AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Síða 31

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Síða 31
HVAÐ ER GOÐUR SKÓLI? runnskólinn er sú stofnun í þjóöfélaginu sem allir fá einhverja reynslu af fyrr eða síðar. Því til viðbótar má benda á að stöðugt fleiri einstaklingar sækja framhaldsskóla og háskóla og þvl er ekki undarlegt að umræðan um hvernig góður skóli eigi að vera komi oft upp manna á meðal. [ sjálfu sér er ekki óeðli- legt að skiptar skoðanir séu um það með hvaða hætti skólinn gegni best skyldum slnum við samfélagið og engin furða þótt sú reynsla sem hver og einn hefur af eigin skólagöngu eða skólagöngu barna sinna setji svip sinn á umræður um skólamál. Til þess að skóli geti sinnt hlutverki sínu svo vel sé er nauðsynlegt að saman fari gott og hentugt húsnæði, góður aðbún- aður nemenda og kennara og metnaðarfullt, vel menntað og vel launað starfsfólk. í framhaldi af þessari upptalningu er eðlilegt að spyrja hvort þessi skilyrði séu almennt uppfyllt og jafnframt hvernig forgangsröðun er háttað þegar skipta þarf takmörkuðu fjármagni á milli þeirra liða sem upp eru taldir hér að framan. Þá má og vekja máls á því hverjir komi að þeirri forgangsröðun og hverra hagsmunir séu hafðir að leiðarljósi. Það er alkunna að við íslendingar verjum hlutfallslega minna fjármagni til menntamála en þær nágranna- þjóðir okkar sem við berum okkur gjarnan saman við og viljum standa jafnfætis þegar gæði mennt- unar eru metin. Þess vegna er enn mikilvægara að forgangsröðunin miði að því að skólanum sé gert kleift að sinna lögbundnu hlutverki sínu og áhersla sé lögð á það við hönnun skólamannvirkja að bygg- ing og allur aðbúnaður taki mið af þörfum skólastarfs. Hér kem ég að þvl atriði sem ég tel mikilvægast að menn hafi að leiðarljósi þegar skólamannvirki eru hönnuð en það er að starfsemin sem fram á að fara í skólanum móti í raun hvers konar skólahúsnæði er byggt og jafnframt hvers konar búnaður er keyptur. Þar af leiðandi tel ég það með öllu óeðlilegt að skólahúsnæðið og búnaður þess eigi að hafa mót- andi áhrif á þá starfsemi sem fer fram innan veggja skólans. Ég held því að menn ættu að hugsa vel sinn gang áður en ákvörðun er tekin um að láta fara fram svokölluð alútboð sem sjálfkrafa hafa það í för með sér að hönnuðir skólamannvirkja fá í hendur staðlaðar upplýsingar og óskir um þau atriði sem hafa á í huga við hönnunarvinnuna. Ég tel að þessu fylgi sú hætta að ýmis sjónarmið þeirra sem starfa eiga við stofnunina fái ekki að koma fram og lögð sé áhersla á þætti sem minna máli skipta, svo sem að reisa einhverjum stjórnmálamanni eða arkitekt glæsi- legan minnisvarða. Það er of algengt þegar nýtt skólahúsnæði er tekið í notkun að þar vantar ýmsa hluti sem nauðsynlegir eru til þess að skólinn geti sinnt hlutverki sínu. Nægir þar að benda á fjölda skóla sem starfa árum saman án þess að aðstaða til kennslu í list- og verkgreinum sé fyrir hendi þrátt fyrir að á tyllidögum sé því gjarnan lýst yfir að efla beri kennslu í þeim greinum. Þá má og benda á að tækjabúnaður skóla er oft mjög frumstæður. Ég held því að heppilegt væri að þeir sem taka ákvörðun um byggingar skólamannvirkja leituðu í ríkari mæli eftir upplýsingum frá fagaðilum, þ.e. skólastjórum og kennurum, varðandi helstu atriði sem hafa ber í huga við byggingu skóla og reyndu með því að tryggja að umbúnaðurinn verði þannig úr garði gerður að hann henti starfseminni sem á að fara fram í skólunum. Þetta hefði sjálfsagt í för með sér að ýmsar byggingar yrðu íburðarminni og ódýrari en oft er og þar af leiðandi ekki eins veglegur „minnis- varði", en í staðinn er ég viss um það að bæta mætti aðbúnað skólanna og jafnframt greiða starfsmönn- um hærri laun. Ég er sannfærður um að þetta myndi leiða til þess að skólarnir yrðu betur í stakk búnir til að sinna hlut- verki sínu. Þeir hefðu yfir að ráða hentugra húsnæði, betri búnaði og ánægðara starfsfólki. Ég fullyrði að þetta muni leiða af sér betri skóla I landinu í víðasta skilningi þeirra orða. Að lokum langar mig að varpa fram þeirri spurningu hvort sá „minnisvarði", sem menn reisa sér ef þeir eiga þátt í því að búa skólann þannig úr garði að hann geti gegnt skyldu sinni lögum samkvæmt, sé ekki eftirsóknarverðari en glæsileg bygging sem er fyrst og fremst til þess fallin að gleðja augu þeirra sem leið eiga hjá. ■ 29 EIRÍKUR JÓNSSON, FORMAÐUR KENNARASAMBANDS ÍSLANDS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.