Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Page 38
framt hafa verið lögð drög að því að festa kaup á
tækjunum og nokkrir samningar þar um þegar gerðir.
Tekizt hefir að tryggja rétt til að fá smíðuð mörg
vélskip erlendis og undirbúin smíði margra annarra
hérlendis. Hefir Nýbyggingarráð og ríkisstjórnin að
mestu haft forystu þess máls, jafnt um kaup og að-
drátt á efniviði og samningagerð um smíðina, sem
og fyrirgreiðslu um hagkvæm kjör einkaframtakinu
til handa. Hefði og samningur um kaup Svíþjóðar-
bátanna komið mörgum, er þá vildu eignast, að litlu
liði, ef ríkisstjórnin hefði eigi liðkað um öflun láns-
fjár til útvegsmanna.
Þá hefir og tekizt að fá heimild til að togarar
verði byggðir í Bandaríkjunum fyrir íslendinga og
liggja þegar fyrir ýms tilboð um byggingu þeirra.
Er talsvert dýrara að byggja skip í Bandaríkjunum
en Bretlandi og því óséð að þessi tilboð verði hag-
nýtt. Ennfremur hafa slík réttindi verið tryggð í
Svíþjóð, bæði að því er snertir togara og flutninga-
skip og eru nú tilboð væntanleg þaðan. Loks hafa
lengi staðið yfir umleitanir um að fá togara byggða
í Bretlandi. Hefir því máli verið fylgt fast eftir af
hálfu Islendinga og mun óhætt að segja, að vonir
standi til skjóts árangurs.
Leitazt hefir verið við að tryggja margskonar véla-
kaup í þágu landbúnaðar, iðnaðar og annarra fram-
kvæmda. Hefir sú viðleitni þegar borið nokkurn
árangur. Margt fleira hefir stjórnin, og þó einkum
Nýbyggingarráð, aðhafst til þess að hrinda í fram-
kvæmd því stefnumarki, „að allir landsmenn geti haft
atvinnu við sem arðbærastan atvinnurekstur“. Hefir
þeim málum þokað áleiðis, svo sem vonir stóðu frek-
36