AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 26

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 26
SKIPULAG MIÐAÐ VIÐ AÐSTÆÐUR Skipulag lóðarinnar ætti að mínu mati að aðlaga að- stæðum á hverjum stað frekar en vera of bundinn á klafa stærðarnorma reglugerða. Þannig geta verið mismunandi markmið að stefna að eftir stærð skól- anna og því umhverfi sem þeir eru staðsettir í. Þaó sem hér er skrifað á við bæjarumhverfi. Skólalóðirnar ættu að hafa grænt yfirbragð og skipt- ast í svæði sem gefa rúm fyrir marga aldurshópa að leik samtímis en forðast eyðumerkurlandslagið sem enn er oft ríkjandi. Ef vel er á haldið gagnast skólalóðin á einhvern hátt öllum bæjarbúum, lífgar upp á umhverfið og myndar verðugan ramma um skólastarfið. í 2. tbl. útg. 15. ágúst 1994 bls. 20 er grein eftir Þráin Hauksson landslagsarkitekt. Greinin nefnist „Skóla- lóðin" og fjallar um skólalóðina og skipulag hennar í víðu samhengi. Auk þess er greinin kynning á skipu- lagi lóðar Setbergsskóla í Hafnarfirði sem hönnuð er undir stjórn Þráins á Teiknistofu landslagsarkitekta Reynis og Þráins. Setbergsskóli er dæmi um fallegt skólahús og lóð í fögru náttúrlegu útivistarsvæði. Suðvesturmörk lóð- arinnar eru mynduð af læk, en handan lækjarins tekur við hraun. Hér er dæmi um gott samspil byggingar, skólalóðar og útivistarsvæðis sem hvert styður ann- að. HOFSTAÐASKÓLI í GARÐABÆ Með þessum línum kynnum við lóð við hinn nýja Hofstaðaskóla í Garðabæ. Hönnuðir eru þeir sömu og stóðu að Setbergsskóla Byggingar eru hannaðar af arkitektastofunni Úti og Inni, en lóð af Teiknistofu landslagsarkitekta Reynis og Þráins. Þessir skólar eiga það sameiginlegt að hús og lóð eru hönnuð og byggð samtímis sem ein heild. Skólalóðin afmarkast af Arnarneslæk að norðan en Bæjarbraut að austan og sunnan, en vestan við er íbúðarhverfi. Norðan Arnarneslækjar er nýr Fjöl- brautaskóli í byggingu. Á útivistarsvæðinu sunnan skólans er æfingasvæði íþróttafélagsins Stjörnunnar. Lóð Hofstaðaskóla er mikilvægur hluti af stærra útivistarsvæði. Garðabær hefur lagt mikla áherslu á gott aðgengi að skólanum. Útivistarleiðir liggja að skólanum eftir grænum geirum í nærliggjandi íbúðarhverfum og meðfram Arnarnes- læk. Þar sem stígarnir skera umferðargötur eru undir- göng. Stígakerfið, sem er liður í skipulögðu göngu- og hjólreiðaneti um Garðabæ, var framkvæmt umleið og skólabyggingin. Útivistarleiðir almennings liggja því um skólalóðina. í skipulaginu er lögð áhersla á góða og örugga að- keyrslu, skiptingu lóðarinnar í leikfleti, gróðurbelti og grasfleti. Á lóðinni er gert ráð fyrir samkomusvæði sem jafnframt er leik- og dvalarsvæði. Lóð Hofstaða- skóla inniheldur því ýmis af þeim gæðum sem getið er um í greininni hér að framan. ■ S ki p u I ag r í k i s i n s □ Laugavegi 166 -Sími: 562 - 4100- -Bréfas: 562 - 4165- Rit um skipulags- og byggingarmál til sölu hjá Skipulagi ríkisins • Lög og reglugerðir um skipulags- og byggingarmál • Svæðisskipulag leiðbeiningarit I • Svæðisskipulag leiðbeiningarit II • Aðalskipulag leiðbeiningarit • Deiliskipulag leiðbeiningarit • Leiðbeiningar við mat á umhverfisáhrifum • Skipulag sumarbústaða og sumarbústaðahverfa • Umhverfismat fyrir Skútustaðahrepp • Svæðisskipulag Suðurnesja 1987-2007 • Svæðisskipulag Flóa 2011 • Svæðisskipulag fyrir sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar 1992-2012 • Stefnumörkun um skipulags- og byggingarmál Fjallabakssvæðisins 1993-2003 oauk þess liggja frammi ýmis kynningarit

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.