AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Blaðsíða 20

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Blaðsíða 20
nemendur munu fara í skóla á Höfn og þannig getur sveitarfélagið sparað sér byggingar í bili og sett pen- ingana í innra starfið, kannski keypt hljóðfæri, tölvur og fengið listamann í heila viku til að vinna með börn- unum. Kannski gætu íbúar á Blönduósi farið að spjalla við nágranna sína sem eiga stórglæsilegan skóla á Húnavöllum. Á sama tíma eru skólar í flestum stærri sveitarfélögum tvísetnir og langt í land að hver bekkur eigi sína skóla- stofu, sitt vinnusvæði þar sem gögn og verkefni eru á vísum stað. í Reykjavík er talið að þurfi að byggja fyrir 5 milljarða til að ná áformum einsetningar og svipað er uppi á teningnum hjá öllum stærstu sveit- arfélögunum. Fréttir af bágum fjárhag sveitarfélaga vekja ekki mikla bjartsýni og víst er að róðurinn verður erfiður. Það væri því kærkomið fyrir börnin, kennara og skattborgara ef hætt yrði að einblína á byggingar og farið að skoða starfið og inntakið í skólanum, hver veit hvaða lausnir fæddust þá. Kannski yrði bylting eins og varð með tilkomu kjör- búðanna og sjálfsafgreiðslunnar. Kannski mætti hætta að einblína á skólastofur með töflu og kennara- borði eins og hætt var að selja mjólk í sérstökum mjólkurbúðum. Hugsum okkur sæmilega stóra líkamsræktarstöð. Þangað koma konur og karlar af öllum stærðum og gerðum til að efla líkamshreysti sína. Undir hand- leiðslu þjálfara feta menn sig inn á heilsubrautina. Sumir fara í tækin, aðrir í jóga og enn aðrir í þolfimi. Margir fara I skokkhóp og þeir þurfa engan sal, en kannski handrið utan á húsið til að halda í þegar þeir teygja sig. Líklega fara þeir flestir í sturtu heima hjá sér eftir hlaupin. Nokkrir fara að undirbúa sig undir maraþonhlaup og taka hvern áfangann af öðrum. Aðrir taka líka stórstígum framförum þótt þeir hlaupi aldrei meira en 3-5 kílómetra. Eigendur stöðvarinnar vita að þeir verða að fylgjast vel með nýjungum og bjóða góða þjálfara og upp- byggilega dagskrá. Þeir sjá fljótt að það er ráð að fræða um sem mesta heilsurækt því góður árangur er besta auglýsingin fyrir stöðina. Menn tengja saman líkama og sál, t.d. með fræðslufyrirlestrum og leið- beiningum um mataræði. Þeir setja feitasta fólkið í litla lokaða hópa svo því líði betur meðan það er að ná sér á strik, því ekki er uppörvandi að vera alltaf sá slakasti í hópnum. Sjúkraþjálfarar, nuddarar og fleira gott fólk hefur sínar skonsurog m.a. s. sálfræð- ingur er með í spilinu. Hann hefur enga skrifstofu enda vill hann alveg eins messa yfir hópnum og fá svo einstaklingana til sín. Margir ná slíkum tökum á hollum llfsvenjum að þeir útskrifast og geta stundað heilsurækt á eigin spýtur, fjallgöngur, sund, skokkog hlaup. Þeir draga jafnvel vinnufélaga og nágranna upp úr hægindunum og út að skokka. Aðrir halda tryggð við stöðina eða leita annað þar sem þeim líkar betur. Mig grunar að hægt væri að yfirfæra margt I skipulagi heilsuræktarstöðvar yfir á skólakerfið og ná miklu betri árangri en með gömlu, rykföllnu aðferðunum. Grunnskólinn hefur samkvæmt annarri grein grunn- skólalaganna því hlutverki að gegna að búa nemend- ur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sí- felldri þróun. Það er efni í aðra blaðagrein að brjóta þessa fögru setningu til mergjar. Búa nemendur undir líf í lýðræðisþjóðfélagi, búa þá undir starf í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Hversu mikið lýðræði fá nemendur í grunnskóla að upplifa? Hversu mörg tækifæri fá þeir til að taka ábyrgan þátt I ákvörðunum um nám, kennslu, skólareglur, félagslíf o.fl.? Jú, varðandi félagslíf, þeir fá yfirleitt að ákveða hvenær þeir hafa böll og kannski hvert þeir fara í skólaferðalag. Þeir hafa lítið að segja um vinnuaðferðir og áherslur í námi og fá yfirleitt lítil tækifæri til að æfa tjáningu eða segja sína skoðun sem er þó lykilatriði til þátttöku í lýðræðisþjóð- félagi. Sumir, of margir, tjá vanþóknun sína með skrópi, ólátum og aðgerðaleysi og hljóta yfirleitt bágt fyrir. Skipulag skólastarfsins hefur lítið sem ekkert breyst síðan munkarnir hófu að 18 j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.