Fréttablaðið - 18.03.2023, Side 56

Fréttablaðið - 18.03.2023, Side 56
Skemmtileg og hressi- leg skáldsaga um að finna sig eftir að hafa týnt sér. Ég á móður minni auðvitað mikið að þakka og hún hefur stutt við mig. Hún verður 101 árs 24. mars og fylgist vel með öllu sem er að gerast. Framleiðum einangrunarlok og yfirbreiðslur á allar tegundir potta. Metum ástand og gerum við. Fjarðarbólstrun S. 561 4188 • 840 0339 • fjardarbolstrun@gmail.com LOK Á HEITA POTTA www.fjardarbolstrun.is Smiðjuvegur 12, rauð gata - S. 566 6630 - gluggagerdin@gluggagerdin.is Hrafnkell Sigurðsson var á dögunum útnefndur mynd- listarmaður ársins. Hann segist vera sérstaklega þakk- látur móður sinni sem verður 101 árs í næstu viku. tsh@frettabladid.is Hrafnkell Sigurðsson hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin 2023 sem myndlistarmaður ársins fyrir sýn- inguna Upplausn. Sýning Hrafnkels var sett upp á vegum fyrirtækisins Billboard í verkefni þeirra Auglýs- ingahlé á yfir 450 auglýsingaskjáum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í janúar 2022, í samstarfi við Lista- safn Reykjavíkur og Y gallerí. Hrafnkell segir það hafa verið ólýsanlega tilfinningu að hljóta verðlaunin. „Ég var svo hissa og glaður. Þetta var bara stórkostlegur og skemmtilegur áfangi.“ Alls var sex verðlaunum og viður- kenningum úthlutað en auk Hrafn- kels hlutu meðal annars listakon- urnar Ásgerður Birna Björnsdóttir hvatningarverðlaun og Ragnheiður Jónsdóttir heiðursverðlaun. Sterk viðbrögð Sýning Hrafnkels á sér langan aðdraganda en hann sýndi verkin á Upplausn upphaf lega sem ljós- myndaprent í Hverfisgalleríi árið 2018. Útgangspunktur verkanna er einn pixill úr Hubble-sjónaukanum af fjarlægum vetrarbrautum sem Hrafnkell stækkaði upp og vann í myndvinnsluforriti. „Ég byrjaði að vinna efnið í þessi ljósmyndaprent 2017. Síðan sá ég að þetta var alveg kjörið í þessa sam- keppni Billboard og fékk ofsalega góða tilfinningu fyrir því. Það var eitthvað sem ég tengdi við þar, þetta var alveg unnið í stafrænum heimi og myndi svo fara beint á stafrænan skjá, þannig þetta var svona milli- liðalaust og það var einhver kraftur í því,“ segir hann. Hrafnkell segir viðbrögðin við Upplausn hafa verið mjög sterk í árs- byrjun 2022 en margir vegfarendur ráku upp stór augu þegar þeir sáu verkin og töldu að um væri að ræða bilun í auglýsingaskjáum Billboard. „Sumir sögðu meira að segja: „Æ, þetta er bilað, þetta er nú bara eins og eitthvert listaverk.“ En ég held að fólk hafi áttað sig á því kannski eftir fyrsta daginn að þetta var eitthvað meira en bilun. En þetta mátti alveg vera eins og bilun líka,“ segir hann. Huglæg og abstrakt verk Í umsögn dómnefndar Íslensku myndlistarverðlaunanna segir meðal annars að með því að nýta auglýsingaskiltin hafi Hrafnkell og f leiri „opnað nýja leið til að miðla myndlist“. Spurður um hvort hann sé sammála því segir listamaðurinn: „Ég held það sé ekki alveg nýtt að sýna myndlist á svona auglýsinga- skiltum og það hafði í raun ekkert með mig að gera, ég var heppinn að vera valinn í þetta verkefni og hepp- inn að vera með verk sem pössuðu vel inn í þetta.