Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 63

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 63
á teikniborðinu KJARVALSSAFN S LÝSING ARKITEKTS Bygginganefnd vegna hönnunar nýs Kjarvalssafns bað undirritaðan að hanna Kjarvalssafn. A þessu stigi voru uppi óljósar hugmyndir um mögulega staðsetningu safnsins í norðvesturhomi Miklatúns, við hom Rauðarárstígs og Flókagötu. Undirritaður hóf verkið með athugunum á staðsetningarmöguleikum. Viðnánari athugun kom íljós,að staðsetning nýs safns við norðvesturhomið skapaði tvíræða aðkomu að söfnunum. Landhalli frá Kjarvalsstöðum gafekki möguleika á samræmingu beggja safnanna. Að lokum er staðsetning Kjarvalsstaða stýrandi afl við miðju túnsins, og sterkur og sjálfstæður arkitektúr byggingarinnar er vand- meðfarinn. STAÐSETNING Þættir sem hafa verið veigamestir við staðsetningu Kjarvalssafns em: 1. Skilmerkileg og sameiginleg aðkoma að bæði Kjarvalsstöðum og nýju Kjarvalssafni. 2. Leit að útgangspunkti sem virðir núverandi safn, Kjarvalsstaði. 3. Skilmerkileg afstaða til eiginleika Miklatúns. 4. Leit að möguleikum til að gefa Miklatúni aukið líf og fjölbreyttara notagildi. 5. Hugmyndafræðileg athugun á viðfangsefninu, safn yfir verk Kjarvals. Samtvinningur fyrrgreindra aðalatriða leiddi að lokum til þróunar safnsins í þá mynd sem fram kemur á forteikningum dags. 15.04.89. Meginhugmyndin við þessa byggingu hvílir á því að inngang-ur í Kjarvalssafn verði frá vesturálmu anddyris Kjarvalsstaða. Markmiðið er að gera skilmerkilega aðkomu að Kjarvalssafni. Sameiginleg aðkoma styrkirbæði söfnin, og skapar öflugri stofnun með fleiri möguleika á fjölbrey tni í vali sýninga. Einnig eykst gildi Kjarvalsstaða sem stofnunar og möguleikar safnsins á að fá stórar sýningar erlendis frá styrkjast. HUGMYNDAÞRÓUN Við hugmyndafræðilega þróun Kjarvalssafns, hefur undirritaður leitast við að hafa Kjarval sjálfan að leiðarljósi. Reynt er að túlka viðfangsefni listamannsins í hinum ýmsu þáttum safnsins. Það sem mest einkenndi stíl Kjarvals var Líkan. Torg. 60 hinn sérstaki hæfileiki hans til að ná fram í senn bæði flötum og rýmum. Fletimir eru samsettir af mörgum lögum. Lagskiptingin er svo vel gerð að listamanninum tókst að tjá með þessum lögum bæði áferð landslags, liti í flötum, ásamt rými íslenskrar náttúru. Samtímis var landslaginu stundum gefinn blær af dulúð og dularfullum krafti. Gjaman var komiðfyrir persónugervingum ílagskiptingunni,ogálfarog huldufólk settu sinn svip á margar myndir. Kjarval var einnig litríkur og sérstæður persónuleiki sem margar skemmtilegar sögur eru til um. Eftir hann finnast ýmsirpersónulegirmunirsem segjahversínasögu. Listi yfir þessamunispannaralltfráharðfiskroði og amerískrijólaköku að málverkatrönum hans og pallettum. SAFNIÐ Áhrif frá fyrrgreindum atriðum málaralistar Kjarvals hafa skapað aðferðarfræði safnsins. Inngangur í Kjarvalssafn er „Álfasteinn“ sem tengdur er við suðurenda Kjarvalsstaða. Farið er inn í Álfasteininn og niður í göng sem liggja undir Miklatúni. Göngin leiða að Kjarvalssafni sem liggur undir miðbiki túnsins. Göngin tákna lífsleið Kjarvals og innihalda ýmsa persónulega muni hans. Göngin eru kynning á persónunni Kjarval, áður en komið er að lífsverki hans, myndunum. Munimir í göngunum verða sviðsettir á táknrænan hátt, til þess að styrkja hugmyndafræði safnsins. Hér á eftir verða nefndar nokkrar „sviðsetningar“ úr göngunum: 1. Hattar Kjarvals vom eitt af kennimerkjum hans. Þeim verður komið fyrir í mismunandi hæðum. Sá fyrsti verður staðsettur í hans réttu hæð á tvítugs aldri, síðan lækka þeirkoll af kolli samkvæmt aldurhnignun, þar til að sjálfu safninu kemur. 2. Trönunum og pallettunum verður komið fyrir. 3. Grjótþúst úr Þingvallasveit verður komið fyrir á gólfi ganganna. ÞingvellirvorukærkomiðviðfangsefniKjarvals. I grjótinu verður komið fyrir videoskjá (sem einum af hnullung- unum), þar sem sýndar verða upptökur af Kjarval við verk sín. 4. Mynd af Kjarval í fullri stærð verður komið fyrir á bak við skerm með lagskiptingu af „stálnetum". Þannig skapast óljós og nánast dularfull mynd af listamann- inum. Markmiðið er að skapa óskilgreinda nærveru Kjarvals í safninu á sama hátt og persónugervingar voru faldir í myndunum. 5. Harðfiskinum verður komið fyrir á trönum yfir glerplötu sem táknar vatn. 6. Fötum hans verður einnig komið fyrir í göngunum. 7. Bókahilla úr gleri tengir göngin við sérstakt rými fyrir lestraraðstöðu. 8. Sviðsetning fleiri muna. Göngin hafa hallandi gólf frá Álfasteini að safninu. Annar veggurinn hallast einnig útávið. Gólfið er aðskilið frá veggjum og er gert úr upphækkuðum tréhlemmum. Þessi atriði eru gerð til þess að fjarlægjast ímynd hefðbundins kjallaragangs. Hallandi gólf og veggir leiða safngesti að Neðri hluti: grunnmynd, efri: sneiðing. 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.