Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 55

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1945, Qupperneq 55
hvetja til áframhaldandi samstarfs, að óbreyttum kringumstæðum, á meðan þess er kostur, á skynsam- legum grundvelli. * Baráttan fyrir stefnu flokksins nauðsynleg: Þrátt fyrir þetta bið ég Sjálfstæðismenn að missa aldrei sjónar á því, hversu áríðandi er að halda uppi baráttu fyrir stefnu flokksins. Slíkt er að sjálfsögðu hægt með fullum drengskap gegn samstarfsmönnum, því hvorki hefir verið til þess mælzt, né látið falt, að niður væri felld baráttan fyrir hugsjónum og stefnumálum flokksins, né úr henni dregið. Sjálf- stæðisstefnan er án alls efa hin eina þjóðmálastefna, er hæfir íslenzku lundarfari og íslenzkum staðhátt- um. Það mun þjóðin bezt skilja ef að því ræki, að hún fengi að reyna aðrar stefnur í framkvæmd. ís- lendingár heimta eigi aðeins skoðanafrelsi, málfrelsi, fundafrelsi og kosningafr'elsi. Þeir heimta einnig sem allra víðtækast athafnafrelsi. Þeir krefjast þess, að hver og einn njóti góðs af sínu framtaki. Verði þær kröfur bældar niður, mun framtakið lamast og af- raksturinn þverra að sama skapi. Hitt er svo annað mál, að þótt aldrei megi gleyma þessum meginkjarna sjálfstæðisstefnunnar og aldrei linna á baráttu fyrir sigri hennar, þá ber Sjálfstæðis- mönnum að taka opnum örmum öllu því bezta í nýj- um boðskap stjórnmálanna, og aldrei víla fyrir sér að hagnýta það úr stefnum eða starfsháttum and- stæðinganna, er til heilla horfir og bezt hentar hags- munum almennings á hverjum tíma. Með því móti 53

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.