Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Page 46
á fiskiskipum erlendis frá. Eru lántökur þessar að
vísu áhættulausar fyrir ríkissjóð, en sýna vel jafnt
stórhug stjómarliðsins sem vilja þess til að hagnýta
ríkisvaldið til fyrirgreiðslu um stórvirkar fram-
kvæmdir einstaklinga, félaga og sjálfseignarstofnana.
Enn má og geta um fyrirgreiðslu Alþingis fyrir út-
flutningi ísaðs fisks, fyrirmæli um byggingu lýsis-
herzluverksmiðju, styrk til hérlendra skipabygginga,
nýjar framfarir á sviði landhelgisgæzlu og björgunar-
starfsemi o. m. fl.
Þá sýndi og Alþingi glöggan skilning á nauðsyn
bættra samgangna og ákvað á fjárlögum næsta árs
í því skyni 22 millj. kr., eða meira en íl/2 millj. kr.
hærra framlag en fyrrverandi ríkisstjórn lagði til, en
setti auk þess ýms þörf lög á því sviði.
Loks voru samþykktar miklar f járveitingar og sett
mörg merk löggjöf um raforkumál, iðnaðarmál, póst-
og símamál, heilbrigðismál, kirkju- og kennslumál,
félagsmál, listir, bókmenntir, vísindi og margt fleira,
er allt sýndi skilning, velvilja, bjartsýni og stórhug,
en þó festu og stjórnsemi, er jafnan þurfti eigi aðeins
að velja, heldur og að hafna og jafnframt að hafa
gát á útgjöldunum, svo að tryggt þætti, að nægar
tekjur yrði fyrir hendi til þarfanna.
Tókst stjórnarliðum að marka stefnur í öllum þess-
um efnum og ná innbyrðis samkomulagi um allt, er
máli skipti.
Hefir hið nýja samstarf þannig borið verulegan
ávöxt einnig í mörgum mikilvægum lögum og ákvörð-
unum Alþingis, er marka munu spor á öllum sviðum
þjóðlífsins.
*
44