AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Page 47
byggðar. Þá er mikilvægt að öll dagleg þjónusta sé
nálægt heimili. Sú aðgerð ein að fjölga plássum á
leikskólum og lengja dvalartíma barna þar og ein-
setja og lengja kennsludaginn í grunnskólum mun
minnka þörf fyrir ferðir. Það gefur auga leið. Félags-
íbúðir iðnnema, sem komið hafa upp 26 íbúðum og
36 herbergjum í sambýlum fyrir námsmenn í nágrenni
Iðnskólans, fækka ferðum. Aukin þjónusta ýmissa
fyrirtækja í gegnum tölvur og nýja tækni fækkar ferð-
um. Fjölgun íbúða í miðbænum og nágrenni hans
gerir það líka. Uppbygging námsmannaíbúða í ná-
grenni Háskóla íslands minnkar þörf fyrir einkabíla-
eign. Og svo mætti lengi telja.
ÚR TÚNINU HEIMA - ÚT í HEIM
Fyrirtæki í Danmörku heitir Anders Nyvig, umferðar-
og borgarskipulag og hefur það unnið lengi og mikið
fyrir Reykjavíkurborg eða allar götur frá því að
Aðalskipulagið frá sjöunda áratugnum var í vinnslu.
Fyrirtækið vann að breytingu á leiðakerfi SVR sem
nú hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Fyrirtækið er
jafnframt að vinna fyrir borgarverkfræðingsembættið
og eru starfsmenn fyrirtækisins oft á ferðinni hér á
landi. Á fundi, sem haldinn var með þeim 26. júní sl.,
kynntu þeir nýtt leiðakerfi SVR. og sögðu frá áhrifa-
ríkustu leiðunum sem notaðar eru í Evrópu til að
minnka einkabílaumferð. En þær eru þessar:
„1 .Hraðatakmarkandi umferðarútfærslur með svæð-
um með 30 km hámarkshraða og 50 km hámarks-
hraða á tengibrautum.
2. Bílastæðagjöld.
3. Bann við að leggja bílum í íbúðahverfum nálægt
miðborginni (nema fyrir íbúana á skrifstofu - og versl-
unartíma).
4. Takmarkað framboð af bílastæðum í miðborginni.
5. Að koma á samtengdu göngusvæði án bílaum-
ferðar í miðborginni.'1
Máli sínu til stuðnings sendu þeir okkur svo lista yfir
aðgerðir sem níu borgir á meginlandi Evrópu hafa
gripið til í því skyni að minnka bílaumferð. Allar borg-
irnar hafa samhliða áðurnefndum aðgerðum stórbætt
almenningssamgöngur. Á listanum er líka getið um
árangur sem er mismikill, allt frá því að vera enginn
(Luxembourg með 76 þús. íbúum) og í verulegan
árangur t.d. í Freiburg, Þýskalandi (186 þús. íbúar).
Þar varð aukning á ferðum til miðbæjarins á árunum
1976-1986 17%: bílaumferð var óbreytt, farþega-
aukning með strætisvögnum varð 15% og hjólaum-
ferð jókst um 73%!! Ástæða þess að þeir Nyvigs-
menn nefndu þessar leiðir til að minnka umferð einka-
bíla er sú, að þeir telja aó á meðan stefna borgarinnar
er sú að greiða sérstaklega fyrir umferð einkabíla,
þá sé ekki réttlætanlegt að leggja til aukna þjónustu
SVR!
Á RÁÐSTEFNU SSH - NÝ VIÐHORF - LOKSINS
Á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, sem haldin var 20. október sl., voru flutt
mörg og merk erindi þar sem þessi sjónarmið um
bætt umhverfi og minni bílaumferð komu fram, e.t.v.
í fyrsta skipti á slíkri ráðstefnu hjá jafnmörgum fram-
sögumönnum. Þar flutti Gunnar Ingi Ragnarsson,
verkfræðingur, erindi þar sem hann benti á leiðir til
að draga úr umhverfisáhrifum umferðar. Hann nefndi
sérstaklega sjónmengun sem hann taldi nokkuð
afstætt hugtak sem ekki sé hægt að mæla á sama
hátt og loft- og hávaðamengun. Með sjónmengun
er átt við „rýmisfrek umferðarmannvirki sem oft og
tíðum falla illa að landslagi og byggðamynstri og
kljúfa bæjarhluta, en einnig stór og oftast Ijót bíla-
stæði sem óhjákvæmilega fylgja umferðinni". Hann
sagði ennfremur: „[ nágrannalöndum okkar er æ meiri
áhersla lögð á að draga úr umhverfisáhrifum um-
ferðar með því að minnka umferð einkabíla. Þetta er
gert á margvíslegan máta: t.d. með því að taka upp
gjaldtöku fyrir að aka inn í bæi, með því að fækka
bílastæðum í miðbæjum og þrengja götur, með því
að takmarka umferð inn í bæjarhluta með gerð bíla-
stæða í útjaðri bæja og bjóða þaðan upp á góðar
almenningssamgöngur inn í miðbæ (park and ride).
Jafnframt þessu eru almenningssamgöngur bættar,
hjólreiðastígar gerðir og áróður fyrir þessum ferða-
máta stóraukinn. Margar þjóðir hafa þurft að endur-
skoða afstöðu sína til umferðarmála vegna mengunar
frá umferðinni."
„STÆÐI OG STRÆTÓ“
„Stæði og strætó" (park and ride) aðferðin nýtur stöð-
ugt meiri vinsælda víða. í henni felst að þú leggur
bílnum þlnum á sérstöku vöktuðu svæði skammt utan
miðbæjarins, borgar fyrir bílastæðið sem jafnframt
er greiðsla með sérstökum strætó inn í miðbæ og
aftur til baka. Gaman væri að gera slíka tilraun hér,
t.d. í jólaumferðinni.
45