Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 34

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 34
SKILAFRESTUR FRAMLENGDUR TIL 15.SEPTEMBER 1990 LJÓSMYNDASAMKEPPNI GÓÐAR Ijósmyndir af íslenskri byggingarlist eru mjög mikilvœgar til þess að sýna fram á gildi góðrar hönnunar við mótun umhverfis á íslandi. Byggingar hafa líf. Þœr breytast í Ijósi hvers dags. Þœr vakna á morgnana þegar Ijósin eru kveikt og ganga til náða á kvöldin með íbúunum. Þœr verða til, taka stöðugum breytingum á sínu œviskeiði og hverfa flestar að lokum. Góðar Ijósmyndir eru ómissandi til þess að skrá þessa sögu. í tilefni af tíu ára afmceli tímaritsins Arkitektúr og skipulag hefur ritstjórn blaðsins ákveðið að efna til Ijósmyndasamkeppni af íslenskri byggingarlist. Dómnefnd mun velja úr innsendum myndum 100 athyglisverðar myndir og munu höfundar þeirra allir hljóta ókeypis ársáskrift að Arkitektúr og skipulag.Úr þessum 100 myndum velur dómnefnd síðan þrjár tillögur sem hljóta í verðlaun myndavélar af gerðinni Chinon- Handyzoom og filmur sem verslun Hans Petersen hf. gefur, Þátttakendur skulu skila kópíum af myndum í lit eða svarthvítu til S.A.V. Hamraborg 7, 200 Kópavogi fyrir 1. mars 1990. Þessar myndir geta verið af hvaða stœrð sem er, lagt er til að þcer séu af stœrðinni 25 x 20 cm. Þátttakendur mega skila flest þremur myndum hver og með þeim skal fylgja nafn og heimilisfang höfundar í lokuðu umslagi. Þessum myndum verður ekki skilað, nema þess sé sérstakiega óskað. Þáttakendur ábyrgjast að viðkomandi myndir hafi verið teknar af þeim, að þeir hafi fullan réft yfir þeim, og að þœr hafi ekki fengið viðurkenningu í samkeppni. Tímaritið Arkitektúr og skipulag áskilur sér rétt til þess að birta verðlaunaðar myndir og skuldbinda höfundar þeirra sig til að láta tímaritinu í té filmur af þeim. Dómnefnd skipa: Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, ívarTörök, hönnuður, Jakob Líndal, arkitektog Leifur Þor- steinsson, Ijósmyndari. ■ ARKITEKTUR O G SKIPULAG

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.