Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Síða 37

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Síða 37
stefnu flokksins. Þvert á móti hefir flokksforystunni tekizt að fá andstæðinga flokksins til að einbeita getunni í þágu nýrra, stórvirkra framkvæmda í at- vinnulífi þjóðarinnar, sem reistar eru á því þjóðskipu- lagi, sem flokkurinn fram að þessu hefir barizt fyrir og enn vill viðhalda. Jafnframt hefir samizt um framkvæmd sumra þeirra mála, er flokkurinn jafnan hefir borið fyrir brjósti, en önnur nú þegar náð fram að ganga, án þess sérstaklega væri um samið. Þykist ég mega treysta því, að flokkurinn fagni þessu og þá ekki sízt, þegar menn minnast þess, að jafnframt var reist úr rúst virðing Alþingis, og hins, hversu mörg og veigamikil verkefni eru framundan, sem vonlaust var að leysast myndu farsællega, ef sama óreiðan, glundroðinn og stjórnleysið, sem verið hafði undan- farið, hefði haldizt áfram. Hvað um efndirnar? En, segja menn, samningarnir eru ágætir, en hvað er um efndirnar? Eg þykist mega staðhæfa, að þegar á allt er litið, og með hliðsjón af, að enn eru eigi liðnir 8 mánuðir frá því að samstarfið hófst, hafi nú þegar tekizt furðu vel að efna heitin. Löggjöf um Nýbyggingarráð var sett fljótlega eftir að samstarfið hófst. Það tók brátt til starfa og hefir ötullega unnið að sínum afar mikilfengu og þýðingar- miklu verkefnum. En áður hafði stjórnin nokkuð undirbúið þau mál. Nýbyggingarráð hefir nú þegar hafið víðtækar rannsóknir um þörf og óskir íslenzkra atvinnurekenda og verkalýðs til nýrra tækja. Jafn- 3* 35

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.