“ En þetta er ekki með öllu óum- deilt og sumir hafa gagnrýnt það að myndlist sé sett í jafn kapítalískt samhengi og auglýsingar. „Er hægt að sleppa undan því? Ég veit það ekki. Ég meina, er ekki allur heimurinn undirlagður? Auðvitað er alltaf hægt að gagnrýna og finna vinkil á allt en fyrir mig var þetta bara kærkomið tækifæri. Skilaboðin í verkinu voru mjög andstæð því að vera að segja fólki eitthvað eða auglýsa eitthvað. Þetta voru mjög abstrakt verk og huglæg, í töluverðri andstöðu við umhverfið sem þau voru sýnd í eða miðilinn, þannig að ég held að inntak verkanna hafi mögulega vegið upp á móti staðnum sem þau voru sýnd á.“ Vinnur með skjái Hrafnkell segir standa til að gefa út ljósmyndabók með verkunum úr Upplausn en fram að því er einnig í nógu að snúast. „Meðal annars er ég að vinna að nýjum verkum sem eru ekki ólík aðferð og Upplausn en samt á annan hátt. Ég er að vinna með sjálfan skjá- inn, ég er að taka myndir af skjánum og setja þær aftur inn í tölvuna. Ég er að framkalla eitthvað út úr skjánum sem er ekki þar fyrir og vinn svo frekar með það,“ segir hann. En þótt Hrafnkell vinni gjarnan með tækni og vísindi í sínum verkum segist hann ekki vera mjög tæknisinnaður sjálfur. „Ég get ekki sagt það, ég er ekki mjög tæknisinnaður eða fær í ein- hverri forritun. Ég kann á Photo- shop og búið. Þetta er mjög hrátt allt saman og einföld aðferð í rauninni þótt ég sé að vinna með stafrænt efni.“ Öflug myndlistarsena Íslensku myndlistarverðlaunin voru fyrst veitt 2018 af Myndlistarráði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að heiðra íslenska myndlistar- menn eða myndlistarmenn búsetta hérlendis og þau verkefni sem hafa skarað fram úr á liðnu ári. „Ég held að það sé bara alveg nauðsynlegt að hafa þessi verðlaun til staðar og þetta hefði átt að vera komið miklu fyrr. Það voru náttúr- lega fyrst Sjónlistarverðlaunin á sínum tíma sem voru haldin í örfá ár. Ég held að víða annars staðar séu svona svipuð fyrirbæri búin að vera til staðar í áratugi,“ segir Hrafnkell. Hrafnkell er fæddur 1963 og hefur verið virkur í sýningahaldi í rúm þrjátíu ár en hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Ísafirði 1987. Hvernig blasir myndlistarsenan í dag við þér? „Mér finnst bara magnað hvað hún er orðin öflug hérna á Íslandi og hvað utanumhaldið er alltaf að verða betra og betra. Það er svaka- lega mikil bylting á þrjátíu árum.“ Þakklátur móður sinni Hrafnkell segist vera þakklátur Billboard, Listasafni Reykjavíkur og Y gallerí fyrir stuðninginn við uppsetningu Upplausnar. Þá segist hann vera sérstaklega þakklátur móður sinni, Ellen Svövu Stefáns- dóttur, sem styður hann í öllu sem hann gerir. „Ég á móður minni auðvitað mikið að þakka og hún hefur stutt við mig. Hún verður 101 árs 24. mars og fylgist vel með öllu sem er að ger- ast,“ segir Hrafnkell. Er hún mikil áhugakona um myndlist? „Já, hún er það, hún hefur gott nef og skynbragð á myndlist. Ég treysti því alveg þegar ég sýni henni eitt- hvað nýtt og tek mark á viðbrögðum hennar.