Fréttablaðið - 18.03.2023, Side 60
Þessi kuldi
var
kannski
ekki svo
slæmur.
Jack Magnet er fantasía
um harmonikkuleik-
ara á Snæfellsnesi sem
uppgötvar áður
óþekkta hæfileika sína
til að festa utan á sig
málmhluti.
Það sem þátttakendur uppskera:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra
• Kjark til að tala um eigin líðan og annarra
• Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd
• Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 12. júní 9.00 -13.00 átta virka daga í röð
13 til 15 ára 12. júní 13.30 - 17.00 níu virka daga í röð
16 til 19 ára 9. ágúst 18.00 -22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
20 til 25 ára 1. júní 18.00 -22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
Skráning á sumarnámskeiðin hafin
Skráning á dale.is eða 555 7080
Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk
*Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_031323
FRÉTTIR VIKUNNAR |
Bæjarbíó í Hafnarfirði verður
segulmagnað um næstu helgi
þegar tónlistargoðsögnin
Jakob Frímann Magnússon
dustar rykið af einu sinna
sjálfa frá því á árum áður í
Ameríku.
ser@frettabladid.is
Frumflutningur á konseptverkinu
Jack Magnet frá fyrsta tóni til þess
síðasta hefur lengi staðið til. Að
sögn Jakobs hefur hugmyndin að
tónleikunum ágerst nokkuð innra
með honum, allt frá því hann flutti
Horft í roðann í heild sinni fyrir ári.
Bæði verkin eru af annarri vídd
en þeirri hversdagslegu, að sögn
höfundarins sem samdi þau bæði
á Ameríkuárum sínum á áttunda
áratug síðustu aldar.
Fantasía nikkarans
Litið er um öxl í verkinu Horft í roð-
ann sem fjallar um upplifun Ívars
nokkurs frá Purkey á Breiðafirði
þegar bát hans hvolfir fyrirvaralaust
í óveðri á Breiðafirði.
„Í því verki blasir þroskasagan
við í hraðspólun, ef svo má segja,“
rifjar Jakob upp, „en Jack Magnet
er fantasía um harmónikkuleikara
á Snæfellsnesi sem uppgötvar áður
óþekkta hæfileika sína til að festa
utan á sig málmhluti með segulafli
líkamans einu og sér.“
Þetta er náttúrlega eitthvað,
bendir höfundur á í endurlitinu –
og rifjar áfram upp tilurð verksins.
„Svo verður bandarískur varnar-
liðsmaður af Keflavíkurvelli vitni
að þessum yfirnáttúrulegu hæfi-
leikum, undrum og stórmerkjum, á
kúttmagakvöldi á Rifi, býður harm-
ónikkuleikaranum að koma fram á
lítilli fjölskylduhátíð í Nevadafylki
og smám saman færast út kvíarnar,“
segir Jakob og er kominn á f lug í
endurminningunni.
„Harmónikkan víkur svo fyrir
sjónrænum yfirskilvitlegum uppá-
komum en samhliða þessu eykst
spenna, fíkn og bílífi sem endar
með því að batteríin klárast og kalla
á endurhleðslu heima á Arnarstapa
að afstaðinni sérstakri meðferð á
Staðastað.“
Hugmyndaf lugið hefur sumsé
ekki skort á sínum tíma.
Óvæntur samfundur
„Það undarlega gerðist síðan fyrir
skemmstu,“ heldur Jakob áfram, „að
ég var kynntur fyrir kraftakarlinum
Njáli Torfasyni sem getur látið bæði
Kobbi Magg
gengur aftur sem
Jack Magnet
Jakob Frímann
hefur gefið sér
góðan tíma í
að undirbúa
tónleikana
sem fram fara
laugardaginn
25. mars í Bæjar-
bíói, en þurfti
raunar að gera
hlé á æfingum
vegna utanfarar
í aldingarðinn
Eden.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
hnífa, skeiðar og gaffla hanga utan
á sér með segulkraftinum einum
saman, en jafnframt látið níðþungt
straujárn loða við sig – og dregið
með því bíl sem bundinn er við
straujárnið, allt þetta án bragða
og með segulaf l líkamans eitt að
vopni.“
Jakob er auðvitað hrifnæmur
maður – og er hvergi hættur.
„Um þennan mann ákvað ég
þegar í stað að gera heimildarmynd
sem sýnd verður síðar á árinu, en
brot úr henni verður frumsýnt á
tónleikunum á laugardaginn um
næstu helgi. Þetta er tvímælalaust
merkasti maður sem ég hef hitt og
skýringar á þessum kröftum hans
mætti ræða í sjálfstæðri Fréttablaðs-
grein,“ segir tónlistarmaðurinn af
kunnuglegri drift.
Fundaflakk um Mesópótamíu
Í miðjum undirbúningi þessara
stórtónleika var Jakob svo sendur
sem alþingismaður til Bagdað í
Miðausturlöndum í furðulegt og
ótrúlegt fundaflakk um hina fornu
Mesópótamíu, eins og hann kemst
sjálfur að orði, „meira að segja í ald-
ingarðinn Eden í fylgd með fremstu
trúarleiðtogum Íraks, forseta lands-
ins og f lestum ráðherrum, og loks
fjölskyldu sjálfs Saddam Hussein.“
Lífið er nefnilega lyginni líkast –
og listin líka.
Og hann hlakkar til tónleikanna
næsta laugardag þar sem það besta
af sólóferli kappans verður f lutt
í bland við bestu lög Stuðmanna
fyrir hlé, áður en konseptverkið
Jack Magnet verður frumflutt í heild
sinni í fyrsta skipti hér á landi. n
Óli Hjörtur Ólafsson
Óli Hjörtur Ólafsson, kynningar- og
útgáfustjóri Stockfish-kvikmynda-
hátíðarinnar, nefnir Óskarinn sem
einn hápunktinn í fréttum liðinnar
viku.
„Númer eitt var Óskarinn og
það að Everything everywhere all
at once vann svona mikið. Ég bjóst
ekki við því, og ógeðslega geggjað
að Michelle Yeoh var fyrsta asíska
konan sem vann Óskarinn. Ég fer
sáttur frá borði með það,“ segir Óli.
„Fréttin sem kom í gær með
handtökuskipun á Pútín er frétt
sem ég bjóst ekki við,“ segir Óli
og vísar til handtökuskipunar
Alþjóðaglæpadómstólsins á Rúss-
landsforseta vegna stríðsglæpa í
Úkraínu. „Ég vonast til að þetta
lendi vel og verði ekki eitthvað
Skautadrottning, skotárás og Óskarsverðlaun
shitshow. Það verður spennandi
að fylgjast með,“ segir hann.
„Mér fannst ógeðslega gaman að
sjá Dag borgarstjóra birta mynd-
band af skautadrottningu á Reykja-
víkurtjörn, þetta var hlýtt í hjartað
og fékk mig til að hugsa: Þessi kuldi
var kannski ekki svo slæmur. Ég
vildi að ég væri svona góður á
skautum,“ bætir hann við og hlær.
„Svo er þessi skotárás á Dublin-
ers, hvað var að gerast
þar? Ég er ánægður
með að ekkert alvar-
legt hafi skeð. Ég vona,
sem maður sem hefur
starfað í skemmtana-
bransanum mjög lengi,
að þetta fari ekki
að færast í
a u k a n a , “
segir Óli. n
44 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. MARS 2023
LAUGARDAGUR