Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 38

Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 38
Safa Jemai, eigandi Mabrúka, sem flytur inn heimagert krydd frá heima- landi sínu Túnis, fagnaði eins árs afmæli Mabrúka síðastliðinn þriðjudag. Af því tilefni buðu Safa og teymið hennar til glæsilegrar afmælisveislu sem haldin var á veitingastaðnum Sumac. sjofn@frettabladid.is Yfir 100 manns fögnuðu eins árs afmæli Mabrúka með Söfu Jemai á Sumac og þar mátti sjá landsliðs- kokka, matreiðslumeistara, mat- gæðinga, ráðamenn landsins og fleiri góða gesti sem hafa kynnst kryddunum hennar Söfu og notið þeirra í matargerð sinni. Mikið var um dýrðir í veislunni og boðið var upp á létta skemmti- dagskrá og einstakan sjö rétta afmælismatseðil sem innihélt rétti frá Túnis sem Þráinn Freyr Vig- fússon matreiðslumeistari, eigandi Sumac, og teymið hans töfruðu fram af sinni alkunnu snilld. Tónlistin sem ómaði var frá Mið- jarðarhafinu og átti vel við meðan veislugestir nutu þess að snæða þessa dýrindis rétti sem allir buðu upp á bragð og áferð frá Túnis þar sem kryddin frá Mabrúka léku aðalhlutverkið. Sprottið af ást Safa sagði í ræðu sinni þegar hún tók á móti gestum að það hefði verið áskorun að koma Mabrúka af stað en þau væru mjög spennt að halda áfram að skapa skemmti- legar minningar og auðga íslenska matarmenningu með því að búa til túnískar og norðurafrískar vörur og flytja inn til landsins. „Ég er ótrúlega heppin með teymið sem hefur verið með mér í þessu, veitt mér stuðning og hvatningu allan tímann og haft trú á þessu verkefni. Í teyminu erum við sjö en hér á landi eru það Ívar Guðmundsson, verkefnastjóri Kelechi, Anna Haf- stað markaðsstjóri og bróðir minn Kryddilmur í loftinu og gleðin í hávegum höfð Kúskús með rúsínum, lauk og harissa. Grillað flatbrauð, með hummus og harrisa ídýfu. Bambalouni með hunangsís, hind- berjum og loomi. Yosri sem nú er kominn hingað til lands,“ segir Safa og er í skýjunum með þau viðbrögð sem kryddin þeirra hafa fengið. „Þetta eru fersk krydd sem mamma mín í Túnis býr til frá grunni eins og í gamla daga og þurrkar í sólinni en ekki í ofni, krydd sem hún gerir sjálf og velur aðeins besta hráefnið sem völ er á beint frá bændum,“ segir Safa og bætir við að í dag sé Mabrúka nýsköpunar-matarfyrirtæki sem býr til handgert og sólþurrkað krydd bæði fyrir veitingastaði og heimili. „Mabrúka er annað og meira en bara kryddfyrirtæki. Mabrúka stendur fyrir valdeflingu kvenna, samfélagsábyrgð, er kraumandi suðupottur mismunandi menn- ingarheima, þar sem norðurafrísk menning blandast saman við nor- ræna og íslenska. Mabrúka er fyrirtæki sem er meðvitað um ábyrgð sína, en líka tækifæri til að láta gott af sér leiða. Þetta er verkefni sprottið af ástríðu.“ Harissa ný vara Mabrúka Safa notaði jafnframt tækifærið og kynnti nýja vöru til leiks: Harissa. „Harissa er chilli-mauk frá Túnis. Í Harissa er chilli, hvítlaukur, salt, tabel og mikið af ólífuolíu. Þessi uppskrift sem við notum er frá Norður-Túnis, Bizerte, þar sem fjölskyldan mín býr. Harissa er mjög vinsælt úti og er á lista UNESCO yfir menningar- verðmæti í heiminum,“ segir Safa að lokum og ætlar að halda áfram að stækka og blómstra. n Þetta eru fersk krydd sem mamma mín í Túnis býr til frá grunni eins og í gamla daga og þurrkar í sólinni en ekki í ofni. Safa á milli bróðurins, Yosri, og matreiðslumannsins Þráins Freys Vigfússonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þeir voru fjölbreyttir matardiskarnir sem bornir voru fram í veislunni. 630 mg 2,5 mcg 37,5 mg 100 mg Fosfólípíð (EPL) Fosfatidýlkólín Burnirót Silymarin Ljúfari lifur, alla daga GUARD-YOUR-LIVER® Verndar lifrina og styður við hreinsun Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf og heilsu og á goodroutine.is fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE® K AV IT A 6 kynningarblað A L LT 18. mars 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.