Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 14

Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 14
 13.06.2022 Háværar kjafta- sögur heyrðust úr Laugardalnum um að Arnar Þór Viðarsson og þjálfara- teymi liðsins væru verulega ósátt við hugar- far Alberts og framgöngu í verkefni landsliðsins. Fyrst um sinn átti þjálfarinn erfitt með að viðurkenna að samband þeirra væri ekki gott. „Þetta er bara ekki satt. Ég hef ekki lent í neinu rifrildi við Albert. Við höfum rætt hlutina, ég og Albert. Hann er mjög faglegur og við höfum átt nokkra fundi og talað saman í þessum glugga. Ég veit að þetta er mjög erfitt fyrir hann og það er eðlilegt að hann sé ekki sáttur,” sagði Arnar meðal annars. Albert Guðmundsson, atvinnumaður í knattspyrnu hjá Genoa á Ítalíu, hefur verið á milli tannanna á fólki undanfarna daga. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, segist hafa reynt að rétta fram sáttahönd og fá Albert aftur í landsliðið en að sóknarmaðurinn hafi viljað byrja alla leiki liðsins svo hann gæfi aftur kost á sér. FÓTBOLTI Hinn 25 ára gamli Albert Guðmundsson hefur ekki spilað með íslenska landsliðinu í að verða níu mánuði. Arnar Þór hætti að velja Albert og sagði hugarfar hans ekki gott, vonir stóðu til að Albert kæmi aftur í landsliðið á þessum tímapunkti enda óumdeilt að hæfi- leikar hans eru gríðarlegir. Albert hefur ekki viljað ræða stöðu mála opinberlega, allt frá því að Arnar hætti að velja hann. Erfitt er að sjá eftir þessar nýjustu vendingar í málinu að Albert spili aftur fyrir landsliðið á meðan Arnar Þór er þjálfari liðsins. Enda segir þjálfarinn að Albert vilji ekki mæta í landsleiki nema að hann byrji alla leiki. Albert hefur ekki viljað tjá sig um málið en sóknar- maðurinn hefur blómstrað með Genoa á Ítalíu undanfarnar vikur. Landsliðsferill Alberts telur 33 landsleiki og hefur hann skorað sex mörk í þeim leikjum. n Hæðir og lægðir á landsliðsferli Alberts 10.01.2017 Hinn 19 ára gamli Albert fékk í fyrsta sinn tæki- færi í A-landslið- inu, mikil spenna var fyrir þessum efnilega pilti sem spilaði sinn fyrsta leik gegn Kína. Heimir Hallgrímsson hafði trú á Albert og valdi hann í B-landsliðsverkefni í janúar eftir að hafa vakið athygli fyrir vaska framgöngu hjá PSV. 14.01.2018 368 dögum eftir sinn fyrsta lands- leik skorar Albert sín fyrstu mörk fyrir A-landsliðið. Mörkin komu í æfingaleik gegn Indónesíu ytra, eins og í fyrsta verkefni Alberts var um að ræða verkefni í janúar þar sem stærsta stjarna liðsins vaknaði. Albert skoraði þrennu í leiknum sem er helmingur þeirra marka sem hann hefur skorað fyrir landsliðið. 11.05.2018 Heimir Hallgrímsson, þá landsliðs- þjálfari Íslands, velur hóp sinn sem fer á Heimsmeistaramótið í Rúss- landi. Albert var yngsti leikmaður liðsins og var val hans nokkuð óvænt. Albert var á þessum tíma byrjaður að fá örfá tækifæri hjá PSV í hollensku úrvalsdeildinni. 26.06.2018 Íslandi vantaði mark í síðasta leik riðilsins gegn Króatíu á HM í Rússlandi. Heimir telur að hinn ungi Albert geti komið með hið óvænta og setur Albert inn á völlinn síðustu fimm mínúturnar og kippti hinum reynda marka- skorara Alfreð Finnbogasyni af velli. Leiknum lauk með 1-2 sigri Króatíu og Ísland var úr leik í Rúss- landi. 08.06.2021 Rúmlega þremur árum eftir að hafa skorað sín fyrstu mörk og nítján leikjum síðar skoraði Albert fyrsta mark Íslands í 2-2 jafnt- efli gegn Póllandi í æfingaleik. Á þessum tímapunkti var búist við að Albert myndi verða stjarna liðsins enda var komið að kyn- slóðaskiptum og væntingarnar til Alberts voru miklar. 11.10.2021 Í leik gegn Liechtenstein var Al- bert heitur og skoraði tvö mörk af vítapunktinum. Albert var orðinn sá lykilmaður sem búist var við og vonir stóðu til að þessi mörk myndu kveikja neista í þessum hæfileikaríka leikmanni. Ísland vann góðan 4-0 sigur en liðið fer einmitt til Liechtenstein eftir rúma viku og mætir þar heima- mönnum. 16.09.2022 Arnar Þór Viðarsson kynnir næsta landsliðshóp eftir kjaftasögurnar um að Albert hefði ekki lagt sig fram í verkefninu á undan og að ósætti væri um hann. Nú kom í ljós að þjálfarinn var ekki sáttur við Al- bert og setti hann úr hópnum. „Ég var mjög svekktur út í hugarfar Al- berts í síðasta glugga. Það er mikill heiður að vera valinn í landsliðið og menn þurfa að vera 100% með eða ekki. Leikmenn Íslands hafa alltaf sett frammistöðu liðsins fram yfir eigin frammistöðu og ég tel að það sé lykillinn að árangri,“ sagði Arnar þá um hlutina. 14.03.2023 Eftir að hafa verið með Albert í kuldanum frá síðasta sumri er greint frá því í Fréttablaðinu að Arnar Þór Viðars- son og Albert Guðmundsson hafi rætt saman í síma. Vonir stóðu til um að þetta símtal bæri árangur og að þjálfar- inn myndi velja þennan hæfileika- ríka leikmann aftur í hópinn. 15.03.2023 Arnar Þór kynnir landsliðshóp sinn fyrir fyrstu tvo leikina í undan- keppni Evrópumótsins á næsta ári. Enginn Albert Guðmundsson er á lista og Arnar segir að Albert sé ekki til í að vera á sömu forsend- um og aðrir leikmenn. Degi síðar útskýrði hann svo mál sitt. „Ég hringdi í Albert og bauð honum að koma til baka. Eins og ég hef alltaf sagt er hurðin alltaf opin. Það er ekkert illt á milli mín og Alberts. En þegar ég tjáði honum að hann myndi byrja á bekknum á móti Bosníu lét hann mig vita að hann væri ekki tilbúinn í það,“ sagði þjálfarinn. Hörður Snævar Jónsson hordur @frettabladid.is 14 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.