AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 47
Ullarþvottur fyrir 1950.
fyrir okkur. innlendu stöðvarnar voru búnar að missa
niður góðan fjárhag frá 1982 og sátu nú uppi með
svo mikinn kyrrstöðukostnað að enginn nema ríkið
gat leyst út þessi 5 skip sem bundin voru í húsum í
þrjú og hálft ár. Sennilega hefur þetta kostað ríkið
um 1000 milljónir, þrátt fyrir að skipin seldust á háu
verði. Auk þess stóðu allar stöðvarnar eftir með
niðurbrotinn áður góðan fjárhag. Þetta leiddi til þess
að smíðin hvarf úr landinu og 1988 voru viðgerðirnar
einnig komnar úr landi nema 8%. Pólitísk mistök.
400 þúsund tonn af fiski færð erlendum á
silfurfati með þeim hætti að ýta skipasmíðinni út úr
landinu því að fjórði hver fiskur sem veiddur er fer til
þess að greiða skipið sem hann er veiddur á samkv.
upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun.
Iðnaðarráðherra Sighvatur Björgvinsson hefir nú
ákveðið að taka til hendi varðandi skipaiðnaðinn og
er það vel. Hann verður að fá víðtækan stuðning ef
hann á að fá rönd við reist. Skipasmiðirnir eru farnir
til annarra starfa eða hættir að vinna og þó nokkrir
sestir að erlendis. Tækjabúnaðurinn hans Strauss
verkfræðings var seldur á uppboðinu í Stálvlk sem
haldið var eftir gjaldþrot fyrirtækisins 1990, seldur
fyrir 2% af verði og fluttur úr landi. Stöðugleiki í þjóð-
félaginu, vitræn vaxtasetning og vinnufriður ár eftir
ár hjálpar vel til hvað umhverfið snertir. Bústjórn þjóð-
félagsins getur hinsvegar tæplega talist í háum
gæðaflokki hvað fjármál varðar á meðan það er látið
viðgangast að öll ný fiskiskip eru innflutt. Verð þeirra
er nokkrir milljarðar árlega hvort sem okkur líkar betur
eða verr, um þessar mundir jafnvirði 400 þús.
tonna af fiski.
Þessi bátur hefur runnið sitt æviskeið.
Tæknin til þess að smíða skip á íslandi er til, besta
vélasamstæðan var þó flutt til Danmerkur og seld
fyrir 2% af verði. Það þarf að snúa dæminu við og
hefja nýja uppbyggingu.Enginn iðnaður er nærtækari
fiskveiðiþjóð en fiskiskipasmíði.
Ég óska þess að iðnaðarráðherranum megi ganga
vel svo hann standi ekki lengi á þeim rústum skipa-
iðnaðarins sem hann kom að. ■
45