Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Blaðsíða 17
Ræða
formanns Sjálfstæðisflokksins, Ólafs Thors, forsætis-
ráðherra, við setningu Landsfundar 1945.
Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, er hald-
inn var í júní 1943, gerði ég allítarlega grein fyrir
viðburðunum á vettvangi íslenzkra stjórnmála frá
ársbyrjun 1940 til fundardags. Það voru merk ár og
viðburðarík og því eðlilegt að saga þeirra væri nokk-
uð rakin.
Síðan eru nú liðin tvö ár. Munu þau að sönnu jafn-
an talin hin merkustu, jafnvel svo, að til einskis verði
jafnað, jafnt í sögu þjóðar okkar sem umheimsins.
En þó er það svo, að sú saga er, hvað íslenzk stjórn-
mál áhrærir, fljótrakin fram til 21. október s. 1., enda
aðeins merk vegna einstaks stórviðburðar, en að öðru
leyti lengst af lítt viðburðarík og engum til sóma.
Mun ég því fara stutt yfir þá sögu.
Tímabilið frá síðasta landsfundi greinist í tvo
skýrt aðskilda hluta, nefnilega frá júní 1943 til 21.
okt. 1944 og frá þeim degi fram til dagsins í dag.
Skal nú vikið að hvorum kaflanum fyrir sig.
A. Fyrra tímabilið — til 21. október 1944:
Eins og kunnugt er, var í des. 1942 sett á laggirn-
ar utanþingsstjóm, er fór með völd til 21. okt. 1944.
15