Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 61

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 61
verkum í alverktöku og skulu hér nefnd 4 þeirra, sem hafa öll verið unnin á síðustu þremur árum: 1) Bamaskóli í Artúnsholti í Reykjavík. 2) Tæknigarður, skrifstofuhús við Háskóla Islands. 3) Verksmiðja og skrifstofur Málningarverksmiðjunnar Hörpu í Reykjavík. 4) Þjónustuhús (skrifstofur, mötuneyti, rannsóknarstofur, íbúðir) fyrir Islenska jámblendifélagið á Grundartanga. Samningar um ofangreind verk náðu til allra verk- þátta frá jarðvinnu til Iokafrágangs og innifólu hönnun og stjómun. Upphæð hvers samnings var á bilinu 80-160 millj. kr. miðað við verðlag í feb. 1990, en framkvæmda- tími var á bilinu 6-12 mánuðir. Tvö verkanna vom unnin að undangengnu lokuðu útboði en tvö samkvæmt beinum samningum. Það er mat höfundar að vel hafi cekist til við öll þessi verk, áætlanir stóðust og samvinna milli verkkaupa og verk- taka var góð. Ekki er rúm til þess í stuttri grein að fjalla frekar um einstök verk. Þess í stað verður reynt að draga saman fáein reynsluatriði. IV. NOKKUR REYNSLUAÐRIÐI a) Hvenær hentar alverktaka. Alverktaka hentar vel við byggingu algengra mannvirkja, sbr. þau fjögur hús sem nefnd eru hér að framan. Hins vegar hentar hún síður fyrir óvenjuleg verk eins og til dæmis Flugstöð Leifs Eiríkssonar. b) Utboð eða beinir samningar. Alverktaka nýtur sín best þegar verkkaupi velur verktaka og semur beint við hann. Undirbúning og hönnunarlausnir er þá unnt að vinna í nánu samráði aðila. Verkkaupi, sem ætlar að byggja, ákveður fjárhagsramma og síðan er það sameiginlegt verkefni verktaka og verkkaupa að finna lausnir sem falla inn í þennan ramma. Þegar þann-ig er unnið að málum, er það nauðsynleg forsenda að verkkaupi hafi fulltrúa við samningagerðina með víðtæka reynslu og þekkingu. Opinber aðili hefur af pólitískum ástæðum takmarkað svigrúm til beinna samninga. Ef slíkur aðili kýs eigi að síður að nota alverktöku, þarf hann að láta gera vandaða forsögn um verkið og bjóða síðan út í lokuðu útboði. Fjölda bjóðenda þarf þá helst að takmarka t.d. við 2 til 5 og greiða ákveðna upphæð fyrir hvert vel unnið boð. Hafa verður í huga að vel unnið boð krefst mikils vinnu- framlags, er samsvarar ef til vill 25% af áætluðum heildarkostnaði við fullnaðarhönnun. Dæmi eru um opin alútboð þar sem ekki er greitt fyrir tilboðin. Slík aðferð kann fljótt á litið að sýnast freist- andi fyrir verkkaupa. Hann telur kannski að þannig geti hann orðið sér úti um ókeypis hönnunartillögu, án þess að gera verktökum mishátt undir höfði. Þegar svona er staðið að verki, er þó hætt við að ekki náist fullnægjandi árangur. nema við mjög algeng stöðluð verkefni, sem unnt er bjóða í án mikils vinnuframlags bjóðenda. c. Staða hönnuða. Sú gagnrýni heyrist að með alverktöku færist áher- slur yfir á hagnýtisjónarmið og skammtímagildi, en listræn sjónarmið og ending lúti í lægra haldi. Hér er þess að gæta, að verkkaupi sem hyggst ráðast í dýra byggingarframkvæmd þarf að skilgreina tilgang og markmið áður en lengra er haldið. Verður ekki séð, að samningsformið sem slíkt eigi að hafa áhrif á þá skilgrein- ingu. Verkkaupi með heilbrigðan metnað gerir kröfur um endingu og útlit ekki síður en önnur gildi, óháð samn- ingsformi. c) Staða hönnuðar breytist með alverktöku þannig að hönnuðurinn er nú ráðinn af alverktakanum, en ekki verkkaupanum. Þessu fylgir viss hætta á sambandsleysi milli verkkaupa og hönnuðar. Hér þarf sérstaklega að beina athygli að stöðu arkitektsins, en það er mjög þýð- ingarmikið að trúnaður ríki milli arkitekts og verkkaupa. Þetta verða þeir aðilar, sem leggja stund á alverktöku, að gera sér ljóst. Auðveldara er að ná slíku trúnaðarsambandi í beinum samningum heldur en við útboð. Það er reynsla undirritaðs að þeim tíma er vel varið, sem fer í að gera frumtillögur og forhönnun, ásamt gildismati og kostnaðar- greiningu. Meðan á þeirri vinnu stendur, gefst tækifæri til þess að leita bestu lausna og einmitt á þessu stigi er mikils um vert að góð samvinna takist milli aðila. Eg hef heyrt alverktaka hrósa sér af því að hafa „hespað“ samningagerð af á örfáum dögum. Flýtisverk af því tagi getur auðvitað borið vitni um dugnað og harðfylgi samningamannanna, en óvönduðum vinnubrögðum getur einnig verið um að kenna. d) Alverktaka og önnur samningsform. Þegar nýjar aðferðir eru teknar í notkun þarf eðlilega nokkum tíma til þess að ná áttum og leysa úr byrjunar örðugleikum af ýmsu tagi. Alverktaka er aðferð sem ætla má að verði notuð í framtíðinni með góðum ár- angri við hlið annarra samningsforma. Engan veginn má þó líta á hana sem einhverja allsherjar- eða patent-lausn, það kynni varla góðri lukku að stýra. V. LEIÐBEININGAR EÐA REGLUR UM ÚTBOÐ I Islenskum staðli, ÍST 30, Almennum skilmálum um verkframkvæmdir, sem kom út í 3. útgáfu á árinu 1988, er að finna orðaskýringar á helstu hugtökum um alverktöku. Að því undanskildu er lítið fjallað um alverktöku í staðlinum. Til hagræðis fyrir þá sem sinna byggingar- framkvæmdum væri æskilegt að eiga á íslensku leiðbeiningar um þessa tilhögun framkvæmda. Erlendis hafa verið gefnar út slíkar leiðbeiningar, sem unnt er að styðjast við. Hér skal bent á danskan bækling „Totalentreprise“ (I) sem var gefinn út 1984 sam- eiginlega af 4 aðilum byggingariðnaðarins. Einnig skal bent á bók með sama heiti, gefna út 1981 eftir Erik Hörlyck (II), með tillögu um almenna skilmála um alverktöku, auk ítarlegrar umfjöllunar um þetta samningsform. ■ JÓNAS FRÍMANNSSON. Tilvifnanir: (I) Totalentreprise 1984. Retningslinier for udbud m.v. ved anvendeise af totalentrepriseformen ved bygge- og aniœgsarbejder, juli 1984. Entreprenörforeningen Foreningen af rádgivende Ingeniörer Hándvœrksrádet Praktiserende Arkitekters Rád/DAL (II) Erik Hörlyck: Totalentreprise ISBN 87-574-3280-5. Juristforbundets forlag 1981. 59

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.