Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 31
Stjórnin mynduð 21. okt.:
Hin nýja stjórn tók við völdum og gerði grein
fyrir stefnu þeirra, er að henni stóðu, á Alþingi hinn
21. október. Tel ég óþarft, svo oft sem það mál hefir
verið opinberlega rakið, að lýsa ýtarlega þeim mál-
efnasamningum.
Við Sjálfstæðismenn vil ég þó segja þetta:
Flokksstjórnin hafði farið að fyrirmælum síðasta
landsfundar flokksins um að freista þess að koma
á sem víðtækustu stjórnmálasamstarfi og jafnan
fylgt svo fast á eftir sem talið var auðið. Það hefir
tekizt að uppfylla höfuðkröfu landsfundarins að
koma á þingræðisstjórn. Út af fyrir sig er það fagn-
aðarefni, og er þá að gera sér grein fyrir, hvort
hnossið er of dýru verði keypt, þ. e. a. s., hvort flokk-
urinn hefir neyðzt til að gera nokkur þau afvik frá
stefnu sinni, er ótilhlýðileg þyki eða aðhyllast eitt-
hvað það, er frágangssök megi telja, í því skyni að
rétta við virðingu Alþingis og sameina kraftana í
baráttunni fyrir öryggi hins unga lýðveldis og fram-
tíðarheill þjóðarinnar.
Tvær undirstöður:
Málefnasamningur stuðningsmanna stjórnarinnar
stendur á tveim meginstoðum.
Annarsvegar að „vinna að því að tryggja sjálf-
stæði og öryggi íslands."
Hinsvegar að „tryggja það, að allir landsmenn
geti haft atvinnu við sem arðbærastan atvinnu-
rekstur."
Um fyrra málsatriðið, það er út á við veit, hefir
enginn ágreiningur komið í ljós, ekki einu sinni af
29