“ n Ólýsanleg tilfinning að vinna verðlaunin Hrafnkell segist hafa upplifað mjög sterk viðbrögð fólks við sýningunni Upplausn sem var sett upp á yfir 450 aug- lýsingaskjáum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í ársbyrjun 2022. Fréttablaðið/anton brink Bækur Óbragð Guðrún Brjánsdóttir Útgefandi: JPV Fjöldi síðna: 251 Brynhildur Björnsdóttir Í upphafi bókarinnar Óbragð er Hjalti heldur illa staddur í lífi sínu. Anna kærastan hans er farin frá honum, draumurinn um að verða brúarsmiður leystist upp í lítt gef- andi verkfræðinámi og óttinn við veggjalýs hefur tekið yfir flestar vök- ustundir. Ofan á þetta bætist heims- faraldur og veira sem hefur svipt hann lykt og bragðskyni, vinir sem vilja frekar tala um prjónauppskrift- ir en vanlíðan Hjalta og nágrann- inn á efri hæðinni sem heldur allt of hávær partí. Það er þó í gegnum þennan nágranna sem Hjalti kemst í kynni við lækningamátt kakós frá Gvatemala og gengur í framhaldi af því til liðs við Kakófylkinguna þar sem fjölskrúðugt persónugallerí dregur hann með sér í Skaftafell til að ástunda kakótengda hugleiðslu og hjálpar honum að finna sjálfan sig, frelsið og tilgang lífsins. Ferða- og þroskasaga Óbragð er ferða- og þroskasaga Hjalta út úr níðþröngum stakkn- um sem hann og uppeldi hans og umhverfi hafa sniðið honum yfir í ómengaða náttúruna með kostu- legri Kakófylkingunni þar sem sætur landvörður hjálpar honum meira að segja að sættast við lofts- lagsbreytingar sem óhjákvæmilegan og óviðsnúanlegan hluta af jarð- og mannkynssögunni. Eftir því sem Hjalti kemst í betra samband við sjálfan sig og heim- inn sem hann lifir í kemur bragð og lyktarskynið sem hann glataði þegar hann veiktist af Covid smám saman aftur og sú hliðstæða er vel og skemmtilega útfærð, með pælingum um hvernig bragð er kannski öðru- vísi en mann minnir og hvernig lykt getur kveikt á minningum og tilfinningum. Þrælskemmtileg aflestrar Sagan er sögð á fyndinn og galgopa- legan hátt og sumar aðstæðurnar sem sérstaklega Kakófylkingin lendir í eru sprenghlægilegar, hér má til dæmis minnast á gerð kynn- ingarmyndbands í Jökulsárlóni og þegar hópurinn leiðir ferðamanna- strauminn út af stikuðum stígum og út í ómengaða náttúruna. Þróun Kakófylkingarinnar úr broslegu safni fólks í leit að sjálfu sér yfir í sértrúarsöfnuð sem fylgir leiðtoga sínum í blindni er líka áhugaverð og vel útfærð. Höfundur styttir sér stundum leið og notar minni úr vin- sælum ástarsögum og bíómyndum að farsælum endi eins og þegar hin sæta og ákveðna Kría landvörður verður skotin í Hjalta eftir að hafa hitt hann einu sinni við aðstæður sem sýna hann alls ekki í jákvæðu ljósi en allur andi sögunnar er þann- ig að auðvitað gerist einmitt það og sagan á sér meira að segja endi sem á ekki langt í kött í mýri, rennandi smjör og brennandi roð. Guðrún Brjánsdóttir sýnir í þess- ari bók að hún hefur gott vald á því að segja sögur og búa til persónur. Óbragð er þrælskemmtileg aflestr- ar, létt í lund og tekur sig mátulega alvarlega og óhætt að mæla með henni í sumarbústaðarferðirnar um páskana. n Niðurstaða: Skemmtileg og hressileg skáldsaga um að finna sig eftir að hafa týnt sér. Kakóhald undir jökli 40 menning FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARs 2023 LAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.