Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 39

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Side 39
ast til. Hitt má svo engan undra, að eigi er kleyft að hrinda fyrirætlunum stjórnarliða í framkvæmd á örstuttum tíma, allra sízt á meðan styrjöldin enn geisar, að því er sum helztu viðskiptaiöndin snertir. Meðal annarra efndra fyrirheita eru þessi: Ríkisstjórninni tókst skömmu eftir valdatökuna að tryggja vinnufriðinn í landinu. Hafði þá all-lengi logað í verkföllum, er án efa hefðu stóraukizt, ef eigi var að gert. Ríkir nú meiri friður í þeim efnum en áður eru dæmi til, og hefir þannig vegna sam- starfsins fengizt öryggi í stað óreiðu, þar sem mest reið á og þegar mest reið á. Sett hafa verið launalög, svo sem heitið var. Hafa þau að sönnu eigi hlotið einróma lof, en þó mega menn gæta þess, að vegna misréttis og óreiðu, er skapazt hafði undir forystu Framsóknarflokksins, varð alls eigi lengur unað við það ástand, er ríkti. Jafnframt er svo hins að minnast, að enda þótt ríkið hafi nú loks bætt kjör starfsmanna sinna, geta þeir, er eftir því sjá, huggað sig við, að vart mun sá at- vinnurekandi, a. m. k. í höfuðstaðnum, að hann gjaldi eigi starfsmönnum sínum sýnu betur en ríkið enn gerir. Þá var og samþykkt á Alþingi dýrtíðarfrumvarp það, er um var samið. Samþykktir voru nýir skattar og við það staðið, er samið var um, að „leitast við að leggja skattana á þá, er helzt fá undir þeim risið“. Veit ég, að nýir skattar eru aldrei einhliða fagnaðarefni. En úr vöndu var að ráða. Mundu sjálfsagt ýmsir fremur hafa kosið að aðrar leiðir hefðu verið farnar til fjáröfl- unar, enda mun lengst af svo hafa verið og verða um 37

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.