Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Blaðsíða 34
SKILAFRESTUR FRAMLENGDUR TIL 15.SEPTEMBER 1990
LJÓSMYNDASAMKEPPNI
GÓÐAR Ijósmyndir af íslenskri byggingarlist eru mjög
mikilvœgar til þess að sýna fram á gildi góðrar hönnunar
við mótun umhverfis á íslandi.
Byggingar hafa líf. Þœr breytast í Ijósi hvers dags. Þœr
vakna á morgnana þegar Ijósin eru kveikt og ganga til
náða á kvöldin með íbúunum. Þœr verða til, taka
stöðugum breytingum á sínu œviskeiði og hverfa flestar
að lokum. Góðar Ijósmyndir eru ómissandi til þess að skrá
þessa sögu.
í tilefni af tíu ára afmceli tímaritsins Arkitektúr og skipulag
hefur ritstjórn blaðsins ákveðið að efna til
Ijósmyndasamkeppni af íslenskri byggingarlist. Dómnefnd
mun velja úr innsendum myndum 100 athyglisverðar
myndir og munu höfundar þeirra allir hljóta ókeypis
ársáskrift að Arkitektúr og skipulag.Úr þessum 100 myndum
velur dómnefnd síðan þrjár tillögur sem hljóta í verðlaun
myndavélar af gerðinni Chinon- Handyzoom og filmur
sem verslun Hans Petersen hf. gefur, Þátttakendur skulu
skila kópíum af myndum í lit eða svarthvítu til S.A.V.
Hamraborg 7, 200 Kópavogi fyrir 1. mars 1990. Þessar
myndir geta verið af hvaða stœrð sem er, lagt er til að
þcer séu af stœrðinni 25 x 20 cm. Þátttakendur mega
skila flest þremur myndum hver og með þeim skal fylgja
nafn og heimilisfang höfundar í lokuðu umslagi. Þessum
myndum verður ekki skilað, nema þess sé sérstakiega
óskað. Þáttakendur ábyrgjast að viðkomandi myndir
hafi verið teknar af þeim, að þeir hafi fullan réft yfir þeim,
og að þœr hafi ekki fengið viðurkenningu í samkeppni.
Tímaritið Arkitektúr og skipulag áskilur sér rétt til þess að
birta verðlaunaðar myndir og skuldbinda höfundar þeirra
sig til að láta tímaritinu í té filmur af þeim.
Dómnefnd skipa: Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt,
ívarTörök, hönnuður, Jakob Líndal, arkitektog Leifur Þor-
steinsson, Ijósmyndari. ■
ARKITEKTUR
O G SKIPULAG