Fréttablaðið - 18.03.2023, Qupperneq 58
betur látið ógert þegar upp er
staðið enda stigmagnast spennan
milli hans og Ragnars jafnt og þétt
í fálmkenndum tilraunum þeirra
til þess að spegla sig hvor í öðrum
sem renna ítrekað út í sandinn í
tragískum misskilningi á tilverunni,
sjálfum sér og öllu þar á milli.
Hlynur hefur áður unnið með
þeim Elliott Crosset Hove og Ingvari
E. Sigurðssyni með góðum árangri
og þeir glansa hér báðir í hlutverk-
um Lucasar og Ragnars sem Hlynur
sérsaumaði fyrir þá.
Elliott skilar angist, vonbrigðum
og andlegri hnignun prestsins
átakanlega vel og Ingvar, sem aldr-
ei klikkar, er hreint út sagt frábær
sem leiðsögumaðurinn. Hann er
svo öflugur að maður saknar hans
eiginlega um leið og hann er ekki
í mynd sem má teljast býsna gott í
jafn öflugum leikhópi.
Hér er valin manneskja í hverju
hlutverki og rétt eins og í Hvítum,
hvítum degi er einhver galdur
fólginn í samleik Ingvars og Ídu
Mekkínar sem leikur yngri dóttur
feðra- og nýlenduveldis fulltrúans
sem Jacob Lohmann skilar fanta vel
rétt eins og Vic Carmen Sonne sem
eldri dóttirin. n
NIÐURSTAÐA: Volaða land er
ágeng og eftirminnileg períóða
með nettum frávikum og skálda-
leyfi þar sem öflugir leikarar,
frábærir búningar, mögnuð tónlist
og kvikmyndataka ásamt íslensku
landslagi fara með áhorfendur
í krefjandi en þakklátan rann-
sóknarleiðangur um hinstu rök
mannlegrar tilveru.
HSH
Þrif og flutningar
Tökum að okkur regluleg þrif fyrir
sumarhús, hótel, gistiheimili og
fyrirtæki. Almennar ræstingar, auka
þrif og ýmis önnur þjónusta.
Erum staðsett á Suðurlandi.
Gerum tilboð
sem hentar þínum þörfum.
Hægt er að nálgast frekari
upplýsinga í síma 792-1727
eða í tölvupóst á
hshflutningar@gmail.com
HSH þrif og flutningar ehf.
er fyrirtæki með persónulega þjónustu
sem er með 10 ára reynslu í þrifum
og flutningum.
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
Citroen C5 Aircross – Shine útgáfa.
SUV Plug-in-Hybrid 2021 – ekinn 20 þús. km
Verð 5.490.000
Nýr svona bíll kostar 8,1 millj. án dráttarkróks og þverboga.
Rúmgóður og notendavænn fjölskyldubíll. Hábyggt jeppalagið og há sætisstaða
skapa þægilegt aðgengi. Aftursætin eru öll á sleða og rúma auðveldlega þrjá bar-
nastóla. Farangursrýmið er allt að 720 lítrar, það stærsta í þessum flokki bíla og
rúmar auðveldlega golfsettið eða barnavagn auk annars farangurs.
Langbogar og þverbogar, sumar og vetrardekk. Dráttarkrókur.
Dökklitaðar rúður aftan. Starthnappur. Rafdrifinn afturhleri.Tölvustýrð miðstöð.
Álfelgur 18”. ESP stöðugleikastýrikerfi. Rafdrifið ökumannssæti.
Dagljósabúnaður. Fjarlægðarskynjari framan og aftan, og fleira og fleira . . .
Fosshálsi 27 - 110 Reykjavík - Sími 577 4747 - Hofdabilar.is - hofdabilar@hofdabilar.is
Hybrid á
súperverði!
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
KVIKMYNDIR
Á ferð með mömmu
Leikstjórn: Hilmar Oddsson
Handrit: Hilmar Oddsson
Aðalhlutverk: Þröstur Leó
Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld,
Tómas Lemarquis, Hera Hilmar
Þórarinn Þórarinsson
Áhugaljósmyndarinn Jón býr í
fullkomnu fásinni ásamt aldraðri
móður sinni á afskekktum sveitabæ
fyrir vestan. Mamman er merking-
armiðja tilveru hans og slík eru áhrif
hennar að þegar hún deyr kemur
ekki annað til greina en að upp-
fylla hinstu ósk hennar með því að
koma jarðneskum leifum hennar, í
hennar fínasta pússi, fyrir í aftur-
sæti lúinnar Ford Cortina og drösla
henni á Eyrarbakka með viðkomu á
Gullfossi og Geysi.
Eftir því sem kílómetrunum að
baki fjölgar ferðumst við lengra inn
í hugarfylgsni Jóns þar sem mamma
lætur enn harkalega að sér kveða og
þau gera í raun upp samband sitt og
fortíð að henni látinni enda margt
ósagt og enn á huldu.
