Fréttablaðið - 18.03.2023, Qupperneq 28
Hljómsveitin Fjallabræður
treður upp í Háskólabíó í
kvöld og verður öll til tjaldað
hjá þeim bræðrum og
reyndar einni systur.
gummih@frettabladid.is
Fjallabræður ákváðu að skella í
15 ára afmælistónleika en aldrei
áður í sögu hljómsveitarinnar hafa
verið haldnir sérstakir afmælis-
tónleikar. Halldór Gunnar Pálsson,
kórstjóri Fjallabræðra, lofar stuði
og stemningu á tónleikunum, sem
uppselt er á.
„Það er svona smá á reiki hjá
okkur hversu gömul hljómsveitin
er. Ég er fæddur árið 1981 og í
25 ára afmæli mínu urðu Fjalla-
bræður til óformlega. Við hljótum
því að vera á 16. ári. Við höfum
aldrei haldið upp á afmæli svo við
erum eiginlega að halda upp á öll
afmælin með þessum tónleikum,“
segir Halldór Gunnar.
Spurður hvort meðlimir séu
ekki spenntir fyrir „gigginu“ segir
Halldór:
„Jú, heldur betur. Það er leiðin-
legt að nota þetta orð, Covid, en
það gerði okkur erfitt fyrir enda
um stóran kór að ræða. Við vorum
bara slakir í gegnum þann tíma en
núna að vera koma aftur saman
til þess að gera eitthvað svona
skemmtilegt, það er alveg geggjað.
Ég var að reikna þetta saman að
ég er búinn að mæta á kóræfingar
á þriðjudögum í 15 ár. Þá er það
orðin mikil festa í lífinu ef maður
hittir sama mannskapinn alltaf
einu sinni í viku. Það er svo gaman
þegar þetta byrjar aftur. Við nær-
umst hverjir af öðrum,“ segir fyrir-
liði Fjallabræðra.
Halldór segir að tónleikagestir
viti ekki hvað er að fara að gerast
á afmælistónleikunum í kvöld.
„Hver veit nema óvæntir atburðir
eigi sér stað,“ segir Halldór og
hlær. „Við munum stikla á stóru í
því sem við höfum gert í gegnum
tíðina. Við höfum verið að vinna í
nýju efni líka í gegnum alheimsfar-
aldurinn þegar við höfum náð að
hittast. Við ætlum að líta til baka,
dvelja í núinu og horfa til fram-
tíðar,“ segir Halldór Gunnar.
Örugglega eina konan í karlakór
Halldór reiknar með að 63 með-
limir muni troða upp í Háskólabíó
á tónleikunum og þar af ein kona.
„Eðli málsins samkvæmt þá
verða alltaf einhverjar breytingar
á hópnum. Það koma tímabil sem
menn detta út en svo koma þeir
aftur inn. Kjarni hópsins hefur
haldið sér frá fyrsta „giggi“. En eins
og ég hef sagt við menn að ef þeir
komast ekki þar sem þeir eru að
fara að gera eitthvað annað þá geta
þeir komið aftur þegar þeir eru
klárir. Það er ein kona í hópnum,
Unnur Birna Björnsdóttir, sem
er fiðluleikarinn okkar. Hún er
búin að vera með okkur nær allan
tímann og er örugglega eina konan
sem er í karlakór. En við erum samt
eiginlega hljómsveit frekar en kór
og við viljum skilgreina okkur
sem hljómsveit. Það eru rosalega
margir söngvarar í henni.“
Um aldursbilið í hljómsveitinni
segir Halldór: „Það eldist með
okkur,“ segir Halldór og skellir upp
úr að hlátri. „Elsti heiðursfélaginn
okkar er fæddur 1934 en það er
afi minn. Hann var með okkur í
hljómsveitinni til að byrja með og
söng inn á eina plötu með okkur.
Hann mætir að sjálfsögðu á tón-
leikana. Þeir yngstu eru fæddir upp
úr 1980-1990. Hann er ansi breiður
aldurshópurinn. Ég man þegar við
vorum að byrja þá voru menn í
kórnum sem voru á fermingaraldr-
inum en núna eru þeir orðnir
fullorðnir menn. Þetta eru nokkrar
kynslóðir sem mætast. Þetta er
fallegur félagsskapur. Við höfum
brallað margt saman í gegnum
tíðina, gert plötur, farið erlendis og
djöflast saman í hinu og þessu.“ n
Erum að halda upp á öll afmælin
Það verður öllu
tjaldað til hjá
Fjallabræðrum í
kvöld.
MYNDIR/
SVEINBJÖRN
HAFSTEINSSON
Halldór Gunnar Pálsson er kórstjóri
Fjallabræðra.
Unnur Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá
Engey kids, hefur notað
færðubótarefnin frá Good
Routine undanfarna mánuði
og er mjög ánægð með
virkni þeirra. Hún tekur inn
Daily-D3 2000 IU®, Syner-
gize-Your-Gut® og C-Your-
Imnnunity®.
