Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 52
krókódílatárum yfir allt saman. Þetta er ekki stjórn-
arandstaða. Þetta er naut í flagi.
Er og barátta stjórnarandstöðunnar fyrir það von-
laus, að nær öll þjóðin veit, að hún á alla sína velferð
undir því, að gæfa fylgi stjórnarliðum að starfi, svo
að hinar stórvirku framkvæmdir lánist sem allra
bezt. Þjóðin veit og skilur, að með þeim og þeim ein-
um hætti verður auðið að skapa henni ný skilyrði
blómlegs atvinnulífs og mikillar menningar í stað
þess að daga uppi í hinum nýja heimi og hverfa aftur
til fyrri vesaldóms.
Það er frumskylda stjórnarandstöðunnar í sér-
hverju lýðræðislandi að halda uppi heilbrigðri gagn-
rýni á valdhafana. Þeirri skyldu hafa andstæðingar
ríkisstjórnarinnar gjörsamlega brugðist. Hitt verða
stjórnarliðar þakksamlega að játa, að með baráttu
sinni hafa stjórnarandstæðingar sannað alþjóð manna,
að annað tveggja er, að efni standa ekki til réttmætr-
ar gagnrýni á stjórnarliðið eða hitt, að í andstöðuliði
stjórnarinnar skortir hyggindi og hófsemi til að halda
sæmilega á málum. Hvort sem heldur er, festir menn
beint eða óbeint til fylgis við stjórnarliðið.
Barátta stjórnarandstöðunnar gegn þeim velferð-
armálum komandi kynslóða á íslandi, er stjórnarlið-
ið hefir einsett sér, að bera fram til sigurs, mun því
efla stjórnina en ekki veikja, og ekki mun það sízt
safna þorra manna til fylgis við stefnu stjórnarliða,
að þeir setja sér fyrir hugskotssjónir, hvað af hefði
leitt og hversu hér væri umhorfs, ef sú stefna hefði
náð valdaaðstöðu, sem Tíminn hefir haft á oddinum
frá því stjórnarskipti urðu.
Meðan sjávarútvegurinn skilar arði, sættir verka-