Jón kemur áhorfendum og þeim
sem á vegi þeirra mæðgina verða
fyrir sjónir sem hálfgerður ein-
feldningur og minnir þannig um
margt á garðyrkjumanninn Chance
í Being There þar sem ólíklegustu
og sjálfsögðustu hlutir virðast ofar
þröngum lífsskilningi hans.
Eftir því sem lengra er ekið virðist
hann þó einhvern tímann hafa lifað
eðlilegra lífi og átt vonir og þrár sem
mömmu tókst að kæfa niður með
ofríki sínu. Hann minnir því einn-
ig á annan þekktan mömmustrák,
Norman nokkurn Bates.
Handrit Hilmars Oddssonar er
ansi hreint sniðugt og leikstjórnin
vitaskuld fáguð og öguð eins og
hans er von og vísa. Tónlistin,
kvikmyndatakan og hið sívinsæla
íslenska landslag eru mikilvæg púsl
sem falla fullkomlega að heildar-
myndinni sem yfirburðaleikar-
arnir Þröstur Leó Gunnarsson og
Kristbjörg Kjeld virðast halda uppi
fyrirhafnarlaust. n
NIÐURSTAÐA: Þröstur Leó og Krist-
björg Kjeld keyra tragikómedíuna
áfram af slíkri íþrótt að unun er
á að horfa og skilja áhorfendur
eftir með heilmikið að hugsa um á
óvæntum áfangastað.
Óvissuferð um heillandi hugarheim
Þröstur Leó og Kristbjörg Kjeld
eru frábær á furðuferðalagi sínu á
mörkum draums og veruleika.
MYND/AÐSEND
KVIKMYNDIR
Volaða land
Leikstjórn: Hlynur Pálmason
Handrit: Hlynur Pálmason
Aðalhlutverk: Elliott Crosset
Hove, Ingvar E. Sigurðsson,
Vic Carmen Sonne, Ída Mekkín
Hlynsdóttir
Þórarinn Þórarinsson
Hlynur Pálmason er merkilega
magnaður kvikmyndagerðarmað-
ur og kannski má segja að hann sé
býsna djarfur sem slíkur á vorum
ömurlegu tímum merkingarleys-
unnar þar sem allt gengur út á að
vaða á ofsahraða í gegnum brim-
skafla stafrænnar kúadellu og fals-
frétta og gleypa um leið sem mest í
sig meðvitundar- og hugsunarlaust.
Hlynur þorir nefnilega ekki
aðeins að gefa sér drjúgan tíma
til þess að segja sögur sínar lötur-
hægt heldur hikar hann ekki við
að gera kröfur til áhorfenda sem
hljóta mörg hver að upplifa myndir
hans eins og æfingu í þolinmæði og
núvitund.
Þetta sterka höfundareinkenni er
ekki síður áberandi í Volaða landi
en Hvítur, hvítur dagur, frá 2019,
þótt önnur sé samtímasaga en hin
gerist undir lok 19. aldar. Báðar eru
myndirnar svo seigf ljótandi að á
köflum er eins og ekkert sé að gerast
á meðan þær naga sig hægt, bítandi
og af sívaxandi þunga djúpt í vitund
áhorfenda. Það er að segja ef þeir
hafa rænu á því að gefa sig mynd-
unum á vald með opnum huga.
Volaða land er marglaga átaka-
saga ólíkra manna, manns og nátt-
úru, Guðs og manns, mannsins við
sjálfan sig, kvenna og karla, Íslend-
inga og Dana, orða og mynda og
ekki síst hrjáðrar þjóðar við sitt vol-
aða land sem gefur engin grið, molar
fólk niður og drepur það hvort sem
öldin er sú 19. eða 21.
Þessi átök kristallast og hold-
gerast í unga, danska prestinum
Lucasi og Ragnari, leiðsögumanni
hans. Jarðnánu og alíslensku hörku-
tóli og sveitakarli sem hefur tekið á
sig ótal myndir í íslenskum bók-
mennta- og menningararfi.
Presturinn er gerður út frá
Kaupinhafn til þess að þjóna Guði í
íslenskri sveit eftir að hafa látið reisa
þar kirkju. Þótt hann sé varaður við
því að Ísland sé þess eðlis að það
geti snardrepið menn andlega og
líkamlega mætir hann bjartsýnn til
leiks með þungar ljósmyndagræjur
á bakinu, fullur af vilja til þess að
kynnast landi og þjóð.
Eitthvað sem hann hefði ef til vil
Andleg barátta í landi sem engu eirir
Presturinn
ungi með ljós-
myndadelluna
leggur upp með
fögur áform
um að kynnast
Íslendingum í
gegnum linsuna.
MYND/AÐSEND
Mögnuð per-
sóna Ragnars
var skrifuð með
Ingvar í huga
og hann þakkar
fyrir sig með
enn einum stór-
leiknum.
MYND/AÐSEND
42 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023
LAUGARDAGUR