Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 34

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 34
um á og samúð með þeirri þjóðarnauðsyn, er stjórnin hefir tekið á sig að leysa úr. Er þetta að sjálfsögðu vítavert, en þó jafnframt dálítið kátbroslegt, vegna þess að kalinn í garð ríkisstjómarinnar stafar af því, að hún varð til þess að útvega fararleyfi þeirri stjórn, sem eðli málsins samkvæmt aldrei var né gat orðið annað en máttvana tákn hættulegs sjúkleika þingræðisins, og átti því að fara sem allra fyrst í friði og við fögnuð allra lýðræðissinnaðra manna. Stjómarandstaðan rökþrota: Það er löngu orðið öllum kunnugt af skriflegum gögnum málsins, að meðan Framsóknarflokkurinn ætlaði að taka þátt í ríkisstjórn, ef eigi tækist að viðhalda hinni óþingræðislegu stjórn, krafðist hann engra kauplækkana, heldur bauð hann fram kaup- hækkanir og hafði þá mjög á orði að slíkt væri sanngjarnt, vegna þess, að margir verkamenn hefðu orðið útundan, hvort heldur miðað væri við bændur eða þá verkamenn, er stærstan hlut hefðu frá borði borið. Þá var það ekki kauplækkanir, sem krafizt var, heldur vinnufriðar, sem átti að kaupa með kaup- hækkunum. Og þá vom það ekki fjárglæfrar að hvetja menn til framtaks, heldur fyrirhyggja. Það er því í þessu, sem fleim, augljóst, að Framsóknar- flokkurinn er ekki með öllu stefnulaus, heldur hefir hann tvær stefnur í hverju máli, allt eftir því hvort hann er sjálfur við völd eða ekki. Þá er það og augljóst, að eigi að framfylgja kröfu Tímans um að festa ekki kaup á framleiðslutækjum, fyrr en sýnt sé, að þau munu bera sig, getur orðið óþægilegur dráttur á framkvæmdunum. Allir vita, 32

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.