2023
LAUGARDAGUR