Fréttablaðið - 18.03.2023, Page 46
Þær Eva María Þórarinsdóttir
Lange og Birna Hrönn Björns-
dóttir, stofnendur og eigendur
Pink Iceland, eru lifandi og
litríkir karakterar og ber
heimili þeirra þess merki.
Eva María og Birna keyptu
íbúðina við Skólavörðu-
stíginn árið 2020 en þær
heilluðust um leið og þær
komu þangað inn í fyrsta
sinn.
„Við byrjuðum að sverma fyrir
íbúðinni um leið og hún datt inn
á fasteignavefina. Það gripu um sig
svo margar tilfinningar þegar við
fórum fyrst að skoða, okkur leið
bara eins og við værum komnar
heim,“ segir Birna.
Gistiheimili var rekið í rýminu
þegar hjónin festu kaup á því og
kom það sér einkar vel að sögn Evu
Maríu.
„Á meðan verið var að senda
tilboð fram og til baka og spá og
spekúlera vinguðumst við við
staðarhaldarann og hún var dugleg
að leyfa okkur að laumast upp á
turnsvalirnar til að tylla okkur og
skála svona fyrir fram með vinum
og fjölskyldu. Við fengum því aðeins
að máta okkur við útsýnið á svölun-
um,“ rifjar hún upp en af svölunum
sést vel yfir Skólavörðuholtið þar
sem Hallgrímskirkja trónir efst en
líka alla leið upp á Snæfellsnes.
Breyttu eiginlega öllu
Að kaupferli loknu tók við heilmikið
breytingaferli enda var rýminu
skipt upp í mörg herbergi, sameigin-
legt eldhús, þvottahús og móttöku-
rými fyrir gistiheimilið.
„Stutta svarið þegar við erum
spurðar hverju við breyttum væri:
eiginlega öllu,“ segir Eva María og
Birna bætir við: „Við byrjuðum á því
að taka niður veggi sem hólfuðu af
gistirýmin, við bjuggum til svefn-
herbergi þar sem áður hafði verið
þvottahús og skrifstofa og baðher-
bergi þar sem áður hafði verið koju-
herbergi.
Við erum svo óendanlega heppn-
ar með fólkið í kringum okkur því
það er aldrei skortur á hjálpsömum
höndum að lyfta hamri, pensli eða
kúbeini. Það þurfti mikið að rífa
niður og var það svo sannarlega vin-
sælast, einhver orkulosun sem átti
sér stað. Við búum að svo hæfileika-
ríkum og duglegum einstaklingum
í fjölskyldunni sem báru svo hitann
og þungann af svona faglegheit-
unum og það er ómetanlegt.“
Biðla til Völu Matt og Gulla
Aðspurðar hvort frekari fram-
kvæmdir liggi fyrir má heyra að þær
dreymir um þakpall.
„Það er alltaf gaman að láta sig
dreyma og hugsa stórt svo stutta
svarið er já. Þegar að því kemur er
það pottþétt efni í aðra heimsókn,“
segir Birna.
„Ef Gulli byggir, já, eða Vala Matt,
eru að lesa þetta og hafa áhuga á
hugsanlegum þakpalli í miðborg
Reykjavíkur þá erum við í síma-
skránni,“ bætir Eva María við hlæj-
andi. „En jú, við erum með mjög
skýrt plan og við erum komnar
hingað til að vera, við verðum hér
á níræðisaldri enn þá með heitt á
könnunni, kældar búbblur og kær-
leik fyrir vini okkar og fjölskyldu.“
Glimmer og litríkur fatnaður
Litadýrð einkennir heimilið bæði í
innanstokksmunum og vegglitum
en litagleðin einkennir þær Evu
Maríu og Birnu á fleiri sviðum.
„Þegar við vorum að kynnast þá
byrjuðum við að dj-a á hinsegin
stöðum borgarinnar og fengum
strax viðurnefnið Dj Glimmer –
þetta var ákveðið markaðstrikk því
að þá fóru allir heim af dansgólfinu
með glimmer á sér. Þannig fylgdi Dj
Glimmer þeim fram á næsta dag, og
jafnvel stundum næstu daga,“ segir
Eva María. „Glimmer-nafnið festist
við okkur og er ekki óalgengt að fólk
komi til okkar til að fá glimmer eða
litríkan fatnað og leikmuni.“
Birna segir að frá upphafi sam-
bandsins hafi þær verið samstíga í
ást sinni á litum, hvort sem það er á
heimili þeirra eða í fatavali.
„Það er oft því litríkara, því betra
– en ávallt smekklegt. Við erum með
nokkur rými á heimilinu sem eru
máluð í sterkum litum en við leyfum
alrýminu að vera hvítu þar sem hús-
gögnin okkar eru græn, bleik og gyllt
og mikil litadýrð almennt.“
Húsgögnin flest notuð
Meirihluti húsgagna heimilisins er
notaður, annaðhvort eru þau keypt
notuð eða fengin frá fjölskyldum
þeirra og þannig verður stíll heim-
ilisins lifandi og fjölbreyttur.
„Okkur finnst svo eðlilegt að
poppa upp hversdagsleikann með
litum. Það kallar á jákvæð viðbrögð
fólks, litir örva og hafa áhrif á til-
finningar okkar – hví ekki að lífga
upp á skammdegið með fallegum
litapallettum? Lífið er betra í lit,“
segir Birna brosandi.
Eva María og Birna hafa unun af
því að bjóða fólki heim og að líf og
fjör sé á heimilinu þar sem þeirra
fólki líði vel. Þær tóku mið af því
þegar þær endurhönnuðu rýmið.
„Okkur fannst því mikilvægt að
halda í það sem okkur fannst best
við okkar fyrra heimili og það var
að hafa stórt rými sem hýsir mikið
af fólki,“ segir Birna.
„Svefnherbergið er því inn af eld-
húsinu en besta útsýnið og stærstu
gluggarnir eru í opna eldhúsinu,
borðstofunni og stofunni sem liggja
saman og mynda mjög skemmtilega
heild.“
Lífið er betra í lit
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Heimili Evu Maríu og Birnu við Skólavörðustíginn er fyrir margar sakir einstakt þar sem ægir
saman nýju og notuðu, fallegum litum og gleðin er alltumlykjandi. Fréttablaðið/anton brink
Eldhúsið og
alrýmið höfðu
þær í hvítu sem
mótvægi við
alla litagleðina
í innanstokks-
munum og
herbergjum.
Hér er horft frá
borðstofu inn
í stofu. Borðið
er úr hótelinu
Oddsson sem
var í JL húsinu
en ljósið yfir
útbjuggu þær
sjálfar með því
að nýta gamlar
spegla-plexí-
plötur.
Útsýnið yfir Reykjavík og nágrenni er einstakt og eru hjónin dugleg að bjóða gestum heim.
30 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARs 2023
lAUgARDAgUR