Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Qupperneq 9
OG SKIPULAG
Forsíðumynd er af böðum og búnings-
herbergjum, Laugardalslaug, Reykjavík.
arkitekt: Jes Einar Þorsteinsson
Ijósmynd: Gestur Ólafsson
EFNISYFIRLIT
9 ÍÞRÓTTAMANNVIRKI í REYKJAVÍK JÚLÍUS HAFSTEIN
15 AÐSTAÐA TIL IÐKUNAR FRJÁLSÍÞRÓTTA HÉRLENDIS JÓNAS EGILSSON
18 ÞÁTTUR ÚR SÖGULEGU YFIRLITI ÍÞRÓTTAMANNVIRKJA Á ÍSLANDI ÞORSTEINN EINARSSON
24 ÞRÓUN í BYGGINGU ÍÞRÓTTAHÚSA GÍSLI HALLDÓRSSON
28 SUNDLAUGAR JES EINAR ÞORSTEINSSON
30 ÍÞRÓTTABYGGINGAR, SKIPULAG OG BYGGINGARLIST SKÚLI NORÐDAHL
34 SUNDLAUG KÓPAVOGS HÖGNA SiGURÐARDÓTTIR
36 STEFNA RÍKISINS í GERÐ ÍÞRÓTTAMANNVIRKJA REYNIR KARLSSON
41 SUÐURB/EJARLAUG í HAFNARFIRÐI SIGÞÓR AÐALSTEINSSON
43 ÁSGARÐUR.ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ í GARÐAB/E MANFREÐ VILHJÁLMSSON
46 HUGMYNDASAMKEPPNI UM NÝTINGU BALDUR Ó. SVAVARSSON
VIÐEYJAR EGILL GUÐMUNDSSON ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
49 NÝJUNGAR
51 BÁRUNJÁRNSBLÚS SIGURÐUR EINARSSON
57 ALVERKTAKA.af hverju? JÓNAS FRÍMANNSSON
60 Á TEIKNIBORÐINU.KJARVALSSAFN GUÐMUNDUR JÓNSSON
67 KYNNING: FORM ÍSLAND
71 LÉTTSTEYPA HARALDUR ÁSGEIRSSON ,
74 SKIPULAG OG BYGGÐ GEIRHARÐUR ÞORSTEINSSON
78 ENGLISH SUMMARY ANNA H, YATES
81 RESTON OG CÓLUMBÍA, NÝIR BÆIR í BANDARÍKJUNUM ÓLAFUR B. HALLDÓRSSON
84 ÚTILISTAVERK OG UMHVERFI AÐALSTEINN INGÓLFSSON
88 SJÓVÁ- ALMENNAR INIGMUNDUR SVEINSSON
1. tbl.J 1 árgangur 1990. ÚTGEFANDIi: SAV.Hamraborg 7,200 Kóp. SÍMI45155, RITSTJÓRI
OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Gestur Ólafsson, RITNEFND: Auöur Sveinsdóttir, Birgir H,
Sigurðsson, Jakob E, Líndal, __Kjartan Jónsson, Sigurður Einarsson, Trausti Valsson, _
Þorsteinn Þorsteinsson, PRÓFÖRK: Jóhannes Halldórsson, ÚTLIT, UMBROT OG UMSJÓN:
Guðbjörg Garðarsdóttir, AUGLÝSINGASTJÓRI: Hildur Kjartansdóttir, ENSKUR ÚRDRÁTTUR:
Anna H. Yates, DREIFING: Ágústa Hrund Emilsdóttir PRENTUN: Oddi hf. © S.A.V. Öll
réttindi áskilin hvað varðar efni og myndir. Auglýsingasími: 621486
Á síðustu áratugum hafa Islend-
ingar verið að gera sér betur og befur
grein fyrir pvi hve iðkun íprótta í einhverri
mynd er mikilvœg fyrir heilsu okkar, þrek
og sjálfsálit í daglegu umhverfi sem er
sífellt að verða meira og meira
tœknivcett. Þótt nóttúran sjálf bjóði upp á
margskonar möguleika til íþróttaiðkunar
þá fullnœgir hún ekki lengur öllum óskum
og þörfum landsmanna hvað þetta
varðar._
íþróttamannvirki, þar sem lands-
menn geta stundað íþróttir allt árið eru
yfirleitt bœði dýr og sérhœfð, þannig að
ekki er hcegt að koma til móts við óskir
allra. Menn greinir einnig á um hve miklu
fé skuli verja til keppnisíþrótta í stað
almenningsíþrótta og á það er einnig
bent að aðstaða mismunandi aldursflokka
til íþróttaiðkunar er mjög mismunandi,
Sama máli gegnir um þjóðfélagshóþa
sem hafa sérstakar þarfir í þessum efnum.
Mörg íþróttamannvirki eru það dýr
að það er ekki á fceri einstakra
íþróttafélaga að kosta byggingu þeirra
og rekstur. Ríki og sveitarfélög hafa því
mikil áhrif á þessi mól og sú stefna sem þau
móta getur ráðið úrslitum um það hvaða
aðstaða er byggð upp og hvar.
Fátt er mikilvcegara en að eiga
heilbrigðan líkama til að taka á móti því
sem lífið sendir okkur, í skólakerfinu njótum
við flest mjög góðrar íþróttaaðstöðu, en
að því loknu eiga margir í miklum
erfiðleikum við að finna íþróttaaðstöðu
við sitt hcefi. Öll viljum við llka hafa
aðstöðu til fjölbreyttrar líkamsrœktar svo
lengi sem aldur og heilsa leyfa og það er
undir okkur sjálfum komið að þessi
aðstaða verði byggð upp eins og við
viljum hafa hana.
Án almennrar umrceðu um þessi
má er viðbúið að margir beri hér skarðan
hlut frá borði.
Tímaritið Arkitektúr og skipulag
leitaði pvítil nokkurra aðila sem hvað mest
hafa verið leiðandi í iþróttamálum á
íslandi á undanförnum árum í þeirri von að
reynsla þeirra gceti stuðlað að frekari
umrœðu og stefnumótun í þessum
málum, ■
GESTUR ÓLAFSSON ritstjóri.