Good Routine eru hágæða bætiefni
með einstakri virkni og hámarks
upptöku á næringarefnum. Þetta
nýja vörumerki er fyrir þá sem
gera kröfur um hrein bætiefni og
fyrir þá sem vilja gefa sér tíma fyrir
góðar venjur.
Vönduð og spennandi fæðu-
bótarefni með mikla virkni
Good Routine fæðubótarefnin hafa
slegið í gegn undanfarin misseri.
Þau eru gerð úr náttúrulegum
innihaldsefnum og geta stuðlað að
bættri heilsu á ólíkan hátt, meðal
annars með því að vernda þvag-
færakerfið, styrkja ónæmiskerfið
og bæta meltingu.
„Ég fann mun eftir að hafa tekið
bætiefnin í 3-4 vikur. Ég hef ágætis
þekkingu á fæðubótarefnum því ég
hef alltaf hugsað vel um mig og ég
fann það strax að þetta er frábær
vara,“ segir Unnur.
„Ég frétti af þessum fæðubótar-
efnum í gegnum vinafólk og sá
þetta í verslunum og fannst þetta
strax mjög spennandi. Ég hef
alltaf verið áhugamanneskja um
bætiefni, eins og ég segi, svo ég var
ánægð með að fá að prófa eitthvað
nýtt og spennandi,“ segir Unnur.
„Mér finnst virkilega hafa verið
vandað til verka og þetta er mjög
fjölbreytt lína af fæðubótarefnum
svo ég á eftir að prófa fleiri efni, en
þetta lofar mjög góðu hingað til
og mér finnst allt við þetta merki
mjög faglegt.“
Betri melting og þarmaflóra
„Maður vill alltaf hugsa vel um sig
nú er ég orðin amma, svo ég þarf
að hugsa vel um ónæmiskerfið og
meltinguna. Mér finnst áhrifin af
Synergize-Your-Gut® sérstaklega
eftirtektarverð og jákvæð,“ segir
Unnur.
„Ég hef tekið eftir því að meltingin
hefur orðið betri og það er meira
jafnvægi á þarma flórunni. Það
kom mér á óvart hvað ég fann fljótt
mun á mér. Þegar farið er í gegnum
breytingaskeiðið er mikilvægt að
vera með heilbrigða þarmaflóru.
Hún er mjög mikilvæg því þannig
nýtum við öll næringarefnin betur
í líkamanum. Góð þarmaflóra
hefur einnig gífurlega góð áhrif
á hormónakerfið okkar. Hún
hjálpar til við að brjóta niður og
melta fæðu ásamt því að fram-
leiða ákveðin vítamín og fitusýrur
sem eru okkur nauðsynleg. Góð
þarmaflóra er því undirstaða fyrir
heilbrigða meltingu, sem skilar
sér í bættu jafnvægi hormóna-
kerfisins.
Ég myndi virkilega mæla með
þessum fæðubótarefnum. Ég hef
mikla trú á þessum vörum og
góða tilfinningu fyrir þeim,“ segir
Unnur. „Ég held líka að þau sem
Öflug þarmaflóra er
undirstaða heilsunnar
Unnur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur verið að
prófa nýju fæðubótarefnin frá Good Routine undanfarnar vikur og er mjög
ánægð með virkni þeirra. MYND/AÐSEND
Ég hef tekið eftir
því að meltingin
hefur orðið betri og það
er meira jafnvægi á
þarmaflórunni. Það kom
mér á óvart hvað ég finn
mikið fyrir þessu.
Unnur Gunnarsdóttir
fylgjast með í vítamínheiminum
eigi eftir að sjá það fljótt hvað þetta
er vönduð og flott vara.“
Loksins á Íslandi
Tíu af vörum Good Routine fást á
Íslandi. Meðal annars Comfort-U®,
sem veitir þvagfærakerfinu stöðuga
vernd, Daily-D3 2000 IU®, sem
er D3-vítamín af náttúrulegum
uppruna, Synergize-Your-Gut®,
sem er fyrir þarmaheilsu og heil-
brigða þarmaflóru, Pure Omega-3,
sem er kraftmikið ómega-3 í gel-
hylkjum, og C-Your-Immunity®,
sem inniheldur C-vítamín, quer-
cetin, hesperidin og bromelain í
einu hylki og hjálpar fólki sem er
viðkvæmt fyrir kulda og hita-
breytingum.
Ásamt því að sérhæfa sig í fæðu-
bótarefnum leggur Good Routine
mikla áherslu á að stuðla að
vitundarvakningu um að góðar
venjur séu lykilatriði þess að líða
vel alla daga. Það spannar allt frá
hreyfingu og næringu til andlegrar
heilsu. n
Good Routine fæst í Hagkaup,
Lyfjum & heilsu, Apótekaranum
Krónunni, Fjarðarkaupum og á
www.goodroutine.is
Unnur
fann fljott
mun á sér þegar
hún fór að taka inn
Synergize-Your-
Gut frá Good
Routine.
Við höfum verið að
vinna í nýju efni
líka og við ætlum að líta
til baka, dvelja í núinu og
horfa til framtíðar.
Halldór Gunnar Pálsson
4 kynningarblað A L LT 18. mars 2023 LAUGARDAGUR