AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Qupperneq 43
ÞAR SEM JAFNVÆGI RIKIR
Um umferðarmál í menningarborginni Reykjavík
Ægissíða.
Jafnvægi þarf að ríkja. Jafnvægi á milli allra
þátta umferðar, hvort sem um er að ræða
umferð einkabíla, almenningsvagna eða
gangandi og hjólandi vegfarenda. Jafn-
vægishugtakið og virðing fyrir umhverfinu er leiðar-
Ijósið í öllum þeim tólf borgum sem Skipulagsnefnd
Reykjavíkurborgar heimsótti í námsferð sinni til
Bretlandseyja nýverið. Máli sínu til stuðnings vitnuðu
menn í Brundtlandsskýrsluna góðu (Okkar sameigin-
lega framtíð:1987) og samþykktir „Car free Cities
Club“ en svo kallast samtök Evrópuborga sem Reyk-
javíkurborg er raunar meðlimur í. Umhverfisráðstefn-
an í Ríó er nefnd og hugtakið sjálfbær þróun er í
hávegum haft. Það vakti sérstaka athygli, að um
þessi sjónarmið ríkir samstaða meðal stjórnmála-
manna og embættismanna bæði hjá ríki og sveitar-
félögum. Vandinn þar hefur verið sá sami og hér, að
þótt allir vilji bæta umhverfið, allir vilji bæta öryggi
og aðstæður gangandi og hjólandi vegfarenda, þá
hafa margir bíleigendur viljað komast hratt og
óhindrað áfram eftir gatnakerfinu og geta lagt bílnum
sínum fyrir utan heimili/vinnustað/verslanir og aðrar
þjónustustofnanir. Þar hefur hnífurinn staðið í kúnni.
En nú hefur náðst samstaða um gjörbreyttar áherslur.
Sú samstaða felst í því að höfuðverkefnið sé að bæta
umhverfið með því að vinna að því að minnka einka-
bílaumferð. í því skyni þurfi að efla og styrkja almenn-
ingssamgöngur og bæta aðstöðu þeirra sem ganga
eða hjóla. Þannig náist hið eftirsóknarverða jafnvægi.
Fleiri atriði eru nefnd, eins og gerð samfelldra göngu-
svæða án bílaumferðar í miðborgum þar sem mikið
er gert til að fegra og prýða göngusvæðin. Þess
vegna eru ekki uppi áform um stór og mikil umferðar-
mannvirki fyrir einkabíla inni í borgunum, þar sem
talið er að þau dragi úr greiðri umferð gangandi og
hjólandi. Þessi sjónarmið nágranna okkar á Bret-
landseyjum verðum við raunar líka vör við alls staðar
í löndunum í kringum okkur.
STEFNA REYKJAVÍKURUSTANS
í stefnuskrá Reykjavíkurlistans sem lögð var fram fyrir
síðustu kosningar segir:
„Reykjavíkurlistinn telur að umhverfis- og skipulags-
mál og þar með umferðarmál séu meðal mikilvæg-
ustu málefna borgarinnar. Þar er markaður rammi,
sem hefur afgerandi áhrif á daglegt líf borgarbúa.
Leitað verði leiða í skipulagningu borgarinnar til að
draga úr þörfinni fyrir einkabíla, m.a. með því að
41
GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR, FORMAÐUR SKIPULAGSNEFNDAR