Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Qupperneq 61

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Qupperneq 61
Vestnorden — sameiginlegt verkefni landonna aö var á samnorrænni ráðstefnu um skipulagsmál, „Nordisk planmode", sem haldin var í Reykjavík árið 1984, að hugmyndin kom fyrst fram um samstarf og umræður um skipulagsmál á milli þjóðanna í út-norðri. Á sameiginlegum fundi íslenskra, færeyskra og grænlenskra arkitekta og skipu- lagsfræðinga var rætt um innihald og markmið skipulagsmála þessara landa. Mönnum þótti sem ráðstefnan fjallaði í einu og öllu um skipu- lagsmál sem sérstaklega vörðuðu Danmörku, Noreg, Svíþjóð og Finnland og þótti því ástæöa til að bæta um betur og hefja einhvers konar samstarf innbyrðis, sem tæki meira mið af þörfum þessara þjóöa. Grænlendingarnir, sem voru sérlega áhuga- samir um að samstarfsverkefnið færi sem fyrst af stað, komu með eftirfarandi verkefnislýs- ingu: 1. Uppbygging skipulagskerfisins í þessum verkþætti skyldu fulltrúar hvers einstaks lands kynna uppbyggingu og aðal- áherslur í skipulagsmálum í sínu landi, til dæmis sambandið á milli hinna mismunandi skipulagsgerða og gildi þeirrar sundurgrein- ingar. I þessu sambandi skyldi einnig litiö á samhæfingu efnahagslegrar og eölisrænnar skipulagningar. Loks skyldi rætt um sameigin- lega reynslu og hugsanlegar lausnir á hinum ýmsu vandamálum. 2. Sambandið á milli ríkis og sveitarstjórna Reynslan af heildarsamræmingu í skipulags- málum og forsvaranlegur grundvöllur fyrir sjálfstæðu sveitarfélagi. Hvar eiga markalínur skipulags aö vera í þessu sambandi og í hvaöa röð á að skipa viðfangsefnunum niður? 3. Um áhrif almennings á ákvarðanatöku Opinberar umræður um ýmiss konar skipu- lagsmál. Hvað er gert í þessum efnum og á ekki að stefna að auknu lýðræði á þessu sviði? 4. Skoðanaskipti í framtíðinni Lagt er til að samstarfið haldi áfram eftir að þeásu sérverkefni sleppir, innan ramma Norð- urlandaráðs og Vestnorræna samstarfsins. Þessi málaflokkur er mjög viðamikill og marg- þættur. Nú þegar hefur mikil vinna verið lögð í aukið samstarf í ferðamannaþjónustu og iön- aði, auk þess sem tungu- og menningarmál hafa verið mun betur kynnt heldur en áður var. Öll þessi atriði voru samþykkt í meginatriöum. Verkefnið hófst í júni árið 1987. Aðalmarkmiö þessa verkefnis var í upphafi að fjalla fyrst og fremst um atvinnu- og menningarmál, en skipulagsmálin hafa orðiö mjög afgerandi þátt- ur I verkefninu þegar á hefur reynt og málin betur rædd. Ljóst er að margt er líkara með aðstöðu þessara þjóða heldur en með öðrum Norðurlöndum, mætti í þessu sambandi nefna fámenni, hliðstæður í atvinnulífi, tiltölulega erf- ið veðurfarsleg skilyrði, samgöngur og vissa einangrun frá umheiminum. Þeir sem til verkefnisins völdust voru aðilar sem annað hvort vinna við skipulagsmál eða byggðarannsóknir/atvinnumál í viðkomandi löndum. Fljótlega var ákveðið að velja ákveðin sveitarfélög í hverju landi og gera eins konar samanburð á stööu þeirra. Færeyingar völdu til skoðunar Klakksvík og Þvereyri, Grænlending- ar völdu Holsteinsborg og Jakobshavn, en (s- lendingar völdu Eskifjörö og Neskaupstað. Saman feröuðust þátttakendur til þessara staða og fengu upplýsingar um ýmsa þá þætti sem eru einkennandi fyrir hvert sveitarfélag. Þessi sveitarfélög eru nokkuð mismunandi stór en eiga það hins vegar öll sameiginlegt aö í þeim eru sjávarútvegur og fiskveiðar áberandi mikilvægustu atvinnuvegirnir. Það var mjög áhugavert að rannsaka sögulegan feril þessar- ar byggðarlaga; samhengið á milli atvinnuþró- unar annars vegar og hins vegar byggöaþróun- ar. Á seinni tímum fara síðan ýmiss konar fé- lagslegir þættir að gegna stærra hlutverki, auk þess sem bættar samgöngur breyta hugarfari manna, beint og óbeint, og stuðla að auknu vali um búsetu og störf. Ýmsir fleiri þættir koma einnig til, svo sem aukin tækni í at- vinnurekstri, markviss byggðastefna, ástand efnahagsmála í þjóðfélaginu sem heildar og landfræðilegar aðstæður á hverjum staö. Fær- eyingar og Grænlendingar sýndu verkefninu sérstakan áhuga, hvað viðvíkur skipulagsmál- um, enda stendur til að gera þar breytingu á lögum og reglugerðum á þessu sviði, eins og unníð hefur verið að hér á íslandi. Þau lög og reglugerðir sem nú gilda í þessum löndum eru meira og minna ættuð frá Danmörku og eru að ýmsu leyti utan viö það samhengi sem þeim er ætlað. Nú er í gangi úrvinnsla á þeim gögnum og upplýsingum sem safnað hefur verið og er áætlað að samræmd skýrsla sjái dagsins Ijós haustið 1988. Við sem að þessu höfum starfað vonumst til að eitthvað bitastætt komi fram, sem getur komið að gagni fyrir þá sem með þessi mál fara. Jafnframt teljum við að æski- legt væri í framtíðinni að verja meiri tíma og fjármunum í ýmiss konar samstarfsverkefni af þessu tagi, ef vel tekst til nú. Benedikt Björnsson 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.