AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Síða 19
r
r
r
SKOLI ER FOLK EN EKKI HUS
Við getum eflaust flest tekið undir það að
heimili er ekki sama og hús. Hús er bygg-
ing sem hægt er að nota til ýmissa þarfa
en heimili er samfélag, manneskjur, and-
rúmsloft, innanstokksmunir, húsnæðiog ótalmargt
fleira. Heimili eru misjöfn og fyrst og fremst hljótum
við að líta á að heimilisandinn byggist á því fólki sem
heldur saman heimili. Gæði heimilislífsins er ekki
hægt að mæla eftir húsmunum, innréttingum eðaytri
búnaði þótt slíkir hlutir geti skipt máli í heildinni.
Eins er það með skólastarfið, gæði þess hljóta að
miklu leyti að ráðast af þeim anda sem svífur yfir
vötnum innan skólans, kennurum, nemendum og
öðru starfsfólki sem þar vinnur. Vissu-
lega eru ytri aðstæður líka mikilvægar
en gott húsnæði og glansandi krítar-
töflur geta engu bjargað ef innra
starfið er metnaðarlaust.
Það loðir við okkur tslendinga að
leggja mikið upp úr húsnæði og er þá
gjarnan vitnað til þess að veðurfar á
þessu guðsvolaða landi sé með þeim
eindæmum að við þurfumað búa
glæsilegar en aðrar þjóðir. Ég gef satt
að segja ekki mikið fyrir þá kenningu
en hætti mér ekki út á þá braut að ræða
það nánar enda væri það efni f aðra
blaðagrein.
Flottheit okkar í byggingum vekja athygli útlendinga
sem hingað koma og þessi glæsibragur birtist hvert
sem litið er. Bankar, opinberar stofnanir, skólar, leik-
skólar, sundlaugar o.fl. eru víða stórglæsileg mann-
virki. Vissulega er gaman að byggja falleg hús og
byggingarlist er list eins og aðrar listir en þegar kem-
ur að rekstri og viðhaldi er farið að harðna á dalnum
og fólkið sem starfar í þessum byggingum er sjaldan
of sælt af launum sínum.
Fyrir nokkrum árum komu hingað til lands formenn
norrænu foreldrahreyfinganna og fóru þeir m.a. í
skólaheimsóknir í þremur sveitarfélögum. Svíi sem
fór í nýlegan skóla á höfuðborgarsvæðinu var spurð-
ur hvernig honum hefði litist á þessa glæsilegu bygg-
ingu. Hann varð hugsi og svaraði svo: Við hefðum
aldrei fengið að byggja svona í Svíþjóð. Ég kvaðst
ekki hissa á því, þetta væri sennilega dýrari skóla-
bygging er þar tíðkaðst, minnug timburskólanna sem
börnin mín gengu í í Lundi. Nei, hann var þá ekki að
tala um flottheitin heldur alla opnu stigana, svalirnar
og handriðin sem hann sá sem slysagildrur. Hann
var líka undrandi á því hversu skólalóðir voru lítið
spennandi og harðneskjulegar með allt svarta mal-
bikið og hvergi sá hann mataraðstöðu fyrir nemendur.
Eflaust hefði blessaður Svíinn alveg misst andlitið
hefði ég tjáð honum að þessi fíni skóli rúmaði ekki
nema helming barnanna í hverfinu í einu og því væri
tvísetinn hver stóll í byggingunni.
Mér finnst erfitt að koma orðum að því hvernig ég sé
fyrir mér skólabyggingar í framtíðinni.
Ég hef einungis komið í hefðbundna
skóla á Norðurlöndum auk þeirra ís-
lensku sem ég hef reyndar komið í all-
flesta. Mér finnst þó full ástæða til að
við förum að íhuga málin fyrir alvöru og
tengja saman veruleika utan og innan
skólanna, skoða málin í samhengi.
Margir kannast við stóra heimavist-
arskóla í sveitum landsins þar sem
glæsileg heimavistaraðstaða stendur
sem næst ónýtt. Þegar fyrstu skóflu-
stungurnar voru teknar í kringum 1970
var jafnframt verið að undirbúa ný
grunnskólalög og áhersla fór vaxandi á skólaakstur.
Stórkostlegar endurbætur á vegakerfinu voru í
burðarliðnum og ríkið hrinti af stokkum vegahapp-
drætti til að flýta fyrir aðgerðum. Mannfjöldaspár frá
þessum tíma bentu eflaust til fækkunar og pillan
blessuð átti sinn þátt í því að æ færri konur eignuðust
7-8-9 börn eins og áður var algengt í sveitum.
Kannski var ekki spáð svo mikið í þessa þætti í bygg-
ingargleðinni enda ekki svo vitlaust að byggja skóla
og nota hann svo fyrir hótel á sumrin. í dag standa
þessir myndarlegu skólar hálftómir og við sumum
þeirra blasir jafnvel lokun innan fárra ára verði
hlutverk þeirra ekki endurskoðað. í Nesjaskóla í
Hornafirði er t.d. búið að ákveða að nýta skólann
sem stendur 7 km frá Höfn fyrir yngstu nemendurna
í sveitarfélaginu öllu og skipuleggja þar notalegan
og öruggan smábarnaskóla fyrir 1.-4. bekk. Eldri
17
UNNUR HALLDÓRSDÓTTIR, FORMAÐUR HEIMILIS OG SKÓLA