Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Síða 28
sáttaboð Framsóknarflokksins og framsett, eftir að
hann vissi, að slík hugmynd hafði verið felld á flokks-
fundi Sjálfstæðismanna með atkvæðum allra 20 þing-
manna flokksins. Vissi því Framsóknarflokkurinn
fyrirfram um afdrif þeirrar tillögu, enda frá önd-
verðu augljóst mál, að Sjálfstæðisflokkurinn gat með
engu móti unað slíkum kostum, eftir þá reynslu, er
á var fallin og ádeilur flokksins á stjórn Björns
Þórðarsonar.
Er engin ástæða fyrir Sjálfstæðismenn að harma
það, að ekki tókust sættir við Framsóknarflokkinn,
og er vel, að þeir séu þess minnugir, að reynsla okkar
hefir frá of fáu góðu að segja um samstarf við þann
flokk, og að Framsóknarflokkurinn hefir með löngum
stjórnarstörfum bakað sér svo mikillar, réttmætrar
óvirðingar og óvildar allflestra, er við sjávarsíðuna
búa, að sérhver flokkur, er þangað sækir fylgi sitt,
leggur sig í stórhættu með einhliða samstarfi við
Framsóknarflokkinn.
Jafnframt kom í ljós, að Framsóknarflokkurinn
hafa kynnt sér, að eigi varð á komið samstarfi milli
Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokksins.
Framsókn skerst úr leik:
Með þessu var ljóst orðið, að Framsóknarflokkur-
inn var einráður í að taka ekki þátt í stjómarmynd-
uninni. Tilraunum til fjögurra flokka samstarfs lýsti
flokkurinn lokið. Hann vissi, að nefndu þriggja flokka
samstarfi varð eigi á komið. Hann setti þá kosti fyrir
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að tryggt var, að
að þeim yrði ekki gengið. Með þessu mun Framsókn-
26