Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Síða 47
Samstarfið I ríkisstjórninni:
Samstarfið í ríkisstjórninni hefir eftir atvikum
gengið vel. Að sjálfsögðu hafa ekki alltaf allir verið
sammála, enda er þess ekki að vænta, jafn mikið
sem ber á milli um grundvallarsjónarmið þeirra, er
að ríkisstjórninni standa. En því ánægjulegra er að
geta sagt frá því, að með fáum undantekningum hafa
ráðherrarnir ýmist orðið sammála eða getað sætt
sig við þær ákvarðanir, er teknar hafa verið. En, svo
sem kunnugt er, ræður hver ráðherra sinni stjórnar-
deild og getur, innan þeirra takmarka, sem lög setja,
ráðið þar málum eftir vild. Geta aðrir ráðherrar eigi
hindrað slíkt nema með samstarfsslitum, sem þó oft
og einatt myndu eigi fá hindrað þann verknað, er um
kynni að vera deilt.
Nokkur verkefni:
Þess er enginn kostur að rekja hér þau verkefni, er
stjórnin hefir þurft við að fást. Þau hafa verið ákaf-
lega mörg og margvísleg og ekki alltaf vandalaus,
eins og ég að nokkru hefi vikið að. Hafa og eftir
lok Evrópustríðsins skapazt ýms ný úrlausnarefni,
sem reynt hefir verið og reynt mun verða að mæta
eftir því sem bezt þykir henta íslenzkum hagsmun-
um. Verður það auðvitað alltaf matsatriði hversu
giftusamlega til hefir tekist. En þó hika ég ekki við
að fullyrða, að fram úr mörgu eða jafnvel flestu er
mestu skiptir hefir ráðizt ólíku betur en auðið var,
ef eigi hefði tekizt að koma á ábyrgri þingræðis-
stjórn.
# # #
45