Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Page 87
GÆSLUVELLIR.
Gæsluvöllur.
ibúöasvæði þar sem lengra
er til gæsluvallar en 400m.
Hugmynd að gæsluvelli.
2. Hlutverk hverfaskipulags
Hlutverk hverfaskipulags er að kveða nánar en
gert er í aðalskipulagi á um helstu skipulags-
þaetti hvers borgarhluta, með áherslu á hvar
breytinga er að vænta eða hvar þeirra er þörf.
Hverfaskipulag setur ekki skipulagsskilmála
varðandi einstakar byggingar eða breytingar á
húsnæði í viðkomandi borgarhluta, heldur eru
sett fram leiöbeinandi markmið í þessu sam-
bandi. Hverfaskipulag er sýnt á svokölluöum
einblöðungi sem verður dreift inn á hvert
heimili í viðkomandi borgarhluta. Meginhlut-
verk hverfaskipulagsins er að veita íbúum ein-
stakra hverfa upplýsingar um skipulag og áætl-
aöar framkvæmdir í nánasta umhverfi þeirra. Á
þann hátt fá íbúarnir betri vitneskju um þær
skipulagsforsendur sem til staðar eru í við-
komandi hverfi, svo sem notkun og nýtingu
einstakra lóða eða svæða, fyrirhugaðar bygg-
ingar stofnana eða fyrirtækja, umferðarmann-
virki, tengsl þeirra og stöðu í ferða- og gatna-
kerfi borgarinnar, almenn útivistarsvæði,
göngu- og hjólreiðaleiðir, leikvelli o.fl.
3. Helstu þættir hverfaskipulags
Skipulagsvinnu hefur veriö líkt við „púsluspil",
þ.e. skipuleggjandinn reynir að raða saman
ýmsum þáttum í samfélagi okkar á þann hátt
sem best þykir hverju sinni. I hverfaskipulagi
er fyrst og fremst fjallað um fimm meginþætti:
umferð, húsnæði, þjónustu, umhverfi og íbúa.
4. Framkvæmd hverfaskipulags
Borgaryfirvöld hafa sett sér þau markmið að
framkvæma þær hugmyndir sem fram koma í
hverfaskipulaginu á 3-5 árum eftir að skipu-
lagsáætlunin er samþykkt í borgarráði/borgar-
stjórn. Þá er átt við allar minni háttar fram-
kvæmdir á opnum svæðum og til að auka um-
ferðaröryggi borgarhlutans. Meiri óvissa er um
allar meirir háttar breytingar á gatnakerfinu
sem fram koma í hverfaskipulaginu og hugs-
anlegan framkvæmdartíma þeirra.
85