Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Síða 75
Lækjartungl
Hlutverkaskipti húss
Lækjartungl er dæmi um staö þar sem átt hafa
sér staö hlutverkaskipti húss. í húsinu var Nýja
bíó lengst af og eru innréttingar þess notaðar
aö nokkru leyti.
f salnum niðri (almenn sæti) hafa bekkirnir
veriö fjarlægðir og þar komiö fyrir bar og
dansgólfi. Á svölunum eru svo gerðir pallar
þar sem komið er fyrir setkjörnum og börum,
en þaðan má sjá yfir dansgólfið á svið sem nú
er framan við bíótjaldið.
Forsalurinn, þar sem menn sötruðu kókið í
hléum, er að miklu leyti óbreyttur. Bar hefur
verið komið þar fyrir, en græni veggmarmarinn
og glermyndirnar fá að njóta sín óbreytt áfram
sem betur fer.
Baö skemmtilega við innréttinguna er nefnilega
aö sjá gömlu hlutina í nýju hlutverki. Sumum
kann þó e.t.v. aö þykja skjóta nokkuð skökku
við að sjá þessar fínlegu glermyndir og önnur
„raritet" innan um tiltölulega billega smíðaða
spónaplötubari, en þó verður að segjast að
nokkuð vel hafi tekist til um allt skipulag.
Reyndar sakna ég þess svolítið að sjá ekki enn
frekar útfærða þá bíóstemmningu, sem ennþá
er til staðar I húsinu. Þetta hefði mátt gera
með ýmsum gömlum munum frá bíóheimin-
um, svo sem kvikmyndavélum, plakötum
o.þ.h. Gömlu bíóbekkirnir eru þó notaðir áfram
og mynda setkjarnana á svölunum og eru þeir
með þeim sérkennum bíó- og leikhússtóla að
spretta upp, þegar maöur stendur upp. Þetta
er annars mjög plásspraktískt og mætti e.t.v.
nota þessa brellu víðar þar sem bæði er gengið
um og setiö. Merkingar og númeringar er og
víða aö finna og minna á eldra hlutverk húss-
ins.
Innréttingarnar I Nýja bíó voru um 40 ára
gamlar og var mjög til þeirra vandað á sinni
tíð. En rekstrarform bíóhúsa hefur breyst mik-
ið I seinni tíð og þar með úreltist form hússins
til bíóreksturs, þótt innréttingarnar sem slíkar
standi fyrir sínu. Pað er oft eftirsjá aö gömlum
innréttingum. Bíóhús voru líka oftast þannig
innréttuð að þau endurspegluðu vel stíl og
tíðaranda síns tíma. Má þar t.d. nefna spútnik-
stíl Laugarásbíós, sem þótti mjög sérstæður á
sínum tíma. Þaö er skemmtilegt að reyna að
halda í þessa gömlu hluti og nýta þá í nýjum
hlutverkum, því í sjálfu sér eru innréttingarnar
menningarverðmæti ekki síður en byggingar.
í kjallara hússins eru ennþá innréttingar frá
enn eldri tíma, Rosenbergkjallarinn. Þar hafa
skreytingar í lofti og á veggjum fengið að halda
sér. Líklegt er að álíka ornament og skreyting-
ar frá fyrstu innréttingum hússins leynist undir
klæðningunum frá breytingunum sem gerðar
voru fyrir um 40 árum.