Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 85

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 85
verktökum skipulagt land undir ákveðinn fjölda íbúða sem verktakamir byggðu og seldu. Það voru því í raun margir verk- takar sem byggðu Reston. Það varð til þess að yfirbragð þyrpinga er afar mismunandi. Allir hafa þeir þó reynt að byggja hús sem eiga að hafa útlit og yfirbragð eldri húsa. Þannig var reynt að láta líta svo út sem ný byggð væri í raun gamalgróin. Fyrir vikið verður yfirbragð bæjarins mjög líflegt og margbreytilegt hvað sem allri fagurfræði líður. Nú búa um 53 þúsund manns í Reston en alls munu búa um 62 þúsund manns í bænum fullbyggðum um miðjan tíunda áratuginn. Þar verða 14.500 einbýlishús og um 3.700 íbúðir í raðhúsum og fjölbýli sem kalla mætti dreifða og lága byggð. Reston hefur gengið vel að fá til sín fyrirtæki. Þarerboðið upp á um 32 þúsund störf og er áætlað að þau verði um 50 þúsund í bænum fullbyggðum. Um 40% þeirra sem vinna í Reston búa í bænum. Talið er að ferðir til og frá Reston séu um fjórðungi færri en hefðu íbúamir þurft að sækja vinnu sína annað! Bærinn er ekki sjálfstætt bæjarfélag, frekar en Cólumbía, heldur hluti stærra sveitarfélags, Fairfax-héraðs, sem er um 750 þúsund manna samfélag. Þar með er hann hluti víðtækari þjónustukerfa á sviði heilbrigðismála, skólamála, löggæslu o.þ.h. Götur og vegir eru á ábyrgð gatnadeildar Virginíu- fylkis en ekki bæjarins eða héraðsins. Flestar götur í Reston voru lagðar af þeim byggingaverktökum sem byggðu í bænum en gatnadeildin sér um viðhald þeirra. Deildin sér einnig um snjóruðning og umhirðu meðfram götum og vegum. Nokkrar götur í Reston eru í einkaeign, aðallega í þyrpingum og við verslanir. Eigendur þeirra sjá um viðhald gatnanna. Ibúum er vel séð fyrir þjónustu bæði af opinberri hálfu og af einkafyrirtækjum. Bærinn hefur eiginlega allt til að fylla tómstundir íbúanna. Reston Association, sem eru samtök húseigenda í Reston („non-profit” fyrirtæki), leitast við að sjá íbúunum fyrir þeirri þjónustu sem hið opinbera býður ekki upp á. Þeir annast t.d. umhirðu á opnum svæðum og greiða að einhverju marki niður rekstur strætisvagna bæjarins sem annars eru í einkaeign. Héraðið leggur reyndar einnig til fjármagn í reksturinn. Heimildir: The Columbia Process, The Potential for New Towns. - Grein eftir Morton Hoppenfeld. Cólumbía: Frásögn Carols Urquharts, upplýsingafulltrúa í Cólumbíu. Reston: Frásögn A1 Hagelis skipulagsstjóra. Ymis gögn frá yfirvöldum í Reston og Cólumbíu. ■ ÓLAFUR 8. HALLDÓRSSON Reston. 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.