Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 13
og leggur til, að skólakerfi landsins sé samræmt sem
bezt í þeim tilgangi.
3. Flokkurinn vill styðja og efla þá sérskóla, er
veita hagnýta fræðslu í hinum ýmsu atvinnugreinum,
svo sem bændaskóla, sjómannaskóla, iðnskóla, verzl-
unarskóla o. s. frv., og bæta skilyrði þeirra til þess
að fullnægja þeim tilgangi sínum að verða atvinnu-
lífi landsmanna að liði.
4. Flokkurinn telur nauðsynlegt, að tryggja það
sem bezt, að barnakennslan í landinu verði framvegis
fullkomnari og meir í samræmi við þarfir fólksins í
hinu almenna starfslífi en verið hefir.
5. Flokkurinn leggur áherzlu á að auka húsmæðra-
fræðslu í landinu og stuðla í hvívetna að bættum
menntunarskilyrðum kvenna.
6. Flokkurinn leggur sérstaka áherzlu á það, að í
skólum landsins sé nemendum innrætt virðing og ást
á þjóðlegum verðmætum og unnið sem bezt að vernd-
un íslenzkrar tungu. Þá telur flokkurinn nauðsynlegt,
að aukin verði hlutlaus kennsla um þjóðfélagsfræði
og stjórnskipun landsins til þess að gera vaxandi
æskulýð að þroskuðum kjósendum. Loks telur flokk-
urinn æskilegt að taka upp í skólum landsins kennslu
og æfingar í framsögu og ræðuhöldum.
7. Flokkurinn telur þjóðarnauðsyn að vinna gegn
áfengisneyzlu í landinu, og vill hann leggja sérstaka
áherzlu á, að í öllum skólum landsins verði tekin upp
fræðsla um bindindismál og reynt verði að skapa
sterkt almenningsálit gegn neyzlu áfengis.
8. Flokkurinn telur sérstaka nauðsyn þess að vera
á varðbergi gegn því, að skólarnir séu gerðir að á-
róðurshreiðrum fyrir pólitíska flokksstarfsemi.
11