Fréttablaðið - 24.03.2023, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.03.2023, Blaðsíða 19
Hótelrekstur og heimili er með frábært úrval af dúnmjúkum bað- sloppum sem veita þér ekta spa-upplifun. Verslunin Hótelrekstur og heimili býður vandaðar vörur á hagstæðu verði sem henta einstaklingum jafnt sem fimm stjörnu hótelum. Það má með sanni segja að Ragn- heiður Sigurðardóttir, oftast kölluð Ragga, sé ótæmandi viskubrunnur þegar kemur að hótelrekstri, og sér í lagi í vali á efnum á rúmfötum, dúkum og handklæðum, borð- búnaði og ýmsu fleiru sem gerir gistinætur að ógleymanlegri upp- lifun. Ragnheiður hóf starfsferil- inn einungis átta ára gömul, þegar hún byrjaði að vinna hjá afa sínum í Efnalauginni Björg, sem hann stofnaði fyrir sjötíu árum síðan. „Þar lærði ég að þekkja meðal ann- ars mun á efnum og gæðum þeirra, meðhöndlun, hreinsun og þvott á fatnaði og líni og margt fleira,“ segir Ragnheiður. „Draumurinn var alltaf að stofna mitt eigið fyrirtæki þar sem mín þekking og reynsla gæti nýst mér til fulls og því varð úr að ég stofnaði fyrirtækið Hótelrekstur og heimili árið 2014. Hvort tveggja hótel og einstaklingar geta verslað við okkur í versluninni að Hátúni 6a eða í vefversluninni hotelrekst- ur.is,“ segir Ragga. Eingöngu það allra besta fyrir hótel og einstaklinga Ragga segir að undanfarin ár hafi víða sprottið upp vinsælar verslanir sem selja hótelvörur til heimilisnota. Ástæðan er einföld. „Í hótelrekstri er nauðsynlegt að finna endingarbestu vöruna á samkeppnishæfu verði ef ekki eiga að tapast tugir milljóna í rekstri. Lukkulega eru fæst okkar að leggja jafnmikið undir og hótelin í kaup- um á rúmfötum, handklæðum og öðru smáræði. En það finnst varla betri trygging fyrir gæðum en að læra af reynslu þeirra sem geta prýtt hótel sín fimm stjörnum. Mitt markmið er að tryggja mestu gæði og endingu í vöruúrvali og nú býðst bæði einstaklingum og hótelum að nýta mína þekkingu og reynslu til að tryggja kaup á því allra besta sem fæst,“ segir hún. Gæði næst líkamanum Að sögn Röggu þarf að huga að mörgu þegar kemur að kaupum á líni, enda sé það einmitt efnið sem snertir líkamann hvað mest. „Allt okkar lín kemur frá Þýskalandi og Ítalíu. Það skiptir gríðarlega máli að það sem kemur næst líkaman- um eins og sængurver, sloppar, handklæði og annað andi og viðhaldi raka í húðinni. Einnig þarf að vera hægt að þvo þetta allt við 95°C.“ Gæði rúmfata eru sér- staklega mikilvæg enda sofum við að meðaltali í 6-8 tíma á sólar- hring. Þráðafjöldinn í efninu spilar þar lykilhlutverk. „Það getur verið villandi fyrir neytendur þegar verið er að auglýsa að efni séu 1.200 þráða eða annað slíkt. Stað- reyndin er sú að þræðir eru mældir á hvern 2,5 fersentímetra og það komast bara ákveðið margir þræðir fyrir. Venjulega komast ekki fleiri en 300 þræðir fyrir á þessu bili, séu þeir í eðli- legri þykkt. Ef verið er að auglýsa að það séu fleiri þræðir, þá hafa þræðirnir annað hvort verið klofnir eða þá að mælieiningin er 5cmx5cm eða jafnvel hærri. Í versluninni eigum við úrval af lúxus rúmfötum sem er alger dásemd að sofa í. Fyrir þau allra kröfuhörðustu mæli ég sérstaklega með silkinu, hörnum og sængur- verasettunum með maco-bómull.“ Dúkar og servíettur þurfa að þola æði margt. „Þrátt fyrir hlutverkið þá þurfa dúkarnir og servétt- urnar að vera falleg og gleðja augað. Hjá Hótelrekstri og heimilum fást bæði kringlóttir og ferkant- aðir dúkar í mörgum stærðum úr straufríu efni, bómull og hör. Einnig er mikið úrval af serví- ettum úr bómull og hör,“ segir Ragga. Þar sem gæði og umhverfisvernd fara saman Ragga segir að silki-, hör- og maco-bómullarrúmfötin séu fyrir dekurrófurnar sem elska að kúra í mjúku rúmi. Servéttur og dúkar þurfa að þola mikinn þvott en verða samt sem áður að gleðja augað. Myndir/aðsendar Í versluninni fást guðdómleg silkikoddaver sem fara vel með húð og hár. Umhverfisvænar hreinlætisvörur Í versluninni fást sápur í hæsta gæðaflokki sem uppfylla ströng- ustu kröfur hótela, hótelgesta og einstaklinga. „Sápurnar okkar koma frá Bretlandi, eru para- benfríar og eru unnar úr nátt- úrulegum efnum. Þær eru með hunangi og mangói og línan er að sjálfsögðu ekki prófuð á dýrum. Vörurnar koma í 30 ml og 300 ml umbúðum. Og sem umhverfis- vænan kost þá bjóðum við upp á fimm lítra áfyllingu af sjampói og hárnæringu saman sem og sturtu- sápu og handsápu ásamt hand- áburði og líkamskremi. Hótelin hafa fengið sérstaklega góða dóma fyrir þessa línu enda eru engin aukaefni í vörunum.“ Lúxusinn margborgar sig „Svo vill til að allt varðandi heim- ilisvörur og þrif er á mínu áhuga- sviði og hef ég mikla þekkingu og reynslu í því. Ég get líka sagt að það er ekki bara lúxus að vanda valið, heldur er það einnig fjár- hagslega skynsamlegt til lengri tíma litið.“ Vilji lesandi vera ábyrgur innkaupastjóri eigin heimilis eða hótels án þess að gefa eftir í dekrinu, þá er ekki úr vegi að setja sig í samband við Röggu. Enda talar hún af hugsjón og brennandi áhuga á öllu því sem skilar þér ein- stakri heilsulindarupplifun heima og á hótelherberginu. n kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 24. mars 2023 Allt fyrir hótel og veitingAhús

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.